22/04/2026
Frumkvæðiseftirliti GEV á meðferðarheimilum BOFS lokið.
Frumkvæðisathugun GEV á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu | Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
GEV hefur lokið við frumkvæðisathugun á gæðum þjónustu meðferðarheimila Barna- og fjölskyldustofu sem hófst í maí 2024.
27/03/2026
Frumkvæðisathugun GEV á málavinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar á málavinnslu vistunar barna utan heimilis, er lokið.
Athugun á málavinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar er lokið | Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
GEV hefur lokið við frumkvæðisathugun á málavinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vistun barna utan heimilis.
13/03/2026
Í samræmi við vilja ríkisstjórnarinnar um að skoða hvernig eftirliti með fósturbörnum er háttað á Íslandi í dag hefur GEV hafið frumkvæðisathugun - að beiðni FRN - meðal allra barnaverndarþjónusta á Íslandi. Kannað verður hvort barnaverndarþjónustur landsins hafi uppfyllt eftirlitsskyldur sínar með fósturheimilum. Lögð er áhersla á að athugunin nái til allra barna og ungmenna sem eru í fóstri í dag, en þau eru á fimmta hundrað talsins. Ráðuneytið hefur óskað eftir að niðurstöður liggi fyrir um þremur mánuðum eftir upphaf athugunar.
Athugun GEV á eftirliti barnaverndarþjónusta vegna barna í fóstri er hafin | Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) hefur að beiðni Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins stofnað til frumkvæðisathugunar á eftirliti barnaverndarþjónusta með börnum í fóstri.
19/02/2026
Öll börn á Íslandi eiga að njóta réttinda, öryggis og umhyggju í samræmi við aldur sinn og þroska og okkar hlutverk hjá GEV er að standa vörð um það í nútímanum. Barnaverndarþjónustur sveitarfélaganna bera ábyrgð á eftirliti með fósturheimilum. GEV hefur svo eftirlit með barnaverndarþjónustum og gefur út rekstrarleyfi til fósturforeldra. Í dag erum við því með innra eftirlit sveitarfélaga og ytra eftirlit GEV. Kerfið er því þannig að það á að tryggja tvöfalda vörn svo að ekkert barn á að þurfa að detta milli skips og bryggju. Því er mikilvægt að koma öllum tilkynningum um brotalamir til GEV.
Fleira þarf til en aukið fjármagn til að vernda börn - RÚV.is
Forstjóri gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála segir það þyngra en tárum taki að börn sem eru í viðkvæmri stöðu skuli þurfa að þola ofbeldi. Aukið fjármagn í málaflokkinn myndi hjálpa við að leysa vandann, en fleira þarf til.
04/02/2026
Við hjá GEV viljum ítreka og benda á að fólk má hafa samband við okkur hafi það áhyggjur af þjónustu við börn á fósturheimili. Mikilvægt er að senda formlega inn tilkynningar til okkar svo við getum kannað mál og brugðist við hratt og faglega.
Vísar á bug að stofnunin hafi sýnt sinnuleysi í málum fósturbarna - RÚV.is
Forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála vísar á bug að stofnunin viðhafi og hafi sýnt sinnuleysi í málum fósturbarna. Hún harmar upplifun formanns Félags fósturforeldra af stofnuninni, sem kom fram í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2.
30/12/2025
Á R S S K Ý R S L A G E V 2 0 2 4
..
..
Ársskýrsla 2024 er komin út | Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
Ársskýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála fyrir árið 2024 er komin út.
22/12/2025
J Ó L A K V E Ð J A F R Á G E V
14/11/2025
https://island.is/s/gev/frett/fyrri-fasa-athugunar-gev-a-busetuurraedum-fyrir-fullordid-fatlad-folk-er
..
GEV telur brýnt að sveitarfélögin setji sér fræðsluáætlanir fyrir starfsfólk sem starfar í þjónustu við fatlað fólk og útbúi viðbraðgsáætlanir fyrir tilfelli þar sem grunur vaknar um ofbeldi í garð þjónustunotenda og þekki til þeirrar tilkynningaskyldu sem gildir í málflokknum.
Fyrri fasa athugunar GEV á búsetuúrræðum fyrir fullorðið fatlað fólk er lokið | Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
Í apríl 2024 hóf GEV frumkvæðisathugun á búsetuúrræðum fyrir fullorðið fatlað fólk sem nær til allra sveitarfélaga landsins.
08/11/2025
Skýra þarf verkferla til að tryggja öryggi og gæði í þjónustu við börn - til að fyrirbyggja alvarleg atvik sem valdið geta skaða.
Óljóst er hvort kveikjarinn var eign meðferðarheimilisins, en ekki var hægt að útiloka það vegna þess hve verklag var óskýrt.
07/11/2025
Þær Berglind Hermannsdóttir, lögfræðingur í fagteymi barnaverndarþjónustu og Guðrún Svala Gísladóttir, sérfræðingur í fagteymi félagsþjónustu kynntu hlutverk og helstu verkefni GEV á starfsdegi velferðarsviðs Reykjanesbæjar þann 6. nóvember 2025.
07/11/2025
GEV hefur nú lokið við rannsókn á alvarlegu óvæntu atviki sem átti sér stað á Bjargey, meðferðarheimili fyrir börn.
https://island.is/s/gev/frett/rannsokn-a-alvarlegu-ovaentu-atviki-a-bjargey-er-lokid