Björgunarsveitin Pólstjarnan Raufarhöfn

Björgunarsveitin Pólstjarnan Raufarhöfn

Share

Hægt er að leggja björgunarsveitinni lið með beinum hætti
0179-26-4984, kt. 610191-2159

Photos from Björgunarsveitin Pólstjarnan Raufarhöfn's post 06/06/2026

Frábær sjómannadagur á Raufarhöfn. Þökkum öllum sem komu í sjóferð, leiki og grill. Til hamingju með daginn, sjómenn ❤️
Myndir: Gunnur Árnadóttir

02/06/2026

Hér er mynd af afhendingu styrkja sem sparisjóður Þingeyinga veitti til unglingastarf og er okkar fulltrúi Björn Grétar Ríkharðsson þarna en því miður ekki í peysu merkta sveitinni, en nú er orðin breyting á þvi

30/05/2026

Sjómannadags húllum hææææ !
🛟 Sigling verður stundvíslega kl 13:00
💪 Dagskrá hefst að lokinni siglingu
Mætum öll, höfum gaman og tökum þátt 😃
sipp og hojjj, sipp og hojjj ⚓️⚓️
kveðja
Björgunarsveitin Pólstjarnan

14/05/2026

Kosningakaffi !

Laugardaginn 16 mai næstkomandi ætlar björgunarsveitin að selja kaffi í Félagsheimilið Hnitbjörg. Raufarhöfn frá kl. 15:00-18:00.

Hlaðborð m/kaffi. 2000 kr.
Posi á staðnum.

Allir velkomnir hlökkum til að sjá sem flesta.

12/05/2026

Áttum góða stund saman á félagsfundi í gær yfir dýrindis sveppasúpu í boði Félagans Bar, sem einnig lánaði okkur félagsheimilið fyrir fundinn. kærar þakkir fyrir okkur.

Fundurinn var vel heppnaður og ánægjulegt að sjá góða mætingu og umræður um verkefnin framundan. Nokkrir nýjir félagar bættust í hópinn og erum við virkilega spennt fyrir komandi tímum og áframhaldandi uppbyggingu sveitarinnar.

Það er ennþá hægt að vera með í fatapöntuninni sem verður send síðar í vikunni fyrir þá sem hafa áhuga.

Bestu kveðjur
Pólstjarnan

04/05/2026

Ath önnur dagsetning en tilkynnt var á bingóinu...

Photos from Björgunarsveitin Pólstjarnan Raufarhöfn's post 01/05/2026

Björgunarsveitin Pólstjarnan hélt glæsilegt 1. maí bingó í dag þar sem um 80 manns mættu og nutu samverunnar. Stemningin var einstaklega góð, vöfflurnar runnu ljúflega niður og gleðin var allsráðandi frá upphafi til enda.

Bingóstjórar dagsins, Árdís og Þorgeir, stóðu sig með prýði og héldu fjörinu gangandi, en Einar sá um sölu bingóspjalda auk þess að rétta hjálparhönd í eldhúsinu þar sem Kolla, Begga og Gísli héldu uppi frábærri þjónustu.

Spilaðar voru 14 umferðir með stórglæsilegum vinningum sem safnaðist höfðu frá 27 fyrirtækjum og einstaklingum. Við erum afar þakklát fyrir þann mikla stuðning sem okkur er sýndur – án ykkar væri þetta ekki mögulegt.

Við þökkum öllum sem mættu kærlega fyrir komuna og stuðninginn. Svona viðburðir styrkja samfélagið og minna okkur á hvað samheldnin skiptir miklu máli.

Takk fyrir okkur 💙

29/04/2026

Þessi frábæru fyrirtæki styrkja Pólstjörnuna með glæsilegum vinningum á bingóinu. Posi á staðnum. Hlökkum tli að sjá ykkur í sólskinsskapi 🌞

04/01/2026

Endilega kíkið við og kveðjið jólin með nokkrum sprengjum🎉🎊

31/12/2025

Sjáumst kl 21:00 á Höfðaum í kvöld ❤️

Want your business to be the top-listed Government Service in Raufarhöfn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Raufarhöfn
675