Utankjörfundarkosning - upplýsingar, aðstoð og móttaka atkvæða

Utankjörfundarkosning - upplýsingar, aðstoð og móttaka atkvæða

Share

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er örugg og einföld leið til að koma atkvæði sínu til skila.

Við aðstoðum kjósendur að finna kjörstaði, koma atkvæði sínu til skila og leysum úr flóknari málum sem upp geta komið.

05/05/2022

Kjósandi á rétt til aðstoðar við atkvæðagreiðsluna, án þess að tilgreina ástæðu. Aðstoð skal veitt af þeim úr kjörstjórninni sem kjósandi tilnefnir eða aðstoðarmanni sem fylgir kjósanda á kjörstað. Sá sem aðstoðar er bundinn þagnarskyldu um það sem honum og kjósanda fer á milli í kjörklefanum. Aðstoðarmaður kjósanda skal staðfesta með undirskrift sinni á upplýsingablað sem kjörstjórn lætur í té, að honum hafi verið leiðbeint um ábyrgð sína og skyldu sem aðstoðarmanns og að hann uppfylli hæfisskilyrði til þess að vera aðstoðarmaður. Kjörstjórnarmaður skal einnig undirrita staðfestinguna og skal kjörstjórn varðveita hana. Aðstoðarmanni kjósanda, er óheimilt að gerast aðstoðarmaður fleiri en þriggja kjósenda við sömu kosningu.
Eyðublað fyrir kjósanda og aðstoðarmann:
https://www.stjornarradid.is/library/03-Verkefni/Kosningar/Eydublod/LKS_Stadfesting_adstodarmanns.pdf

Nánari upplýsingar: https://www.stjornarradid.is/verkefni/kosningar/sveitarstjornarkosningar-2022/kjosendur-leidbeiningar/atkvaedagreidsla-a-kjordag/

05/05/2022

Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal hafa borist sýslumanni eigi síðar en kl. 10:00 fimmtudaginn 12. maí nk. á þessu eyðublaði:https://www.stjornarradid.is/library/03-Verkefni/Kosningar/Eydublod/LKS_Umsokn_um_atkvaedi_i_heimahusi.pdf

05/05/2022

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrastofnunum í umdæmi
sýslumannsins á Norðurlandi vestra verður sem hér segir:

HSN Blönduósi, Flúðabakka 2, Blönduósi, miðvikudaginn 11. maí kl. kl. 15:15 – 16:15

HSN Sauðárkróki, Sauðárhæðum, Sauðárkróki, þriðjudaginn 10. maí kl. 15:10 – 16:10

HVE Hvammstanga, Spítalastíg 1, Hvammstanga, þriðjudaginn 10. maí kl. 16:00 – 17:00

Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal hafa borist sýslumanni á sérstöku eyðublaði eigi síðar en kl. 10:00 fimmtudaginn 12. maí nk.

03/05/2022

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrastofnunum í umdæmi
sýslumannsins á Suðurlandi verður sem hér segir:

Selfoss og nágrenni:
Fangelsið Sogni í Ölfusi, mánudaginn 2. maí kl. 14:00 – 15:00.
Sólheimar í Grímsnesi, miðvikudaginn 4. maí kl. 13:00 – 14:00.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi, sjúkra- og hjúkrunardeildir föstudaginn 13. maí 10:00-12:00.

Eyrarbakki:
Dvalarheimilið Sólvellir, þriðjudaginn 3. maí kl. 14:00 – 15:00.
Fangelsið Litla-Hrauni, þriðjudaginn 3. maí kl. 10:00 – 11:00.

Hveragerði:
Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili, Hverahlíð 20, þriðjudaginn 10. maí kl. 09:30 – 11:30.
Heilsustofnun NLFÍ föstudaginn 6. maí kl. 13:00-14:00.

Hella:
Lundur, hjúkrunar- og dvalarheimili, mánudaginn 2. maí kl. 10:00-11:00.

Hvolsvöllur:
Kirkjuhvoll, hjúkrunar- og dvalarheimili, mánudaginn 2. maí kl. 13.00-14:00.

Vík:
Hjallatún, dvalarheimili, þriðjudaginn 3. maí kl. 10.30-11:30.

Kirkjubæjarklaustur:
Klausturhólar, hjúkrunar- og dvalarheimili, þriðjudaginn 3. maí kl. 15.00-16:00.

Höfn:
Skjólgarður, dvalarheimili miðvikudaginn 4. maí kl. 13:00-14:00.

Atkvæðagreiðslan er einungis ætluð þeim sem dvelja á viðkomandi stofnunum.

