26/05/2026
Barnahús módelið hefur farið víða og starfsfólki Barnahúss gafst um daginn kostur á heimsækja Barnahus á Írlandi ásamt því að sitja þar ráðstefnu.
Starfsfólk Barnahúss heimsækir Barnahus á Írlandi | Barna- og fjölskyldustofa
Starfsfólk Barnahúss á Íslandi sótti í lok maí 2026 ráðstefnu í Dublin sem haldin var á vegum Alders Unit við Children’s Health Ireland, sem veitir sérhæfðan stuðning við börn, ungmenni og fjölskyldur þar sem grunur er um kynferðisofbeldi.
22/05/2026
Við leitum að sérfræðingi í fósturteymið okkar.
Sérfræðingur í fósturteymi | Ísland.is
Barna- og fjölskyldustofa leitar að öflugum sérfræðingi í fósturteymi stofunnar. Um er að ræða 100% starf. Barna- og fjölskyldustofa veitir og styður við þjónustu í þágu barna og stuðlar að gæðaþróun í samræmi við bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma. Starfið heyr...
22/05/2026
VIð leitum að ráðgjafa til starfa á meðferðarheimilinu Lækjarbakka í sumar.
Ráðgjafi á meðferðarheimilinu Lækjarbakka - sumarstörf | Ísland.is
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum? Barna- og fjölskyldustofa auglýsir laus til umsóknar tvö og hálft starf ráðgjafa á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Heimilið er starfrækt í Gunnarsholti, rétt utan við Hellu. Störfin heyra undir forstöðumann og .....
15/05/2026
Nú eru síðustu forvöð að skrá sig á SES ráðstefnuna, sem verður haldin á Sjálandinu 29. maí því það eru aðeins örfá sæti laus. Á ráðstefnunni sem haldin er í samstarfi BOFS og SES í Danmörku verður sjónum beint að því hvernig hægt er að nota SES á fjölþættan hátt með börnum og fjölskyldum, eins og í barnavernd, í farsældarvinnu og í skilgreindum ágreiningsmálum. Kynntar verða glænýjar rannsóknarniðustöður af áhrifum SES NXT barnaefnisins á líðan og hegðun barna sem verða fyrir áhrifum af skilnaði foreldra. Auk þess sem fjallað verður sérstaklega um hagnýta reynslu af vettvangi og því hvernig SES er notað til að draga úr ágreiningi á milli foreldra.
Hér er hlekkur á skráningarsíðuna:
https://forms.office.com/pages/responsepage.aspx?id=bTBKdmgKrUWfB28YBER81NfONYQSVt5Op2fyI6TmHG1UN0xBWkhHNUJDUTNYMU01MDNWTktTUVZLVS4u&route=shorturl
05/05/2026
Við erum að leita að fólki 👉
Sérfræðingur í fagteymi | Ísland.is
Barna- og fjölskyldustofa leitar að öflugum sérfræðingum í fagteymi á nýju sviði búsetu og samþættrar þjónustu. Um er að ræða tvö 100% stöðugildi. Barna- og fjölskyldustofa veitir og styður við þjónustu í þágu barna og stuðlar að gæðaþróun í samræmi við bestu þ...
04/05/2026
Miðvikudaginn 6. maí kl. 14:00-15:30 stendur Barna- og fjölskyldustofa ásamt Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir fræðslufundi á Teams um móttöku, menntun og farsæld barna með flóttabakgrunn.
https://island.is/s/bofs/frett/mottaka-menntun-og-farsaeld-barna-med-flottabakgrunn
22/04/2026
Barna- og fjölskyldustofa býður fagaðilum sem starfa með börnum og fjölskyldum hjá bæði ríki og sveitarfélögum til ráðstefnu um stafræna velferðarúrræðið www.sesfamily.com sem fer fram 29. maí nk. í Sjálandinu í Garðabæ. SES Family er efni ætlað foreldrum, börnum og aðstandendum sem verða fyrir áhrifum af skilnaði og fagfólki sem mætir þessum fjölskyldum. Sjá meðfylgjandi dagskrá og upplýsingar um skráningu.
https://forms.office.com/e/9qr5iJRr81
21/04/2026
Barna- og fjölskyldustofa og Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu standa fyrir fræðslufundi um móttöku, menntun og farsæld barna með flóttabakgrunn.