Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðuneytið

Share

Verkefni ráðuneytisins varða heilbrigðisþjónustu, lyfjamál, lífvísindi, lýðheilsu og forvarnir Velkomin á síðu heilbrigðisráðuneytisins.

Efni sem hér birtist af hálfu ráðuneytisins er sett fram til upplýsingar fyrir almenning. Allt efni sem sett er inn af öðrum aðilum er á ábyrgð viðkomandi. Ráðuneytið áskilur sér rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg eða ærumeiðandi ummæli úr athugasemdakerfi síðunnar. Formlegum erindum og fyrirspurnum sem notendur síðunnar vilja beina til ráðuneytisins er ekki svarað hér. Erindi og fyrirspurnir skal senda á netfangið; [email protected] See less

19/06/2026

Til hamingju með daginn, vítt og breitt, öll sem eitt, stór og smá. Kvenréttindadagurinn 19. júní er í dag.

Upplýsingar um daginn í athugasemd ->

18/06/2026

Sérnám í heimilislækningum verður eflt með auknu fjármagni. Árið 2017 voru 38 læknar skráðir í sérnámið, þeir voru 95 árið 2022 og eru núna 120. Þetta kallar á aukna umsýslu við skipulagningu og stjórnun námsins á landsvísu til að gera það sem best úr garði. Markvisst er unnið að því að efla heilsugæsluna og fjölga heimilislæknum.

Nánar, sjá link í fyrstu athugasemd ->

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins HSN - Heilbrigðisstofnun Norðurlands Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - HSS Heilbrigðisstofnun Suðurlands Heilbrigðisstofnun Austurlands Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Útskrift Sjúkraflutningaskólans 2026 | Sjúkrahúsið á Akureyri 10/06/2026

Útskrift 265 nemenda frá Sjúkraflutningaskólanum fór fram í gær. Alls voru útskrifaðir 95 með grunnréttindi sem sjúkraflutningamenn (EMT), 32 með framhaldsmenntun (AEMT) og 141 luku vettvangsliðanámi (EMR). Sjúkraflutingaskólinn starfar samkvæmt samningi milli heilbrigðisráðuneytisins og Sjúkrahússins á Akureyri og er hlutverk skólans að skipuleggja, stjórna og sjá um menntun sjúkraflutningamanna á Íslandi.

„...með þekkingu, þjálfun, rólegum huga og jákvæðu hugarfari er ég þess fullviss að þið eigið eftir leysa verkefni ykkar vel af hendi! Munið að sinna öllum skjólstæðingum eins og þið væruð að sinna ykkar nánustu" voru meðal kveðjuorða Ingimars Eydal skólastjóra til útskriftarnemendanna í ræðu sem hann flutti við útskriftarathöfnina.

Sjúkraflutningaskólinn
Sjúkrahúsið á Akureyri

Útskrift Sjúkraflutningaskólans 2026 | Sjúkrahúsið á Akureyri Útskrift Sjúkraflutningaskólans fór fram á Flugsafni Íslands á Akureyrarflugvelli þann 29. maí.

09/06/2026

„Það eru forréttindi að gera gagn“ segir Guðjón Hauksson, nýr forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri í viðtali við norðlenska fjölmiðilinn Vikublaðið. „Guðjón tók við starfi forstjóra fyrir skömmu síðan en segist hafa fengið hlýjar móttökur og að hann hafi góða tilfinningu fyrir starfsemi sjúkrahússins „Hvert sem ég hef farið hafa mér mætt bros og hlýjar kveðjur. Ég finn svo augljóslega kraftinn, metnaðinn og væntumþykjuna fyrir starfseminni sem gefur mér sannfæringu fyrir því að okkur muni takast vel til, hverjar sem áskoranirnar verða.““

- > Sjá tengil í viðtalið í fyrstu athugasemd.

Sjúkrahúsið á Akureyri

Björg safnar blóði á Norðurlandi | Landspítali 28/05/2026

Blóðbankinn hefur eignast nýjan blósöfnunarbíl. Hans heimastöð verður á Akureyri en mun ferðast vítt og breitt um Norðurland. Með þessu skapast auknir möguleikar til blóðsöfnunar víðs vegar um landið og þannig er vonast til að fleiri sjái sér fært að gefa blóð.

Landspítali
Sjúkrahúsið á Akureyri
HSN - Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Blóðbankinn

Björg safnar blóði á Norðurlandi | Landspítali Nýr bíll Blóðbankans var fyrir skömmu afhentur með viðhöfn í Kringlunni.

