14/03/2026
Þessa dagana standa yfir úttektaræfingar Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Oddsskarði. Alls eru 17 leitarhundar sem taka þátt í æfingum og úttektum ásamt eigendum og þjálfurum sínum. Einnig eru tveir erlendir dómarar og þjálfarar sem að koma sérstaklega til landsins í þessa úttekt auk innlendra dómara frá félaginu. Að auki er fjöldinn allur af aðstoðarfólki frá Björgunarsveitinni og unglingadeildunum frá Gerpir og Brimrúnu sem að aðstoða.
Leitarhundar og þjálfarar þeirra þurfa að standast ákveðin viðmið í snjóflóðaleit til að geta flokkast sem snjóflóðaleitarhundur og er þetta liður í því.
Það eru þrjú prófsvæði og er svæðunum skipt eftir getu hundanna, A-B-C. Þetta fer þannig fram að líkt er eftir snjóflóði og sjálfboðaliðar eru grafnir í snjó (snjóhús), og þar á eftir er kallað í viðkomandi hundateymi og ath hvernig það stendur sig í að finna þá gröfnu.
Snjóflóðaleitarhundar eru mikilvægar bjargir í snjóflóðaleit og mikill fengur í að hafa aðgang að slíku á okkar svæði. Alls eru þrír snjóflóðaleitarhundar á Austfjörðum.
01/03/2026
Veðurviðvörun. Mánudaginn 2.mars hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular og appelsínugular viðvaranir: Norðvestan stórhríð, 20-28 m/s, snjókoma með köflum og skafrenningur. Ekkert ferðaveður. Staðbundið foktjón mögulegt.
Í Norðfirði er þessi vindátt skeinuhætt, þannig að tryggið lausamuni utanhúss eða komið þeim í skjól. Þessu fylgir skafrenningur og snjókoma þannig að færð getur spillst. Fylgist með tilkynningum frá Fjarðabyggð varðandi skólahald - búið er að aflýsa skólaakstri.
Ferðalög á milli staða á Austurlandi geta orðið mjög erfið eða ómöguleg um eða uppúr hádegi og fram á þriðjudagsmorgun.
06/01/2026
Flugeldasalan okkar er opin til kl 18 í dag.
Þrettándabrenna kl 18 inn á sandi.
05/01/2026
Flugeldasalan okkar að Nesgötu 6 verður opin á þrettándanum 6.janúar á milli kl 14 og 18.
Vefverslunin er líka opin
Flugeldamarkaður - Björgunarsveitin Gerpir
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir stuðninginn!
31/12/2025
Veðurútlitið fyrir kvöldið fer batnandi og lítur út fyrir ágætis skotveður í kvöld.
Við bjóðum upp á frábæra flugelda, gott kaffi og jafnvel konfekt með því ;)
Við erum með opið til kl 15 í dag.
Með ósk um góð og slysalaus áramót og takk fyrir stuðninginn á árinu sem að senn rennur sitt skeið.
30/12/2025
Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.
Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.
Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.
Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.
Hægt verður að skipta út pakkanum á morgun þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.
Meðfylgjandi eru ljósmyndir af pakkanum og þeim rakettum sem í honum eru.
Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.
30/12/2025
Flugeldasýning í kvöld, 30.des kl 20:00 - ATH, ekki á gamlársdag
27/12/2025
Björgunarsveitin Gerpir
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir stuðninginn!
27/12/2025
Gleðilega hátíð kæru vinir.
Nú styttist í áramótin og flugeldasalan opnar 28.des. kl 18.
Vefverslunin er opin
Flugeldamarkaður - Björgunarsveitin Gerpir
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir stuðninginn!
16/12/2025
https://www.facebook.com/share/1C7yAyfgim/
🎄 Björgunarskipið Hafbjörg frá Neskaupstað sendi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar jólakveðju að lokinni æfingu í kvöld en leið skipsins á Norðfjarðarflóa var sannarlega táknræn.
Takk fyrir okkur 🙏🏼
Slysavarnafélagið Landsbjörg
09/12/2025
Minnum á að við afhendum jólatrén í dag kl 18. Einnig mun lúðrasveitin koma og leika nokkur jólalög, allir velkomnir.