27/05/2026
Við erum gríðalega stoltar af Hildi Björnsdóttur verðandi borgarstjóra í Reykjavík og vitum að hún mun verða frábær í því hlutverki.
Við óskum henni og nýjum meirihluta í Reykjavík til hamingju með samstarfið ósk um farsæld í starfi í þágu borgarinnar.
Framtíð Reykjavíkur er björt okkar Hvatarkonu í stafni!
Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri
Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Reykjavíkur, Einar Þorsteinsson verður formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar. Þau hafa gefið út verkefnalista fyrir nýjan borgarstjórnarmeirihluta.
16/05/2026
Gleðilegan kjördag kæru Hvatarkonur.
Það skiptir máli að öflugar konur taki þátt í stjórnmálum og taki að sér forystuhlutverk.
Við yrðum ákaflegar stoltar af því að sjá Hvatarkonuna Hildur Björnsdóttir / Borgarfulltrúi verða næsta borgarstjóra Reykjavíkur.
Það er tími til að breyta, strax. Mætum á kjörstað og nýtum kosningarétt okkar!
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/05/16/adsend_grein_timi_til_ad_breyta/?fbclid=IwY2xjawR1MFtleHRuA2FlbQIxMQBicmlkETE5Z1d6Q0VSQTJQazNBTnF2c3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHvhkFzFfAuYZQF2XA1jRENGqCfse3j1EsE_3tJoUaNLWivXT80g0KmV5VFSC_aem_Zqs5gT0uHKOD-y7DgZCcpA
Tími til að breyta
Reykjavík er lifandi borg, ekki bara stjórnsýslueining – hún er borg ólík öllum öðrum; stórborg og smábær, ung og kraumandi, en saga undir hverjum steini. En borgaryfirvöld hafa misst sjónar á þessu. Íbúarnir og hversdagurinn hafa gleymst í skýjaborgum og skrifræði.
05/05/2026
Byggjum það sem fólkið vill segir Hildur Björnsdóttir / Borgarfulltrúi.
“ Verkefni forystu er að svara kallinu og sjá til þess að framboð af húsnæði endurspegli vilja borgarbúa. Sá vilji er skýr - Reykvíkingar vilja flestir búa í eigin húsnæði.”
Byggjum það sem fólkið vill
„Níu af hverjum tíu landsmönnum vilja helst af öllu búa í eigin húsnæði samkvæmt nýlegri könnun Húsnæðis og mannvirkjastofnunar (HMS). Stefna borgaryfirvalda þarf að endurspegla þessa staðreynd.
Reykjavíkurborg er langstærsta sveitarfélag landsins og því í lykilstöðu þegar kemur að húsnæðisuppbyggingu í landinu. Verkefni okkar sem bjóðum okkur fram til forystu er að svara kallinu og sjá til þess að framboð af húsnæði endurspegli vilja borgarbúa. Sá vilji er skýr - Reykvíkingar vilja flestir búa í eigin húsnæði.”
📝Sjá slóð á grein í fyrstu athugasemd.
04/05/2026
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir með góða grein eftir langt frí.
Þegar sumarið nálgast huga margir að garðinum hvar arfinn hefur setið óáreittur yfir veturinn og vex nú á ógnarhraða. Garðurinn hefur mætt afgangi því undanfarna mánuði hefur þú forgangsraðað tíma þínum í annað. Það er ekki svo að arfinn sé prýði villtrar náttúrufegurðar sem ber að láta ósnerta eins og meirihlutinn í Reykjavík hefur viljað vera láta, heldur er hann áminning um forgangsröðun.
Á degi hverjum tökum við, hvert og eitt okkar, ákvörðun um hvernig við verjum kröftum okkar, í hvað og hvað ekki, eitt verður ofan á og annað bíður enda er tíminn af skornum skammti. Þannig virka stjórnmálin líka. Staða heimsmálanna, hvað varðar öryggismál en ekki síður örar tækniframfarir, kallar á forgangsröðun og stórar ákvarðanir um það sem verður að gera og það sem má bíða.
Það eru miklar umbreytingar að verða á heimshagkerfinu, breytingar sem eiga sér stað á ógnarhraða og munu hafa meiri áhrif á daglegt líf okkar allra en fyrri tækniframfarir. Lönd sem ætla sér að tryggja aukin lífsgæði í gegnum þær breytingar verða að vera tilbúin og setja í forgang þann undirbúning sem þörf er á til að standast samkeppnina.
