Mikilvæg áminning frá kollegum okkar fyrir norðan.
Lögreglan á Suðurnesjum
Ef óskað er skjótrar aðstoðar lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 1-1-2. Lögreglustjóri er Úlfar Lúðvíksson.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
MARKMIÐ LÖGREGLUSTJÓRANS Á SUÐURNESJUM (LSS)
Embættið hefur þá sérstöðu að starfsemin skiptist annars vegar í hefðbundna löggæslu þar sem markmiðið er að tryggja öryggi almennings í umdæminu og hins vegar í löggæslu á alþjóðaflugvelli, þar sem markmiðið er að tryggja löggæslu gagnvart flugfarþegum og sinna landamæraeftirliti. LÖGREGLUSTJÓRINN Á SUÐURNESJUM LEGGUR
14/06/2026
Í eftirliti okkar á flughlaði Keflavíkurflugvallar í morgun voru ökumenn á fjórða tug vinnuvéla stöðvaðir. Farið var yfir vinnuvélaréttindi, ökuréttindi og ástand ökumanna.
Skemmst er frá því að segja að allir voru með sitt á hreinu og engar athugasemdir voru gerðar. Frábært!
Öryggi á vinnustöðum byrjar hjá okkur sjálfum - og var þetta til fyrirmyndar.
11/06/2026
17. júní á Suðurnesjum - skemmtun fyrir alla fjölskylduna! 🇮🇸
Þjóðhátíðardeginum verður fagnað víða á Suðurnesjum miðvikudaginn 17. júní og hvetjum við íbúa og gesti til að taka þátt í hátíðarhöldunum.
Við fórum aðeins yfir útgefna dagskrá sveitarfélaganna og settum saman:
📍 Reykjanesbær
• Kl. 12:00 hefst hátíðarguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju.
• Kl. 13:00 leggur skrúðganga af stað frá kirkjunni.
• Hátíðardagskrá í Skrúðgarðinum frá kl. 13:20.
• Fjölskylduskemmtun frá kl. 14:00-16:00 með tónlist, sirkusatriðum, hoppuköstulum, andlitsmálningu, hestateymingu og fleiru.
• Ungmennadagskrá við 88 húsið frá kl. 18:00-20:00.
📍 Suðurnesjabær
• Hátíðardagskrá hefst kl. 12:00 við Gerðaskóla.
• Boðið verður upp á fjölbreytta skemmtun, sýningar, hoppukastala, andlitsmálningu, hesta, barnalest og ýmsa fjölskylduafþreyingu.
📍 Sveitarfélagið Vogar
• Fjölskylduhátíð við Stóru-Vogaskóla frá kl. 14:00-16:00.
• Á dagskrá verða m.a. hátíðardagskrá í Tjarnarsal, hoppukastalar og afþreying fyrir börn og fjölskyldur.
🚓 Við minnum vegfarendur á að búast má við aukinni umferð og tímabundnum lokunum vegna skrúðgöngu og hátíðarhalda. Sýnum tillitssemi í umferðinni og njótum dagsins saman.
Við minnum jafnframt á að flagga íslenska fánanum í tilefni þjóðhátíðardagsins þar sem því verður við komið.
Gleðilega þjóðhátíð! 🇮🇸
09/06/2026
Samvera foreldra og barna í sumar😎
Langþráð sumarfrí grunnskóla umdæmisins er að bresta á. Þá riðlast dagleg rútína og aðhald minnkar. Af þessu tilefni langar okkur að minna á að samvera foreldra og barna er besta forvörnin. Hér má sjá nokkrar góðar hugmyndir sem foreldrar og börn geta gert saman í okkar nærsamfélagi sem kosta lítið.
✅Heimsækja allar 6 sundlaugarnar á svæðinu
✅Hjólatúr meðfram strandlengjunni frá Grófinni inn í Innri-Njarðvík
✅Heimsækja bókasafnið og leigja spil
✅Athuga með veiði í Seltjörn
✅Lautarferð á góðum stað
✅Strandferð á Garðskaga
✅Frisbígolf en 6 slíkir vellir eru á svæðinu
✅Golf á Ásbrú
✅Pútta á Mánagrund
✅Skoða brú á milli heimsálfa og fara í bíltúr um Reykjanesið
✅Fá útrás á einum af s*x ærslabelgjum á svæðinu
✅Berjamó í ágúst
Við vonum að öll grunnskólabörn njóti sumarsins.
07/06/2026
Við óskum sjómönnum öllum til hamingju með daginn þeirra ⚓️🌊🚢
05/06/2026
ÆFING -ÆFING
Til upplýsinga þá munum við verða við æfingar við Seltjörn í dag. Engin hætta er á ferðum og má búast við umferð lögreglutækja á svæðinu í dag sem og kajökum og fólki í þurrbúningum👮♂️👮🚓
03/06/2026
📣Lögreglan á Suðurnesjum hvetur fólk til að vera á varðbergi gagnvart skilaboðum af þessu tagi en þarna er svindltilraun á ferðinni:
02/06/2026
Í gær um kl 14:20 var ekið á gangandi vegfarenda á Aðalgötu við Nettó í Reykjanesbæ. Ökumaður ók í burtu án þess að huga að þeim sem ekið var á, en sá slasaðist nokkuð á hendi. Við leitum að vitnum að þessu óhappi sem og biðlum til þeirra sem hugsanlega gætu verið með myndavélar sem ná yfir svæðið að vera í sambandi við okkur.
Konan sem lýst var eftir í kvöld er fundin. Frekari upplýsingar verða ekki veittar.
26/05/2026
📢 Prófanir á rýmingarflautum í Grindavík og Svartsengi
Á miðvikudaginn næstkomandi, þann 27. maí 2026 kl. 11:00, verður fyrirhuguð prófun á rýmingarflautum í Grindavík og Svartsengi.
Þetta er reglubundin prófun til að tryggja virkni búnaðar.
⚠️ ATHUGIÐ:
Flauturnar munu hjóma tvisvar:
1️⃣ Fyrst með fjarræsingu
2️⃣ Síðan aftur með handræsingu
Þetta er eingöngu prófun og engar aðgerðir eru nauðsynlegar.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Brekkustígur 39
Njarðvík
260
