22/05/2026
Í gær var þess minnst að árið 1976 útskrifuðust í fyrsta sinn fjórar lögreglukonur frá Lögregluskóla ríkisins og hófu störf í almennri lögreglu.
Við athöfnina voru þrjár þessara brautryðjenda viðstaddar, Arnþrúður Karlsdóttir, Björg Jóhannesdóttir og Katrín Þorkelsdóttir, og þeim færðar þakkir fyrir framlag sitt til íslenskrar löggæslu. Jafnframt var fjórðu konunnar minnst, Dóru Hlínar Ingólfsdóttur, með virðingu og þakklæti, en hún er látin.
Saga lögreglukvenna á Íslandi er bæði löng og merkileg. Hún lýsir þrautseigju, fagmennsku og vilja til að ryðja brautina þar sem áður höfðu staðið hindranir. Þær konur sem við heiðruðum í gær stigu fram á tímum þegar það var alls ekki sjálfgefið að konur gegndu lögreglutörfum á sama vettvangi og karlar.
Með störfum sínum og framgöngu sýndu þær að hæfni, dómgreind og þjónustulund ráðast ekki af kyni heldur karakter, menntun og heilindum. Eru þeim innilegar þakkir færðar fyrir framlag sitt til íslenskrar löggæslu.
15/05/2026
Alls uppfylltu 189 umsækjendur um nám í lögreglufræði almenn skilyrði námsins og voru boðaðir til þátttöku í fyrri hluta inntökuprófa.
Prófin eru byggð upp á þrek- og styrktarprófum, skriflegu frásagnarverkefni og sálfræðiprófum.
Af þeim 189 sem sóttu um og voru boðaðir til prófa mættu 146 umsækjendur. Alls stóðust 92 umsækjendur þann hluta ferlisins, meðalaldur þeirra er tæplega 25 ár og eru konur um 35 prósent og karlar um 65 prósent.
Nú stendur síðari hluti inntökuferlisins yfir.
🔗👇
13/05/2026
Í dag kom út skýrsla starfshóps sérfræðinga um ytri rýni vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga.
Í skýrslunni kemur meðal annars fram að viðbrögð við jarðhræringunum hafi verið eitt stærsta og flóknasta almannavarnaverkefni sem íslenskt samfélag hefur staðið frammi fyrir á síðari tímum, þar sem reynt hafi á samhæfingu, úthald og faglega getu viðbragðsaðila við síbreytilegar og krefjandi aðstæður.
Fréttatilkynningu ríkislögreglustjóra vegna skýrslunnar má finna hér að neðan 👇
Skýrsla starfshóps um ytri rýni vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga | Lögreglan
Í dag kom út skýrsla starfshóps sérfræðinga um ytri rýni vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga.
08/05/2026
Fulltrúar Norðurlandanna í stjórnarborði Frontex komu saman í húsakynnum ríkislögreglustjóra í vikunni.
Frontex gegnir lykilhlutverki í öryggi ytri landamæra Evrópu, meðal annars með áhættugreiningum og stuðningi við heimferðir og fylgdir.
29/04/2026
Eitt ár af OTF GRIMM sem Ísland er sterkur samstarfsaðili að.
Samstarfið er rekið af Europol og snýr að rannsóknum tengdum ofbeldis þjónustu (e. Violence as a service) og berst gegn vaxandi notkun dulkóðaðra forrita sem að skipuleggja ofbeldi um alla Evrópu.
Á einu ári:
🔹 280 handtökur
🔹 6 high-value eftirlýstir einstaklingar handsamaðir
🔹 Yfir 14.000 reikningar auðkenndir
Nú hefur verið birt vefsíða með eftirlýstum einstaklingum, sjá slóð í athugasemdum👇
OTF GRIMM one-year anniversary: violence-as-a-service targets published on EU Most Wanted – 280 arrests in one year as Europe targets the architects of violence-as-a-service | Europol
As the Operational Taskforce (OTF) GRIMM marks its first year of activity, high-value targets linked to ongoing investigations are being published on the EU Most Wanted website. The publication aims to intensify efforts to locate and arrest some of the most dangerous fugitives involved in violence-a...
24/04/2026
Guðmundur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn og Hlynur Gíslason, lögreglufulltrúi hjá mennta‑ og starfsþróunarsetri ríkislögreglustjóra, ræddu þjálfun lögreglumanna, m.a. í tengslum við forgangsakstur í Dagmálum í vikunni.
🚓👇
Hugsa fyrst og síðast um öryggi almennings
Aðgerðir lögreglu í návígi við almenning eru viðfangsefni Dagmála. Guðmundur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn og Hlynur Gíslason, lögreglufulltrúi hjá mennta‑ og starfsþróunarsetri lögreglu, útskýrðu m.a. hvernig lögreglumönnum er kennt að vinna á vettvangi og hva...
21/04/2026
Halla Bergþóra ræddi við blaðamann Morgunblaðsins um nýja starfið í gær
👇
Fékk lögreglubakteríuna fyrir norðan
Halla Bergþóra Björnsdóttir hóf í gær störf sem ríkislögreglustjóri eftir að hafa verið skipuð í stöðuna til næstu fimm ára af dómsmálaráðherra. Hún tekur við starfinu af Sigríði Björk Guðjónsdóttur en áður gegndi Halla Bergþóra stöðu lögreglustjóra höfuðborg...
20/04/2026
Halla Bergþóra Björnsdóttir hefur tekið við starfi ríkislögreglustjóra. Kristín Alda Jónsdóttir, yfirlögfræðingur og staðgengill ríkislögreglustjóra, tók á móti henni á þessum fallega degi.
Embættið býður Höllu Bergþóru velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins.
🔗👇
15/04/2026
Sérhópar sérsveitar ríkislögreglustjóra fengu að vera með æfingadag í gamla kísilverinu í Helguvík síðustu viku en nú stendur yfir niðurrif á því.
Hóparnir sem tóku þátt sérhæfa sig meðal annars í bráðahjálp, sigi og klifri, auk gas- og roftækni. Á æfingunni var unnt að skapa krefjandi og raunhæfar vinnuaðstæður sem reyndu verulega á þekkingu og færni sérsveitarmanna.
Sérsveitin þakkar forsvarsmönnun kísilversins kærlega fyrir lánið á aðstöðunni.
15/04/2026
Tölfræði yfir starfsemi heimferða- og fylgdadeildar ríkislögreglustjóra fyrir fyrsta ársfjórðung hefur verið birt á vef lögreglu.
Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 fylgdi heimferða- og fylgdadeild (HOF) alls 91 einstaklingum brott af landinu, þar af voru 43 mál vegna ólögmætrar dvalar og 25 vegna sakaferils, fangaflutnings eða framsals.
🔗👇
Fyrstu þrír mánuðir ársins hjá heimferða- og fylgdadeild | Lögreglan
Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 fylgdi heimferða- og fylgdadeild (HOF) alls 91 einstaklingum brott af landinu, þar af voru 43 mál vegna ólögmætrar dvalar og 25 vegna sakaferils, fangaflutnings eða framsals.