Stofan ber ábyrgð á heildarkynningu Reykjavíkur á sviði ferðamála innanlands og utan og leiðir markaðssamstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Höfuðborgarstofa tók til starfa í ársbyrjun 2003 og heyrir undir Menningar og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar. Vöxtur í ferðaþjónustu hefur verið mikill undanfarin ár og hefur stofan unnið stöðugt og markvisst að því að skilgreina sóknarfæri og styrkleika Reykjavíkur á sviði ferðamála, m.a. með því að samþætta nýsköpun, vöruþróun, markaðssetningu og stjórnun ferðamála. Stofan leiðir einnig samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um markaðssetningu á svæðinu gagnvart erlendum ferðamönnum undir sameiginlegu vörumerki Reykjavíkur, vinnur náið með Íslandsstofu og heldur utan um samstarf borgarinnar við samtök hagaðila í ferða- og þjónustugeiranum. Megináhersla í starfi stofunnar er mörkun og markaðssetning á áfangastaðnum, enda eykur sterk ímynd og vitund um áfangastað samkeppnishæfni borga, fyrirtækja og hagaðila. Leiðarljós Höfuðborgarstofu, sem byggir á ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar (2020 - 2025), er að Reykjavík verði þekkt sem sjálfstæður áfangastaður og mikilvægur þáttur í ákvörðun margra erlendra gesta um Íslandsferð. Markmið hennar er að borgin sé eftirsótt allt árið um kring, af erlendum sem innlendum gestum, og að íbúar hennar njóti alls þess sem borgin hefur upp á að bjóða. Svæðið er kynnt á öflugan hátt þannig að íbúar og gestir fái notið þeirrar menningar, afþreyingar, upplifunar og þjónustu sem í boði er. Í því samhengi er sérstaða borgarinnar sem lifandi og framsækinnar menningarborgar, umvafinni einstakri náttúru dregin fram. Ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar má lesa í heild sinni inni á vef Reykjavíkurborgar
https://reykjavik.is/sites/default/files/samthykkt_ferdamalastefna_reykjavikurborgar_2020-2025.pdf