23/05/2026
Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa undirritað nýjan meirihlutasamning fyrir Fjarðabyggð til næstu fjögurra ára.
Samstarf flokkanna síðustu ár hefur gengið afar vel og byggst á trausti, ábyrgð og sameiginlegri sýn um áframhaldandi sókn sveitarfélagsins. Það var því sameiginlegt mat flokkanna að farsælast væri að halda samstarfinu áfram.
Jóna Árný Þórðardóttir verður jafnframt endurráðin sem bæjarstjóri
Framundan eru stór verkefni í atvinnuuppbyggingu, innviðum, íþrótta- og æskulýðsmálum og áframhaldandi ábyrgri fjármálastjórn með það að markmiði að halda álögum lágum og styrkja þjónustu við íbúa.
Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og þökkum bæjarbúum fyrir það traust sem okkur hefur verið sýnt.
Frétt í fyrstu athugasemd.

22/05/2026
18/05/2026
17/05/2026
16/05/2026
15/05/2026