11/06/2026
Þann 25. júní nk. mun Rannís bjóða uppá heilsdags vinnustofu í umsóknarskrifum í LIFE áætluninni.
👉 Vinnustofan er ætluð þeim sem hafa áhuga á að sækja um í LIFE áætluninni en opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir árið 2026, sjá frétt🗞️ í athugasemd
👉 Vinnustofan er opin umsækjendum á öllum stigum umsóknarferlisins, þ.e. allt frá ómótaðri verkefnahugmynd yfir í fullmótað samstarfsverkefni, bæði vegna umsóknarfrests 2026 og 2027.
👉 Vinnustofan verður leidd af erlendum ráðgjöfum og mun hún fara fram á ensku.
Nánari upplýsingar og skráning í fyrstu athugasemd
09/06/2026
Vinnustaðanámssjóður auglýsir eftir umsóknum.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki vegna vinnustaðanáms nema á tímabilinu 1. nóvember 2025 til 31. október 2026.
📅 Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2026 kl. 15:00.
👉Opnað verður fyrir umsóknir í byrjun september.
Nánar í fyrstu athugasemd:
09/06/2026
Þróunarsjóður námsgagna hefur úthlutað 82 milljónum króna til 24 verkefna.
Sjóðurinn styður við nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla með það að markmiði að tryggja aukið framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.
Nánar í fyrstu athugasemd:
05/06/2026
Uppbyggingarsjóður EES í Slóvakíu 🇸🇰 auglýsir menningarstyrki í samstarfi við íslenska aðila 🇮🇸
Slóvakía hefur opnað fyrir umsóknir til stærri menningarverkefna í samstarfi íslenskra og norskra menningarstofnana.
📅Umsóknarfrestur er til 5. ágúst 2026.
👉Nánar í fyrstu athugasemd
03/06/2026
Glæsilegur árangur hjá nýsköpunarfyrirtækinu Atmonia sem hefur tryggt sér 2,5 milljónir evra til þróunar sjálfbærrar ammóníakframleiðslu – mikilvægur áfangi fyrir íslenska nýsköpun og græna tækni.
Dr. Helga Dögg Flosadóttir, framkvæmdastjóri og meðstofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Atmonia, leiddi 2,5 milljóna evra styrkjaumsókn í EIC Transition Evrópska nýsköpunarráðsins (EIC). Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt verkefni hlýtur styrk úr EIC Transition.
Sjá frétt í fyrstu athugasemd!
03/06/2026
Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur samþykkt að bjóða fulltrúum 49 verkefna að ganga til samninga um nýja styrki í vorúthlutun sjóðsins 2026. Heildarfjárhæð styrkja til nýrra verkefna nemur 803 milljónum króna. Tækniþróunarsjóður er fjármagnaður af menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytinu.
Við óskum styrkþegum til hamingju og velfarnaðar á komandi misserum.
Nánar á vef Rannís (Hlekkur í athugasemd)
02/06/2026
Bókasafnasjóður úthlutar fyrir árið 2026.
Alls er úthlutað 19 milljónum króna til níu verkefna í ár og fór úthlutunin fram 31. maí í Höfuðstöðinni.
Sjá nánar í fyrstu athugasemd.
02/06/2026
Barnamenningarsjóður úthlutar 90 milljónum til 43 verkefna.
Úthlutunin fór fram í Höfuðstöðinni þar sem Hljómsveit 2 í Tónskóla Sigursveins spilaði fyrir gesti í sumarblíðunni.
Alls voru veitir styrkir til 43 fjölbreyttra verkefna á sviði barnamenningar.
Sjá frétt í fyrstu athugasemd
01/06/2026
Opið fyrir umsóknir í LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun ESB.
LIFE er innleiðingaráætlun, ekki rannsóknaráætlun, sem þýðir að verkefnum er ætlað að stuðla að því að stefnur og löggjöf í þágu umhverfis- og loftslagsmála megi verða að veruleika
Undir LIFE eru fjórar undiráætlanir með ólíkar áherslur.
👉 Umsóknarfrestur er í september 2026
Nánar í fyrstu athugasemd.
28/05/2026
Smá fréttir og innblástur og tengsl á eTwinning-ráðstefnu í Óðinsvéum.
Diljá Helgadóttir og Inga Þórunn Waage, kennarar við Menntaskólann á Tröllaskaga, ásamt Margréti Hrefnu Ríkarðsdóttur frá Langholtsskóla, sóttu norræna eTwinning-ráðstefnu dagana 15.–17. apríl þar sem áhersla var lögð á alþjóðlegt skólasamstarf, verkefnavinnu og gervigreind í kennslu.
Diljá segir upplifun sína af ráðstefnunni hafa verið mjög jákvæða: „Ég fór út með litla vitneskju um út í hvað ég var að fara. Ráðstefnan, skipulag hennar og innihald var til fyrirmyndar og gaf mér meira en ég átti von á. Ég kynntist fullt af frábærum einstaklingum og gerði verkefni með kennurum nokkurra skóla sem á að hrinda í framkvæmd næsta vor.“
Lesið nánar um þetta eTwinning verkefni í fyrstu athugasemd ⬇️
eTwinning Ísland