03/05/2022

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrastofnunum í umdæmi
sýslumannsins á Norðurlandi eystra verður sem hér segir:

Dalbær, miðvikudaginn 4. maí kl. 10:30

Hornbrekka, Ólafsfirði, miðvikudaginn 4. maí kl. 14:30

Dvalarheimilið Hlíð, fimmtudaginn 5. maí kl. 13:00

Sjúkrahúsið á Húsavík, fimmtudaginn 5. maí kl. 10:00

Hvammur, Húsavík, fimmtudaginn 5. maí kl. 13:00

Hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð, föstudaginn 6. maí kl. 10:00

Kristnesspítali, mánudaginn 9. maí. kl. 10:00

Sjúkrahúsið á Akureyri, þriðjudaginn 10. maí kl. 13:00

Sjúkrahúsið á Siglufirði, fimmtudaginn 12. maí kl. 11:00

03/05/2022

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrastofnunum í umdæmi
sýslumannsins á Vestfjörðum verður sem hér segir:

Heilsumiðstöðin Tjörn, Þingeyri
miðvikudaginn 27. apríl kl. 10:30-11.30

Hjúkrunarheimilið Berg, Bolungarvík
miðvikudaginn 27. apríl kl. 13:30-14:30

Hjúkrunarheimilið Eyri, Ísafirði
fimmtudaginn 28. apríl kl. 14:00-15:30

Heilbrigðisstofnun, Hólmavík
miðvikudaginn 27. apríl, kl. 13:00-13:40

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð, Reykhólum
miðvikudaginn 27. apríl, kl. 17:15-18:00

Heilbrigðisstofnun, Patreksfirði
fimmtudaginn 28. apríl, kl. 13:30- 14:30 og
föstudaginn 6. maí, kl. 11:00-11:30

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Ísafirði – sjúkradeild 2. hæð
mánudaginn 9. maí kl. 13:30-14:30

03/05/2022

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á stofnunum og dvalarheimilum á Vesturlandi:
Akranesi – Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili 10. maí nk. kl. 10:00 til 12:00
Akranesi – Heilbrigðisstofnun Vesturlands 12. maí nk. kl. 13:00 til 14:00
Borgarnesi – Dvalarheimilinu Brákarhlíð 9. maí nk. kl. 10:00 til 12:00
Snæfellsbæ – Dvalarheimilinu Jaðri 5. maí nk. kl. 16:00 til 17:30
Grundarfjarðarbæ, fangelsinu Kvíabryggju 10. maí nk. kl. 16:00 til 17:00
Grundarfjarðarbæ, Dvalarheimilinu Fellaskjóli 9. maí nk. kl. 14:00 til 14:30
Stykkishólmi – Dvalarheimili aldraðra 11. maí nk. kl. 15:30 til 16:30
Stykkishólmi – St. Franciskusspítala 12. maí nk. kl. 15:00 til 16:00
Dalabyggð – Dvalarheimilinu Silfurtúni 3. maí nk. kl. 14:00 til 16:00

29/04/2022

Tímasetningar vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosningar 14. maí 2022 á sjúkrahúsum, fangelsi og hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðra frá sýslumanninum á Höfuðborgarsvæðinu.

Landspítalinn Háskólasjúkrahús Fossvogi
Fimmtudaginn 12. maí, kl. 14:00-17:00.

Landspítalinn Háskólasjúkrahús Hringbraut
Föstudaginn 13. maí, kl. 14:00-17:00.

Landspítalinn, Geðdeild, Háskólasjúkrahús Hringbraut
Föstudaginn 13. maí, kl. 15:00-17:00.

Einnig:
Fangelsið á Hólmsheiði
Mánudaginn 25. apríl, kl. 15:00-17:00.

Skjól við Kleppsveg, Reykjavík
Mánudaginn 25. apríl, kl. 14:00-16:00.

Landspítalinn Háskólasjúkrahús Landakot
Mánudaginn 25. apríl, kl. 15:00-18:00.

Hjúkrunarheimilið Hamrar, Mosfellsbæ
Þriðjudaginn 26. apríl, kl. 15:00-16:00.

Droplaugarstaðir við Snorrabraut, Reykjavík
Þriðjudaginn 26. apríl, kl. 15:00-16:30.

Skógarbær við Árskóga, Reykjavík
Þriðjudaginn 26. apríl, kl. 15:30-17:00.

Kleppsspítali, Reykjavík
Miðvikudaginn 27. apríl, kl. 15:00-16:00.

Seljahlíð, Hjallaseli 55, Reykjavík
Miðvikudaginn 27. apríl, kl. 15:00-18:00.

Hrafnista Boðaþing, Kópavogi
Miðvikudaginn 27. apríl, kl. 15:30-17:00.

Hjúkrunarheimilið Ísafold, Garðabæ
Fimmtudaginn 28. apríl, kl. 15:00-17:00.

