30/01/2026
Prófkjörið verður haldið á morgun í félagsheimilinu okkar í kjarnanum. Það eru 13 í framboði en 4 af þeim eru ungir Sjálfstæðismenn og við ætlum að kynna þá fyrir ykkur í vikunni en við sendum þeim nokkrar spurningar fyrr í vikunni svo að þið getið kynnst þeim betur! Síðasti ungi frambjóðandinn sem við kynnum til leiks er hann Ragnar Bjarni sem sækist eftir 4. sæti
Aldur: Ég er 25. ára
Hvaða sæti sækist þú eftir: Ég sækist eftir 4. sæti
Helstu stefnumál: Helstu stefnumál mín eru húsnæðismál, umhverfismál og samgöngu
Uppáhalds skyndibiti: Serrano
Hver eru brýnustu málefni ungs fólks í Mosfellsbæ: Brýnustu mál ungs fólks í mosfellsbæ eru húsnæðismál þar sem við þurfum að finna leiðir til þess að fá húsnæði á viðráðanlegu verði fyrir fyrstu kaupendur og fjölskyldur þeirra.
Umhverfismál og samgöngur eru einnig mikilvæg og þurfum við að hafa góða og skýra stefnu sem virkar ekki eitthvað sem er flott á blaði, samgöngumál er eitthvað sem allir mosfellingar kannast við og þurfum við að leita að leiðum til þess að þær virki almennilega ekki bara út úr bænum heldur líka inn í bænum.
Uppáhalds tónlistarmaður/kona: Bubbi Morthens og Kaleo
Viljinn óskar Ragnari Bjarna góðs gengis í prófkjörinu!
29/01/2026
Það eru 2 dagar í prófkjörið sem verður haldið næsta laugardag ( 31. Janúar ) í félagsheimilinu okkar í kjarnanum. Það eru 13 í framboði en 4 af þeim eru ungir Sjálfstæðismenn og við ætlum að kynna þá fyrir ykkur í vikunni en við sendum þeim nokkrar spurningar fyrr í vikunni svo að þið getið kynnst þeim betur!
Næsti ungi frambjóðandinn sem að við kynnum til leiks er Nanna Björt!
Fullt nafn: Nanna Björt Ívarsdóttir
Aldur: 21 árs
Hvaða sæti sækist þú eftir: 5. sæti
Uppáhalds skyndibiti: Serrano
Hver eru brýnustu málefni ungs fólks í Mosfellsbæ: Skóla-, tómstundar og húsnæðismál, myndi ég segja að væru brýnustu málefni ungs fólks.
Uppáhalds tónlistarmaður/kona: Ég elska Ásgeir Trausta
Viljinn óskar Nönnu góðs gengis í prófkjörinu!
28/01/2026
Það styttist í prófkjörið sem verður haldið næsta laugardag ( 31. Janúar ) í félagsheimilinu okkar í kjarnanum. Það eru 13 í framboði en 4 af þeim eru ungir Sjálfstæðismenn og við ætlum að kynna þá fyrir ykkur í vikunni en við sendum þeim nokkrar spurningar fyrr í vikunni svo að þið getið kynnst þeim betur!
Næsti ungi frambjóðandinn sem að við kynnum til leiks er Magnús Ingi!
Fullt nafn: Magnús Ingi Ingvarsson
Aldur: 32 ára
Hvaða sæti sækist þú eftir: 6. sæti
Helstu stefnumál: Samfélag og félagslíf, velferð og félagsþjónusta, farsæld barna og ungmenna.
Uppáhalds skyndibiti: Dúós í mosó.
Hver eru brýnustu málefni ungs fólks í Mosfellsbæ: Fyrst og fremst andleg heilsa, húsnæði og framtíðartækifæri innan mosfellsbæjar.
Uppáhalds tónlistarmaður/kona: Herra Hnetusmjör 🤝
Viljinn óskar Magnúsi góðs gengis í prófkjörinu!
27/01/2026
Það styttist heldur betur í prófkjörið sem verður haldið næsta laugardag ( 31. Janúar ) í félagsheimilinu okkar í kjarnanum. Það eru 13 í framboði en 4 af þeim eru ungir Sjálfstæðismenn og við ætlum að kynna þá fyrir ykkur á næstu dögum en við sendum þeim nokkrar spurningar fyrr í vikunni svo að þið getið kynnst þeim betur!
Fyrsti ungi frambjóðandinn sem að við kynnum til leiks er Brynja Hlíf!
Fullt nafn: Brynja Hlíf Hjaltadóttir
Aldur: 28
Hvaða sæti sækist þú eftir: 5.
Helstu stefnumál: Málefni barna og ungmenna, menntamál, velferðarmál og aðgengismál.
Uppáhalds skyndibiti: Joe and the juice.
Hver eru brýnustu málefni ungs fólks í Mosfellsbæ:
Geðheilbrigðismál – Það er mikið svigrúm fyrir bætingar í geðheilbrigðismálum almennt en ekki síst þegar kemur að ungmennunum okkar og eiga þau mál að mínu mati að vera í algjörum förgangi. Eins þurfum við að efla forvarnir, svo sem með því að styðja fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf.
Húsnæðismál – Húsnæðisuppbygging þarf að vera hagkvæm og henta fyrstu kaupendum. Við viljum ekki missa unga fólkið okkar yfir í önnur sveitarfélög vegna skorts á hagkvæmum húsnæðiskosti í Mosfellsbæ.
Uppáhalds tónlistarmaður/kona: Kaleo, GDRN, Gréta Salóme, Stefanía Svavars, Steindi og Dóri DNA allan daginn.
Viljinn óskar Brynju góðs gengis í prófkjörinu!
21/01/2026
Það er farið að styttast í lýðræðisveisluna! 🥳
Við í Viljanum viljum minna á það að prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ verður þann 31. Janúar, en það er kosið í félagsheimilinu okkar í Kjarnanum. Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1 í Reykjavík á virkum dögum milli kl. 10:00-16:00 til 30. janúar.
Það er hægt að skrá sig í flokkinn á staðnum, en þau sem eru 18 ára og yngri þurfa að vera búinn að skrá sig í flokkinn þann 29. Janúar til þess að vera kjörgeng á kosningadaginn.
Af 13 frambjóðendum eru 4 ungir Sjálfstæðismenn í framboði og við óskum þeim góðs gengis 👊🏼
Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt það trekk í trekk að hann treystir ungu fólki og án þeirra væri Sjálfstæðisfálkinn vængbrotinn🦅
Hér má sjá okkar glæsilegu fulltrúa en það eru þau Brynja Hlíf Hjaltadóttir, Nanna Björt Ívarsdóttir, Ragnar Bjarni Zoëga Hreiðarsson og Magnús Ingi Ingvarsson.