Skólasafn Laugarnesskóla

Skólasafn Laugarnesskóla

Share

Þetta er upplýsingasíða fyrir skólasafnið í Laugarnesskóla. Hún er ætluð foreldrum og starfsfólki skólans.

23/04/2026

Gleðilegt sumar… alþjóðlegi dagur bókarinnar er í dag 23. apríl. Þessi dagur, sem UNESCO stendur fyrir, er helgaður lestri, bókaútgáfu og höfundarrétti.
Sumarlestur er bestur… 🫶

Photos from Skólasafn Laugarnesskóla's post 19/04/2026

Menntabúðir
Á morgun mánudag kl. 14:00-16:00 verða menntabúðir í Sögu þar sem þemað verður læsi, tækni og skapandi starf.
Skólasafn Laugarnesskóla verður þar með bás þar sem bókaklúbbar skólabókasafnsins verða kynntir… og þar sem Laugarnesskóli er regnbogavottaður skóli þar sem við öll fáum að vera við sjálf ætla ég að bjóða gestum og gangandi 🏳️‍🌈bókamerki í tilefni dagsins…

11/02/2026

Er kominn tími á tiltekt í unglingaherberginu?
Nú er í bígerð að setja á laggirnar Kaftein ofurbrók bókaklúbb og því langar okkur að kanna hvort einhverjir hér eigi eintök af bókum um kafteininn og vilja losa sig við þær.
Ef svo er eru þær mjög vel þegnar hér á bókasafninu :-)

Photos from Skólasafn Laugarnesskóla's post 24/12/2025

24. desember
Með bókinni Heims um ból lýkur jólabókadagatali skólasafns Laugarnesdkóla.
Með ósk gleðilegra jóla, farsællegs nýja árs, og allra góðra heillastunda.

Heims um ból - Saga lags og ljóðs
(Leiftur, 1945)
Hertha Pauli er höfundur og Fritz Kedel myndskreytti.
Freysteinn Gunnarsson skólastjóri Kennaraskóla Íslands þýddi bókina.
Bókin kom fyrst út í New York 1943 þegar 125 ár voru liðin frá því að sálmurinn og lagið varð til.
Hvernig verður eitt einfalt lag að sameiginlegri jólabæn heimsins? Heims um ból segir áhrifaríka sögu jólalagsins sem fæddist í kyrrð og breiddist út yfir lönd og kynslóðir.
Til gamans fylgja myndir af upprunalegu bókarkápunni og ein litmynd ásamt nokkrum blaðsíðum úr íslensku útgáfunni.

Photos from Skólasafn Laugarnesskóla's post 23/12/2025

23. desember

Glatt á hjalla - barnakvæði með teikningum eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur
(Heimskringla, 1960)
Böðvar Guðlaugsson höfundur og Sigrún Guðjónsdóttir myndskreytti.
Í viðtali í dagblaðinu Tímanum í apríl 1974 segir höfundur m.a. “Það kom meira að segja út eftir mig kver með barnakvæðum eingöngu og hét sú bók Glatt á hjalla. Hún var myndskreytt með teikningum eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur listmálara. Það er skemmst af þessum myndum að segja, að þær eru framúrskarandi góðar, enda áttu þær áreiðanlega mikinn þátt i því að afla bókinni vinsælda hjá ungu kynslóðinni.”
Í bókinni eru 5 kvæði.

Photos from Skólasafn Laugarnesskóla's post 22/12/2025

22. desember

Jólabókin - 1947
(Helgafell, 1947)
Sigurjón Jónsson læknir sá um útgáfuna (bjó til prentunar) og Halldór Pétursson myndskreytti.
Þessi bók er hluti af seríu sem kom út vegum útgáfunnar Helgafell og inniheldur blöndu af kvæðum, sögum og fróðleik sem átti að stytta börnum stundir á jólunum.

