23/11/2025
Takk fyrir komuna! ✨
Í vikunni fór fram sameiginlegur fundur Verkalýðsmálaráðs og Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar um stöðu kynjajafnréttis á Íslandi í tilefni Kvennaársins.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Steinunn Bragadóttir fóru yfir nýjustu kyngreindu tölfræðina - um atvinnuþátttöku, laun, áhrif barneigna, stöðu kvenna á vinnumarkaði og kynbundið ofbeldi. Tölfræðin sýnir skýrt að kynjamunur birtist á mörgum sviðum samfélagsins, allt frá leikskólamálum til lífeyris.
Í umræðunum ræddu kjörnir fulltrúar - Heiða Björg Hilmisdóttir og Víðir Reynisson - meðal annars framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum sem nú liggur fyrir þinginu og mikilvægi þess að meta virði kvennastarfa með sanngjörnum hætti - sérstaklega í opinberri þjónustu þar sem stór hluti kvenna starfar.
Fundurinn undirstrikaði að verkefnin eru mörg og að mikilvægt er að halda áfram markvissri jafnréttisbaráttu.
Takk öll fyrir að taka þátt!
28/10/2025
❄️❄️ AFLÝST ❄️❄️
🟠 Vegna appelsínugulrar veðurviðvaranar er fundinum dag frestað. Hann verður haldinn þann 20. nóvember næstkomandi.🟠
23/10/2025
Á morgun leggjum við niður störf.
Konur og kvár um allt land sameinast í kvennaverkfalli – eins og 1975.
Því enn er verk að vinna 💪
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar hvetur konur og kvár um land allt til að leggja niður störf og taka þátt í baráttufundum og viðburðum sem fram fara víðsvegar um landið.
Við mætum þar til við þurfum ekki að mæta lengur.
07/09/2025
✨ Takk fyrir frábært kvöld!
Partý Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar var fullt af krafti, gleði og samstöðu. Við fögnuðum saman, styrktum tengslin og fórum heim fullar af orku í verkefnin framundan 💪🌹
05/09/2025
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar tekur þátt í viðburðinum Þjóð gegn þjóðarmorði sem fer fram víðsvegar um land á morgun, laugardag, kl. 14:00.
Við hvetjum allar Samfylkingarkonur til að mæta og sýna að við stöndum við með palestínsku þjóðinni gegn grimmilegum hernaði Ísraelshers.
📍 Viðburðirnir hefjast kl. 14:00 og fara fram á Ísafirði, Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum, Stykkishólmi og Reykjavík.
26/08/2025
Við höfum margar ástæður til að fagna saman 🎉 Komdu í partý og styrkjum tengslin og samstöðuna!