Heklan - Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja

Heklan - Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja

Share

Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja. Verkefni Heklunnar eru fjölbreytt á sviði atvinnu- og byggðaþróunar auk verkefna á sviði nýsköpunar.

Heklan beitir sér fyrir sem nánustu samstarfi allra aðila í stoðkerfinu á Suðurnesjum og er markmiðið að koma þannig í veg fyrir tvíverknað og árekstra. Heklan er fyrsti viðkomustaður þeirra sem til stoðkerfisins leita og vísar aðilum þangað sem aðstoð er að fá í hverju tilviki. Verkefnastjórar Heklunnar sjá um umsýslu Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja

Kynningarfundur á Suðurnesjum fyrir íslenskar útflutningsgreinar - Heklan atvinnuþróun 25/02/2026

Við minnum á kynningarfund Íslandsstofu um útflutning sem haldinn verður á Hótel Keflavík í Reykjanesbæ á morgun kl. 11:30 - 13:30.
Þar verður kynnt endurskoðuð útflutningsstefna og greint frá aðgerðum og þjónustu Íslandsstofu í þágu útflutnings.

Á síðasta ári var samþykkt á fundi útflutnings- og markaðsráðs endurskoðuð langtímastefna fyrir íslenskan útflutning. Íslandsstofa leiddi vinnu við gerð stefnunnar, sem er samstarfsverkefni stjórnvalda og atvinnulífs. Markmið hennar er að stuðla að auknum útflutningstekjum og sjálfbærum hagvexti á Íslandi.

Skrá þarf þátttöku á fundinn

Kynningarfundur á Suðurnesjum fyrir íslenskar útflutningsgreinar - Heklan atvinnuþróun Íslandsstofa ferðast um þessar mundir um landið til að kynna endurskoðaða útflutningsstefnu og greina frá aðgerðum og þjónustu Íslandsstofu í þágu útflutnings. Á síðasta ári var samþykkt á fundi útflutnings- […]

Kynningarfundur á Suðurnesjum fyrir íslenskar útflutningsgreinar - Heklan atvinnuþróun 23/02/2026

Íslandsstofa stendur fyrir kynningarfundi á Suðurnesjum þar sem kynnt verður endurskoðuð útflutningsstefna og greint frá aðgerðum og þjónustu Íslandsstofu í þágu útflutnings. Ath að skrá þarf þátttöku á fundinn sem fram fer á Hótel Keflavík

Kynningarfundur á Suðurnesjum fyrir íslenskar útflutningsgreinar - Heklan atvinnuþróun Íslandsstofa ferðast um þessar mundir um landið til að kynna endurskoðaða útflutningsstefnu og greina frá aðgerðum og þjónustu Íslandsstofu í þágu útflutnings. Á síðasta ári var samþykkt á fundi útflutnings- […]

Svanni framlengdur - Heklan atvinnuþróun 03/02/2026

Samþykkt hefur verið að framlengja starfstímabil Svanna-lánatryggingasjóðs kvenna um fjögur ár eða til ársins 2019.

Opið er fyrir umsóknir í sjóðinn og er umsóknarfrestur að þessu sinni til 15.mars en sótt er um á nýjum vef verkefnisins.

Eingöngu fyrirtæki í eigu konu/kvenna geta fengið ábyrgðartryggingu/lán og gerð er krafa um að í verkefninu felist atvinnusköpun.

Svanni framlengdur - Heklan atvinnuþróun Samþykkt hefur verið að framlengja starfstímabil Svanna-lánatryggingasjóðs kvenna um fjögur ár eða til ársins 2019. Opið er fyrir umsóknir í sjóðinn og er umsóknarfrestur að þessu sinni til 15.mars en sótt er um á nýjum vef verkefnisins. Eingöngu fyrirtæki í eigu konu/kvenna...