Ríkisstjórnin virðist því miður gefa umbreytingu samtímans lítinn gaum. Nú er stefnt að því að setja allt púður í eitt verkefni: að semja um inngöngu í samband sem veit sjálft ekki hvert það ætlar: Evrópusambandið. Staðreyndin er sú að töfralausnirnar á þeim vandamálum sem við búum við eða að okkur steðja finnast ekki í Brussel. Innan Evrópusambandsins (og utan) glymur hávær gagnrýni á þungt regluverk, seinagang og litla samkeppnishæfni álfunnar. Þeirri gagnrýni hefur ekki verið svarað af miklum þunga af forsvarsmönnum ESB, raunar þvert á móti. Af því leiðir að enn er með öllu óljóst hvernig sambandið kemur til með að þróast næstu árin, til hins betra eða verra.
Það er ákveðin kaldhæðni í því að á sama tíma og Ísland þarfnast þess að efnahagsmál séu sett í fyrsta forgang samhliða meiri einföldun, minni útgjöldum, meiri nýsköpun og sterkara menntakerfi horfi ríkisstjórnin til verkefnis sem mun halda stjórnkerfinu og stjórnmálunum uppteknum með tilheyrandi tilkostnaði, allt til þess eins að taka upp meira íþyngjandi regluverk og ákveða þannig að önnur og brýnni verkefni sitji á hakanum á meðan.
Ég hef óbilandi trú á samfélaginu okkar og ég trúi því að Ísland geti boðið upp á stórbætt lífskjör með réttri forgangsröðun. Þess vegna tel ég að Ísland standi nú á krossgötum. Nú er tíminn til að horfast í augu við þær umfangsmiklu breytingar sem koma með gervigreindinni og tryggja að við bjóðum fólki upp á bestu framtíðartækifærin. Þessar umbreytingar verða ekki án áskorana, þær munu reynast mörgum löndum erfiðar, en þau samfélög sem nýta tímann vel til að undirbúa sig munu fara betur í gegnum þær áskoranir sem verða óhjákvæmilega á vinnumarkaði og í samfélaginu öllu og geta jafnvel boðið upp á stóraukin lífskjör þegar fram í sækir. Þannig tryggjum við best hagsmuni Íslands til framtíðar.
Framtíðarkynslóðir eiga það skilið að við undirbúum beðið vel fyrir árstíðirnar fram undan, að við reytum arfa, sáum fræjum og hlúum að umhverfinu okkar. Þess vegna þurfum við að velja vel, segja nei við ESB og einbeita okkur að raunverulegum áskorunum sem munu skipta öllu máli til framtíðar.
Pistillinn birtist í Morgunblaðinu 4. maí 2026
03/05/2026
Meðbyr með Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík enda er flokkurinn eini alvöru valkosturinn til að leiða breytingar hjá borginni.
Ríkisútvarpið birti í kvöldfréttum nýja skoðanakönnun Gallup fyrir borgina. Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur með 30% fylgi og 9 fulltrúa.
Við höfum skynjað mikinn meðbyr með okkar framboði og hlökkum til næstu vikna. Vilji fólk stefnubreytingu í Reykjavík er mikilvægt að tryggja Sjálfstæðisflokknum sterka stöðu svo hann geti orðið burðarás breytinga að loknum kosningum. Öðruvísi breytist ekkert.
Við erum klár í verkefnin - það er nefnilega svo margt sem hægt er að gera strax 🚀
28/04/2026
Jón Pétur Zimsen útskýrði í nýrri færslu á samfélagsmiðlum í gærkvöldi að hans meining hafi verið önnur en mátti skilja af færslu sem hann birti á sama vettvangi fyrr um daginn.
Það er mikilvægt að þetta komi skýrt fram þar sem upphafleg færsla, eins og alþjóð skildi hana, er ekki í samræmi við það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir og svo sannarlega ekki í samræmi við það sem Hvöt, félag Sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, stendur fyrir.
Stjórn Hvatar.
27/04/2026
“Hrein torg, fögur borg” segir Hildur Björnsdóttir / Borgarfulltrúi
„Hér áður stóð gjarnan á sorptunnum í Reykjavík „hrein torg, fögur borg“. Það eru orð að sönnu. Snyrtimennska og hreinlæti skipta öllu máli þegar kemur að upplifun af borgarlífi og virðingu fyrir því sem fyrir augu ber. Borgin er okkar heimili og við eigum að sjá til þess að hún skarti sínu fegursta í hversdeginum og þegar gesti ber að garði.”
📝Sjá slóð á grein í fyrstu athugasemd.
06/01/2026
Hvatarkonan Hildur Björnsdóttir / Borgarfulltrúi er sjálfkjörin leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hildur sjálfkjörinn leiðtogi í Reykjavík
Hildur Björnsdóttir er sjálfkjörinn oddviti á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Ekkert annað framboð barst í boðað leiðtogaprófkjör, sem fram átti að fara laugardaginn 24. janúar.