02/06/2026
Sumarið er mætt og útiverkin fara að hefjast 💪🏼
Fylgstu með endurbótum á Gamla spítalanum á Patreksfirði sem byggður var árið 1901. Timburhús teiknað af Sigurði Magnússyni héraðslækni og smið.
02/06/2026
Sumarið er mætt og útiverkin fara að hefjast 💪🏼
10/05/2026
Allar flísar loksins komnar á sinn stað 👏🏼
26/04/2026
Flísalögnin í kjallarabaðherberginu farin að taka á sig smá mynd 💦
23/12/2025
Okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð 🎄Við fengum þetta fallega líkan af húsinu af gjöf nú í desember. Ótrúlega flott og vönduð smíði hjá Birni Finnbogasyni 🥰
22/12/2025
Gamli spítalinn kominn í jólafötin🎄
06/12/2025
Áfram halda framkvæmdir í kjallaranum og komið að því að klæða á milli bitanna í loftinu. Þegar hafa farið nokkuð margar klukkustundir í loftið og enn fleiri fóru í að koma einangrun, listum og loftadúk á milli allra bitanna. Sumsstaðar var plássið fyrir rafmagn, einangrun og dúkinn af mjög skornum skammti. Það voru 20 rammar klæddir, svo handtökin voru mörg. Við fengum góða aðstoð frá Unnsteini vini okkar við að koma loftinu saman. Við erum ánægð með útkomuna og gaman að sjá gömlu bitana njóta sín og heildarmyndin á kjallaranum birtast.
23/11/2025
Það hafa verið langir dagar í kjallaranum síðustu vikur og loksins eru fyrstu nýju gólfefnin komin í Gamla spítala. Við vorum lengi að finna réttu flísarnar á kjallarann en það tókst seinni partinn í sumar að finna háglans Aosta Green marmara flísar 60x60. Svo tók við biðin að fá flísarnar frá Ítalíu og til landsins. Það þurfti svo að klára að sprauta bitana í loftinu og klára málningarvinnu áður en hægt var að flota gólfin og byrja að leggja. Stjáni vinur okkar kom svo í nokkra daga og aðstoðaði okkur við að koma flísunum niður. Við tók svo að fúa á milli flísanna, þrífa, kítta og klára málningarvinnuna. Við erum gríðarlega ánægð með útkomuna og það styttist í að hægt verði að klæða á milli bitanna og klára loftið, en meira af því síðar.
13/10/2025
Þótt búið sé að opna næstum alla veggi í húsinu þá eru ennþá nokkrir staðir eftir og einn þeirra var við stigaopið úr gamla eldhúsinu og niður í kjallarann. Undir forskalningunni kom í ljós hluti af gamla panelnum í stigahúsinu ásamt gömlum rafmagnsrörum og dósum. Ýmislegt sem þessir gömlu veggir hafa að geyma og mikið væri nú gaman ef þeir gætu líka sagt frá ☺️
04/09/2025
Tröppurnar upp í garðinn steyptar í dag 👏🏼
29/06/2025
Grasið allt að koma til 🤩