29/01/2026

Fyrsta erindi ársins í fyrirlestraröð landshlutasamtakanna, Forvitnir frumkvöðlar, var haldið þann 6. janúar. Að þessu sinni var erindið sniðið að sérstakri tegund frumkvöðlastarfs þ.e. samfélagslegri nýsköpun og bar það yfirskriftina Þegar íbúar móta framtíðina: samfélagsleg nýsköpun í þágu byggðaþróunar. Af þátttökunni mátti sjá að margir létu sig málið varða en um 60 manns mættu í fundarherbergið í netheimum.
https://heklan.is/2026/01/29/forvitnir-frumkvodlar-fara-vel-af-stad/

Opið fyrir umsóknir í Byggðarannsóknarsjóð 2026 - Heklan atvinnuþróun 29/01/2026

Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun, áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála.

Umsóknarfrestur er til hádegis, 4. mars 2026 (til kl. 12:00). Byggðarannsóknasjóður hefur allt að 17,5 m.kr. til úthlutunar. Styrkir verða veittir til eins árs.
https://heklan.is/2026/01/29/opid-fyrir-umsoknir-i-byggdarannsoknarsjod-2026/

Opið fyrir umsóknir í Byggðarannsóknarsjóð 2026 - Heklan atvinnuþróun Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun, áætlanagerð og a...

Rannsóknarsjóður HS orku - Heklan atvinnuþróun 29/01/2026

Rannsóknasjóður HS Orku veitir styrki til afmarkaðra rannsóknarverkefna sem hafa skírskotun til starfsemi fyrirtækisins og/eða til sjálfbærniáherslna HS Orku. Markmið sjóðsins er að efla þekkingu innan fyrirtækisins og stuðla að framförum og nýsköpun í starfseminni.

Næsta úthlutun fer fram vorið 2026. Opið er fyrir umsóknir frá 15. janúar til 15. febrúar 2026.

Rannsóknarsjóður HS orku - Heklan atvinnuþróun Rannsóknasjóður HS Orku veitir styrki til afmarkaðra rannsóknarverkefna sem hafa skírskotun til starfsemi fyrirtækisins og/eða til sjálfbærniáherslna HS Orku. Markmið sjóðsins er að efla þekkingu innan fyrirtækisins og stuðla að framförum og nýsköpun í starfseminni.  Næsta ...

Fjármögnun sprotafyrirtækja - Heklan atvinnuþróun 29/01/2026

Nú er komið að öðrum viðburðinum í ár í fyrirlestraröðinni „Forvitnir frumkvöðlar“ sem landshlutasamtökin standa sameiginlega að. Þriðjudaginn 3. febrúar klukkan 12.00 beinum við sjónum að einu mikilvægasta en jafnframt flóknasta viðfangsefni frumkvöðla: Fjármögnun.

Fjármögnun sprotafyrirtækja - Heklan atvinnuþróun Nú er komið að öðrum viðburðinum í ár í fyrirlestraröðinni „Forvitnir frumkvöðlar“ sem landshlutasamtökin standa sameiginlega að. Þriðjudaginn 3. febrúar klukkan 12.00 beinum við sjónum að einu mikilvægasta en jafnframt flóknasta viðfangsefni frumkvöðla: Fjármögnun. ...

Tækifæri fyrir ungt fólk á Norðurslóðum: Kynningarfundur - SSS 20/01/2026

Ungmennasamtök og aðilar sem starfa með ungmennum eru hvött til að taka þátt í rafrænum kynningarfundi 21. janúar 2026 kl. 12:00 þar sem kynnt verður frekari útfærsla í tengslum við þemu kallsins, lengd verkefna, fjármögnun og umsóknarferlið.

Tækifæri fyrir ungt fólk á Norðurslóðum: Kynningarfundur - SSS Norðurslóðaáætlunin – Interreg Northern Periphery and Arctic (NPA) – hefur nú formlega opnað fyrir sitt fyrsta ungmennakall, sem miðar að því að styðja ungt fólk – 35 ára og yngra – við að þróa eigin hugmyndir og verkefni sem stuðla að sjálfbærri þróun, nýsköpun, ...

Want your business to be the top-listed Government Service in Njarðvík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Skógarbraut 945
Njarðvík
262

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
17:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
17:00 - 18:00
Wednesday 08:00 - 16:00
17:00 - 18:00
Thursday 08:00 - 16:00
17:00 - 18:00
Friday 08:00 - 16:00
17:00 - 18:00