Photos from Skólasafn Laugarnesskóla's post 21/12/2025

21. desember

Jólavísur
(Hlaðbúð, 1949)
Höfundur Ragnar Jóhannesson og myndir eftir Halldór Pétursson.
Í minningargrein um Ragnar Jóhannesson frá nóvember 1976 stendur þetta m.a.:
“En áreiðanlega hefur ekkert verka hans notið annarra eins vinsælda og „Jólavísur", sem út komu 1949, prýddar teikningum eftir Halldór Pétursson. Má segja að vísur þessar hafi þegar átt hug og hjarta hvers einasta barns i landinu, enda er það svo, að enn þann dag i dag er ekki haldin jólatrésskemmtun án þess að vísur þessar séu sungnar frá upphafi
til enda.”

Photos from Skólasafn Laugarnesskóla's post 20/12/2025

20. desember

Jólasveinaríkið
(Bókaútgáfan Snæfell, 1960)
Estrid Ott höfundur, Jóhann Þorsteinsson endursagði og íslenskaði og Bjarni Jónsson myndskreytti og gerði káputeikningu.
Í dagblaðinu Tíminn í desember 1960 segir: “Sænski rithöfundurinn Estrid Ott er einn kunnasti barnabókahöfundur á Norðurlöndum. Hún hefur skrifað fjöldann allan af barnabókum, og hafa margar þeirra orðið mjög vinsælar. Ein
þeirra, Jólasveinarikið, sem hér birtist i islenskri þýðingu, er viðburðarík og skemmtileg bók. Óli, aðalpersóna bókarinnar, er ekki nema sjö ára gamall. Hann dvelur með álfum i draumum sínum ,kynnist lífi þeirra og daglegum störfum og lendir i fjölmörgum ævintýrum i ríki jólasveinanna. Petta er kjörin bók fyrir börn a aldrinum 6—10 ára.”

Photos from Skólasafn Laugarnesskóla's post 19/12/2025

19. desember

Jólasálmar - Heims um ból helg eru jól
(Hörpuútgáfan, 1970)
Séra Jón M. Guðjónsson valdi sálmana og gerði káputeikningu.
Gyða L. Jónsdóttir teiknaði myndirnar í bókinni.
Í þessari bók má finna 15 jólasálma sem flestir þekkja eftir 10 höfunda… jólasálmar sem hafa fylgt ungum sem öldnum í kirkjum, heimahúsum og skólum… og margir þeirra sungnir í morgunsöng Laugarnesskóla í aðdraganda jólanna í 90 ár.

Photos from Skólasafn Laugarnesskóla's post 18/12/2025

18. desember

Jólasögur frá ýmsum löndum
(Bókaútgáfan Fróði, 1961)
Sigurður Gunnarsson skrifar eftirfarandi grein í dagblaðið Dag í desember 1962:
“Eiríkur Sigurðsson skólastjóri á Akureyri, er snjall og mikilvirkur rithöfundur. Hef
ég oft undrast og dáðst að því í senn, hve hann og fleiri, sem erilsömum og þreytandi störfum sinna, eru afkastamiklir höfundar. Mun Eiríkur þegar hafa sent frá sér rétt um 20 bækur, sem ýmist eru frumsamdar eða
þýddar, flestar fyrir börn og
unglinga. Og nafn þessa kunna skólamanns er örugg trygging
fyrir því, aõ lesefni það, sem
hann sendir börnum og unglingum, er hollt og þroskavænlegt.
Eiríkur sendi frá sér í fyrravetur einkar
hugðnæma bók, sem ég vildi leyía mér að vekja athygli foreldra á. Þetta er bókin „Jólasögur frá ýmsum löndum" — frumsamdar og þýddar jóla- og helgisögur, hver annarri fegurri og eftirtektarverðari. İ síðari hluta bókarinnar eru auk þess barnasögur og ævintýri almenns efnis og eykur það að sjálfsögöu fjölbreytni hennar.
Þar sem jólin eru nú aõ nálgast og margir foreldrar hyggja til bókakaupa fyrir börn sín, vildi ég benda þeim á, að vandfundið mun fegurra og hollara lesefni þeim til handa en Jólasögur Eiríks. Fróði hefur gefið bókina út af mikilli smekkvisi. Teikningar eru eftir Ragnhildi Ólafsdóttur.”

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Kirkjuteigi 24
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 08:00 - 14:10
Tuesday 08:00 - 14:10
Wednesday 08:00 - 14:10
Thursday 08:00 - 14:10
Friday 08:00 - 10:00