Photos from Heilbrigðisráðuneytið's post 07/05/2026

Samningur milli þriggja ráðuneyta og Rauða krossins á Íslandi um rekstur Hjálparsímans 1717 er mikilvægur hluti af samfélagslegu öryggisneti. Samningur til tveggja ára um rekstur Hjálparsímans var undirritaður í dag: „Við erum afar þakklát Rauða krossinum fyrir að sinna þessari mikilvægu starfsemi,“ sagði Alma Möller er hún mundaði pennann og skrifaði undir samninginn ásamt samráðherrum í höfuðstöðvum Rauða krossins í dag. „Ég veit af þessum aukna þunga í samtölunum. Það er áhyggjuefni. En á sama tíma er það ánægjuefni að fólk leiti sér hjálpar og að það treysti Hjálparsímanum fyrir erfiðleikum sínum og líðan.“

Nánari upplýsingar - sjá tengil í fyrstu athugasemd

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið Mennta- og barnamálaráðuneytið Rauði krossinn

Photos from Heilbrigðisráðuneytið's post 06/05/2026

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja Alzheimersamtökunum rekstrarfé til að opna 16 – 17 ný dagþjálfunarrými fyrir fólk með heilabilun strax á næsta ári og jafnframt vilyrði fyrir fjölgun rýma í 33 árið 2028. Alzheimersamtökin hófu rekstur sambærilegrar þjónustu með 33 rýmum á St. Jósefsspítala árið 2022 sem kallast Seiglan og verður nýja þjónustueiningin rekin undir sama nafni og á grundvelli sömu hugmyndafræði. Alzheimersamtökin hófu rekstur sambærilegrar þjónustu með 33 rýmum á St. Jósefsspítala árið 2022 sem kallast Seiglan og verður nýja þjónustueiningin rekin undir sama nafni og á grundvelli sömu hugmyndafræði.

Nánari upplýsingar - sjá tengil í fyrstu athugasemd

Könnun á heilsulæsi fullorðinna á Íslandi | Embætti landlæknis 27/04/2026

Embætti landlæknis stendur fyrir könnun á heilsulæsi meðal fullorðinna um þessar mundir. Þetta er í fyrsta skipti sem heilsulæsi er kannað með heildrænum hætti á landsvísu hér á landi. Þau sem fá boð um þátttöku eru hvött til að leggja embættinu lið til að fá góða mynd af stöðu heilsulæsis landsmanna.

Embætti landlæknis

Könnun á heilsulæsi fullorðinna á Íslandi | Embætti landlæknis Embætti landlæknis stendur fyrir könnun á heilsulæsi meðal fullorðinna um þessar mundir. Þetta er í fyrsta skipti sem heilsulæsi er kannað með heildrænum hætti á landsvísu hér á landi.

22/04/2026

Ný nálgun, ný tækifæri er yfirskrift opins morgunfundar Stafrænnar heilsu 28. apríl næstkomandi í Grósku og hefst fundurinn kl. 9.00. Þar verur farið yfir tilurð Stafrænnar heilsu sem er starfseining innan heilbrigðisráðuneytisins og tók til starfa í janúar sl., fjallað um helstu verkefni hennar og framtíðarsýn. Viðburðurinn er hluti af Nýsköpunarvikunni (Iceland Innovation Week) og er öllum opinn.
--> Nánari upplýsingar í fyrstu athugasemd

Stafræn heilsa

11/03/2026

Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 91 milljón króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í þágu tiltekinna hópa. Alls hlutu 40 verkefni styrk og námu styrkfjárhæðir á bilinu 400.000 til 5.000.000 kr. Sem dæmi má nefna styrki til Samtaka um POTS og ME-félags Íslands til að afla og miðla fræðslu og þekkingu um sjúkdómsheilkenni á borð við langvinnt Covid, ME-sjúkdóminn og POTS, gerð fræðsluefnis fyrir hjartasjúklinga, fræðslustarf í grunn- og framhaldsskólum um endómetríósu, fíkniráðgjöf og stuðningur fyrir aðstandendur, verkefni um skaðaminnkandi þjónustu og geðræktarverkefni, svo fátt eitt sé nefnt.

Nánar -> sjá hlekk í fyrstu athugasemd

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Skúlagata 4
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:00
Tuesday 08:30 - 16:00
Wednesday 08:30 - 16:30
Thursday 08:30 - 16:00
Friday 08:30 - 16:00