Landspítalinn Vífilsstöðum, Garðabæ
Fimmtudaginn 28. apríl, kl. 15:30-16:30.

Sunnuhlíð, Kópavogi
Fimmtudaginn 28. apríl, kl. 15:00-17:00.

Eir við Hlíðarhús í Grafarvogi, Reykjavík
Föstudaginn 29. apríl, kl. 13:00-16:00.

Hjúkrunarheimilið Sóltún, Reykjavík
Föstudaginn 29. apríl, kl. 13:00-16:00.

Sólvangur, Hafnarfirði
Föstudaginn 29. apríl, kl. 14:30-16:00.

Hrafnista Laugarás, Reykjavík
Laugardaginn 30. apríl, kl. 11:00-15:00.

Hjúkrunarheimilð Roðasalir, Kópavogi
Laugardaginn 30. apríl, kl. 13:30-14:00.

Hlaðgerðarkot, Mosfellsbæ
Laugardaginn 30. apríl, kl. 13:00-14:00.

Reykjalundur, Mosfellsbæ
Laugardaginn 30. apríl, kl. 15:00-15:30.

Seltjörn á Seltjarnarnesi
Mánudaginn 2. maí, kl. 15:00 -17:00.

Hrafnista á Sléttuvegi, Reykjavík
Mánudaginn 2. maí, kl. 15:00-17:00.

Hrafnista Hafnarfirði
Mánudaginn 2. maí, 14:00-18:00.

Mörkin, Reykjavík
Þriðjudaginn 3. maí, kl. 14:00-17:00.

Vík, Kjalarnesi
Þriðjudaginn 3. maí, kl. 15:00-17:00.

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund, Reykjavík
Þriðjudaginn 3. maí, kl. 15:00-18:00.

Landspítalinn Grensásdeild, Reykjavík
Mánudaginn 9. maí, kl. 16:30 -18:00.

Landspítalinn Háskólasjúkrahús Fossvogi
Fimmtudaginn 12. maí, kl. 14:00-17:00.

Líknardeildin í Kópavogi
Föstudaginn 13. maí, kl. 15:00-16:30.

Landspítalinn Háskólasjúkrahús Hringbraut
Föstudaginn 13. maí, kl. 14:00-17:00.

Landspítalinn, Geðdeild, Háskólasjúkrahús Hringbraut
Föstudaginn 13. maí, kl. 15:00-17:00.

29/04/2022

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrastofnunum í umdæmi
sýslumannsins á Austurlandi verða sem hér segir:

Dyngja, Egilsstöðum, þriðjudaginn 10. maí kl. 10-11.
Uppsalir, Fáskrúðsfirði, miðvikudaginn 11. maí kl. 9.30-10:30.
Hulduhlíð, Eskifirði, miðvikudaginn 11. maí kl. 11-12.
Fjórðungssjúkrahúsið og dvalarheimili Neskaupstað, miðvikudaginn 11. maí kl. 13.30-14.30.
Sundabúð, Vopnafirði, (verður auglýst síðar).
Fossahlíð, Seyðisfirði, fimmtudaginn 12. maí kl.15.10-16.00.

27/04/2022

Fyrir Íslendinga á Spáni vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á Tenerife fer fram nk. mánudag, 2. maí kl. 9-13 hjá C. Beneharo, 135, 38670 Adeje.
Kjósendur á Tenerife eru beðnir um að skrá sig á netfangið [email protected]

Utankjöfundaratkvæðagreiðsla á Alicante fer fram alla virka daga frá kl. 9 - 13.30 hjá Ræðismaður Íslands Orihuela Costa (þgf) Carrer Alhelies, 1, 03189 Orihuela

Best er að koma atkvæðum heim með flugfarþegum á leið til landsins eða í hraðpósti. Tekið er við atkvæðum hjá Sjálfstæðisflokknum, Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavík og þeim komið þaðan í rétt kjördæmi.

12/04/2022

Litháar og aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili á Íslandi samfellt sl. 3 ár eða lengur, geta kosið í sveitarstjórnarkosningunum þann 14. maí.
Hér má finna hvort einstaklingur sé á kjörskrá og hvar á að kjósa: https://skra.is/.../kjorskra-og.../hvar-a-eg-ad-kjosa/
Norðurlandabúar öðlast kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum við lögheimilisbreytingu á milli Norðurlanda.

12/04/2022

Pólverjar og aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili á Íslandi samfellt sl. 3 ár eða lengur, geta kosið í sveitarstjórnarkosningunum þann 14. maí.
Hér má finna hvort einstaklingur sé á kjörskrá og hvar á að kjósa: https://skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/
Norðurlandabúar öðlast kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum við lögheimilisbreytingu á milli Norðurlanda.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Website

Address


Valhöll/Háaleitisbraut 1
Reykjavík
105