27/10/2026
Það var líf og fjör á bókasafninu yfir vetrarfríið í seinastu viku. Við vorum svo heppin að fá hann Felix Bergsson í heimsókn til okkar sem las upp úr nýju bókinni um systkinin Freyju og Frikka: Leynifélag í lífsháska. Felix söng einnig nokkur lög og þá tóku sko öll undir! 🎶
Á föstudeginum var svo boðið upp á föndur og þá fylltist safnið af hæfileikaríku listafólki! Grasker, draugar og leðurblökur voru á sveimi og stemningin frábær! 🎃🦇
Það styttist í hrekkjavökuna og er bókasafnið orðið heldur betur vel skreytt. Nú er um að gera að grípa með sér eina hryllilega bók til að lesa um helgina!
Verið velkomin! 👻