10/09/2026
💧 Heita vatnið á Suðurnesjum í kjölfar lokunar
Í kjölfar heitavatnslokunarinnar á Suðurnesjum í gær geta viðskiptavinir orðið varir við aukna hveralykt og grugg í heita vatninu.
Hveralyktin stafar af íblöndun brennisteinsvetnis í framleiðslu vatnsins í Svartsengi. Um er að ræða tímabundna aðgerð til að bregðast við auknu súrefni í vatninu sem getur myndast í tengslum við lokun og áhleypingu hitaveitukerfisins.
Einnig er eðlilegt að vatnið geti verið gruggugt fyrst um sinn eftir umfangsmikla lokun sem þessa. Búast má við að það taki nokkra daga fyrir vatnið að verða eðlilegt á ný.
🔧 Ef vandamál koma upp
Í kjölfar lokunar og áhleypingar getur komið fyrir að síur fyllist eða þörf verði á útskolun hjá einstaka viðskiptavinum.
Ef slík vandamál koma upp hvetjum við viðskiptavini til að hafa samband við þjónustuver HS Veitna og við aðstoðum eftir þörfum.
💙 Við fylgjumst áfram með stöðunni á hitaveitukerfinu á meðan það kemst aftur í eðlilegt horf og þökkum viðskiptavinum fyrir þolinmæðina.
Hvort sem um er að ræða fyrirspurnir, athugasemdir, hrós eða skilaboð með mynd biðjum við notendur okkar endilega að hafa samband með því að fylla út formið hér að neðan.