11/05/2026
Mikilvægt er að umfjöllun um loftslagsmál grundvallist á staðreyndum. Hér gefur að líta nokkur staðreyndaskjöl um samfélagslosun á Íslandi. Skjölin sýna magn og þróun losunar á mikilvægum sviðum þjóðlífsins, á hnitmiðaðan og samræmdan hátt.
Staðreyndaskjöl - Loftslagsráð
STAÐREYNDA-SKJÖL Álit ráðsins Mikilvægt er að umfjöllun um loftslagsmál grundvallist á staðreyndum. Markmið sem sett eru um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og tilheyrandi aðgerðaráætlanir þurfa að grundvallast á skýrri vitneskju um magn losunar frá ólíkum sviðum s...
05/05/2026
Loftslagsráð telur vísbendingar um breytingar á Veltihringrás Atlantshafsins það afgerandi að þegar þurfi að bregðast við með stórauknum aðgerðum.
Draga þarf hratt og markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka bindingu kolefnis og standa vörð um ítrustu markmið Parísarsamningsins.
Hefur Loftslagsráð sent Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra minnisblað um viðbrögð tengd veikingu og mögulegu hruni Veltihringrásarinnar.
Loftslagsráð - Erindi og minnisblöð
ERINDI OG MINNISBLÖÐ Álit ráðsins 29. apríl 2026 Minnisblað til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um viðbrögð tengd veikingu og mögulegu hruni Veltihringrásar Atlantshafsins Nýjar og nýlegar rannsóknir gefa sterkar vísbendingum um breytingar á Veltihringrás Atlantshafsins (A...
20/04/2026
Röngum upplýsingum um loftslagsmál er skipulega komið á framfæri að mati skýrslu rannsóknarnefndar ástralska þingsins. Uppsprettu rangra upplýsinga er almennt ekki að leita, til einstaklinga, heldur til kerfisbundinnar viðleitni tengdra hagsmunaaðila til þess að afvegaleiða umræðuna.
Ástralir tækla upplýsingaóreiðu í loftslagsmálum - Loftslagsráð
Ástralska þingið hefur rannsakað skipulagða upplýsingaóreiðu í loftslags- og orkumálum og komist að þeirri niðurstöðu að hagsmunaaðilar dreifi markvisst röngum upplýsingum til að tefja aðgerðir.
26/03/2026
Loftslagsráð samþykkti nýlega umsögn um skýrslu verkefnastjórnar loftslagsaðgerða. Skýrslan er mikilvæg til eftirfylgni við innleiðingu aðgerða.
Í umsögn Loftslagsráð er farið yfir helstu athugasemdir ráðsins og ábendingar settar fram til að styrkja gagnsemi skýrslunnar sem lið í eftirfylgni við loftslagsaðgerðir.
Umsögn um skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða 2025 - Loftslagsráð
Skýrsla verkefnastjórnar var gefin út á haustmánuðum. Loftslagsráð hefur skrifað umsögn um hana og hvetur í leiðinni verkefnastjórnina áfram til góðra verka svo til verð heildstæð mynd af stöðu loftslagsaðgerða í samræmi við tilætluð áhrif og markmið.
25/02/2026
Verkefnið Retool miðar að því að bæta gæði ákvarðana í loftslagsmálum og á sama tíma efla lýðræðislega stjórnarhætti.
Til að samráð skili árangri skipta þrír þættir meginmáli:
- Breið þátttaka
- Gagnsæi
- Raunverulegt samtal og skoðanaskipti
Meira á vefnum um hvernig hægt er að gera betur.
Lýðræðið fyrir loftslagið, og öfugt - Loftslagsráð
Verkefnið Retool skoðar hvernig hægt er að bregðast við neyðarástandi í loftslagsmálum og á sama tíma styrkja lýðræðið. Rannsakendur hafa trú á því að það sé hægt og virki jafnvel í báðar áttir.
18/02/2026
Heimasíðan okkar hefur fengið glæsilega upplyftingu. Hér er hægt að nálgast allt útgefið efni ráðsins, álit, minnisblöð og erindi.
Loftslagsráð Loftslagsráð
Aðhald og ráðgjöf í loftslagsmálum
12/02/2026
Skerpa þarfi á áætlun Íslands að loftslagsbreytingum svo hún skili tilætluðum árangri við að draga úr tjónnæmi samfélagsins að mati Loftslagsráðs. Áætlunin er því spor í rétta átt, en tengja þarf aðgerðir betur við helstu ógnir og áhættuþætti.
Álitið er í heild sinni aðgengilegt á heimasíðu Loftslagsráðs
Álit Loftslagsráðs á aðlögunaráætlun - Loftslagsráð
Loftslagsráð hefur birt álit um áætlun stjórnvalda um aðlögun að loftslagsbreytingum. Ráðið undirstrikar að skerpa þurfi á áætluninni svo hún skili tilætluðum árangri við að draga úr tjónnæmi samfélagsins.
26/01/2026
Loftslagsráð samþykkti á fundi sínum 22. janúar álit um drög forsætisráðuneytisins um atvinnustefnu, vaxtarplan til ársins 2035.
Loftslagsráð hefur lagt áherslu á mikilvægi þróunar lágkolefnahagkerfis Íslands og fagnar því að atvinnustefna í þeim anda sé lögð fram. Ráðið telur þó mikilvægt að styrkja ákveðna þætti svo stefnan styðji raunverulega við aukna velsæld, sjálfbærni og samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.
Hér má nálgast álitið í heild sinni.
Atvinnustefna - Loftslagsráð
Forsætisráðuneytið hefur sett fram drög að Atvinnustefnu Íslands, vaxtarplan til ársins 2035. Loftslagsráð hefur lagt áherslu á mikilvægi þróunar lágkolefnahagkerfis Íslands og fagnar því að atvinnustefna í þeim anda sé lögð fram. Loftslagsráð vill þó leggja áherslu á ...
12/11/2025
COP30 hófst fyrr í vikunni. Hér eru tvær sögur að segja, annars vegar mikið bakslag því marga stærri leiðtoga vantar - hins vegar mikill kraftur þeirra sem taka þátt og vinna að aðgerðum og lausnum. Framkvæmdastjóri Loftslagsráðs tekur þátt fyrir hönd ráðsins.
Loftslagsráð á COP30 í Brasilíu - Loftslagsráð
COP30, þing aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna hófst í gær 10. nóvember Hvað er á dagskrá er spurt, um hvað er verið að semja. Í raun er árið í ár ekki beðið eftir stórum ákvörðunum þingsins. Það gefur ekki tilefni til bjartsýni að framsett framlög er...
13/10/2025
Hvaða rétt hafa borgarar og framtíðarkynslóðir gagnvart ríkjum sem bregðast ekki nægilega við loftslagsvandanum? Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að þau beri lagalega skyldu til að grípa til aðgerða gegn loftslagsbreytingum — og að skortur á aðgerðum geti haft lagalegar afleiðingar.
Tímamótaálit Alþjóðadómstólsins - Loftslagsráð
Hvaða rétt hafa almennir borgarar, framtíðarkynslóðir og önnur ríki gagnvart ríkjum sem láta hjá líða að bregðast við loftslagsbreytingum með fullnægandi hætti? Fyrir liggur að loftslagsbreytingar munu hafa, og hafa haft nú þegar, veruleg áhrif á hagi og heilsu fólks.