22/03/2026
Við vorum að leggja smá spor á íþróttavellinum og liggja svo yfir á Tjaldsvæði
Endilega nýtið þetta ef þið getið
Þeir sem hafa áhuga á styrkja okkur er reikningurinn 0151-26-1100
5202881049
22/03/2026
Við vorum að leggja smá spor á íþróttavellinum og liggja svo yfir á Tjaldsvæði
Endilega nýtið þetta ef þið getið
14/03/2026
Fyrsta alvöru prófraunin fyrir B1-Tundru.
Félagi okkar fór í útkall í gær, að sækja gönguskíðafólk á suðaustan verðan Hofsjökul.
Farið var úr Reykholti um 09:00 og farið var upp framhjá virkjunum á Þjórsársvæðinu inná Sprengisand og áfram inní Þjórsárver. Eftir Kvíslárveitulón þyngdist verulega færið og þarna fékk bifreiðin að kenna á því. 5pund og lágigírinn upp að jökli. Skemmst er frá því að segja að allt virkaði og engar festur. G*t einnig aðstoðað félaga okkar, fengum því bæði að prófa spil og spottadrátt.
Kom heill heim þó þreyta hafi verið komin í okkar félaga enda um 12 tíma verkefni
Takk fyrir lánið á "co-ara" Björgunarfélagið Eyvindur
24/02/2026
Fórum á frábæra tækjasýningu í gær hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar sem var skipulögð af sveitum á svæði 1 (Höfuðborgarsvæðinu)
Lukkaðist einstalega vel og gaman að sýna og sjá alla flóruna sem komið hefur inní tækjaflotan okkar í Björgunarsveitum landsins.
Flugeldasala Björgunarsveitar Biskupstungna 🎆
Flugeldasala fer fram í dag frá kl. 17–20
📍 Í húsi Björgunarsveitar Biskupstungna
Komdu og tryggðu þér glæsilega flugelda og styrktu um leið mikilvægt starf björgunarsveitarinnar 💙
Fjölbreytt úrval og góð stemning!
Við hlökkum til að sjá þig!
31/12/2025
31/12/2025
Hér má sjá heppna krakka í keppninni varðandi litun á mynd af nýja björgunarsveitarbílnum hjá Björgunarsveit Biskupstungna 🤗
29/12/2025
A.T.H klukkan 11:30 á gamlársdag verður dregin mynd uppúr kassanum góða og þá kemur vinningshafinn í ljós 🤗 svo í framhaldi verður haft samband við þann aðila því er nauðsynlegt að merkja mynd með nafni og símanúmeri.😊
26/12/2025
🎨🚒 Litakeppni Björgunarsveitar Biskupstungna! 🚒🎨
Krakkar! Litið mynd af nýja björgunasveitarbílnum, skilið myndinni til okkar og takið þátt í leik 🎁
Flott verðlaun í boði!
Leyfið litunum að njóta sín – við hlökkum til að sjá listaverkin 🌈🖍️ þau sem ekki geta prentað út myndina heima geta komið til okkar í björgunarsveitarhúsið og fengið mynd.
Við ætlum að henda í smá leik fyrir börnin núna fyrir áramótin 🤗 hann verður kynntur seinna.🤭 gott að hafa tréliti við höndina.😉
23/12/2025
Flugeldasala Björgunarsveitar Biskupstungna
Í Húsi okkar – Bjarkarbraut 2
Afgreiðslutími
28.desember 16:00-22:00
29.desember 16:00-22:00
30.desember 13:00-22:00
31.desember 10:00-16:00
Styðið starf Björgunarsveitanna
29/11/2025
Tveir úr flokki Biskups fóru á glæsilega kynningu hjá Fjöltak í Grindavík. Þar voru komin glæsileg tæki sem þau hafa verið að vinna í, í vinnslu eða lokið. Þar á meðal var okkar nýjasta tæki, Tundra, sem vakti mikla lukku og forvitni manna og kvenna. 😎🤟🏻 Takk fyrir okkur ☺️