Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Share

Þetta er Facebook-síða félags- og húsnæðismálaráðuneytisins // This is the Facebook-page of the Ministry for Social Affairs and Housing in Iceland.

Við erum félags- og húsnæðismálaráðuneytið - We are the Ministry of Social Affairs and Housing in Iceland // Áður vorum við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið - Housing and Planning is now part of our ministry and we therefore have a new name now!

Photos from Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið's post 20/06/2026

Alþingi hefur samþykkt lög um réttindavernd fatlaðs fólks. Um ný heildarlög er að ræða sem leysa af hólmi lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.

Meginmarkmið nýju laganna er að tryggja fötluðu fólki viðeigandi stuðning við vernd hvers konar réttinda og stuðla að bættu jafnrétti og aðgengi í þjónustu við fatlað fólk.

Jafnframt er áhersla lögð á að tryggja að sjálfsákvörðunarréttur fatlaðs fólks sé virtur og fyllsta réttaröryggis gætt þegar brýna nauðsyn ber til að grípa inn í líf þess. Við gerð frumvarpsins var tekið mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs

Lögunum er ætlað að skerpa á hlutverki réttindagæslu fyrir fatlað fólk og tryggja skýrari verkaskiptingu á milli sýslumanna og réttindagæslu svo ljóst sé til hvers ætlast sé af þeim.

Þeim er einnig ætlað að bregðast við kerfislægum hindrunum sem ákveðinn hópur fatlaðs fólks hefur mætt við aðgang að fjármálum sínum, einkum þeirra sem búa í búsetukjörnum og geta ekki notað rafræn skilríki.

Þá er lögunum ætlað að auka skilvirkni í málsmeðferð og ákvarðanatöku í málum sem varða nauðung í þjónustu við fatlað fólk, einfalda ferla, minnka biðtíma eftir ákvörðun, auðvelda eftirlit og tryggja að mál séu áfram afgreidd á samræmdan hátt.

„Lögin marka mikilvægt framfararskref í því að tryggja fötluðu fólki jafnræði og auka þátttöku þess og inngildingu í samfélaginu. Með þeim er réttindavernd styrkt, sjálfsákvörðunarréttur betur tryggður og skýrari umgjörð sköpuð um þá þjónustu og þann stuðning sem fólk á rétt á,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Ástæða þótti til að breyta heiti laganna í réttindavernd fatlaðs fólks þar sem heitið lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk endurspeglar ekki að fullu efni þeirra. Lögin fjalla ekki eingöngu um réttindagæslu, heldur einnig um hlutverk persónulegra talsmanna við að styðja notendur við að taka eigin ákvarðanir og ráðstafanir til að draga úr beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk.

19/06/2026

Alþingi samþykkti í dag frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn. Nýrri stofnun verður komið á fót með öryggisgæslustað fyrir allt að 16 einstaklinga sem þurfa sérhæfða þjónustu og er gert að sæta öryggisgæslu en ekki er talið viðeigandi að vista í fangelsi. Ekkert slíkt sérhæft úrræði er til í dag. Þá er heildstæð lagaumgjörð nú í fyrsta sinn til staðar um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.
Ráðherra segir að lengi hafi verið ljóst að þörf væri á að taka heildstætt utan um málaflokkinn. Kerfið hafi hingað til ekki náð utan um hópinn sem um ræðir:

• Á öryggisgæslustaðnum munu vistast einstaklingar sem dæmdir hafa verið fyrir alvarleg brot en eru taldir ósakhæfir eða refsing ekki talin líkleg til að bera árangur. Þeir eru því ekki taldir eiga heima í fangelsiskerfinu en þó er talið nauðsynlegt að gera viðeigandi ráðstafanir til að hætta stafi ekki af þeim.

• Þar er einnig gert ráð fyrir einstaklingum sem taldir eru þurfa slíka vistun að lokinni afplánun í fangelsi. Frumvarp dómsmálaráðherra þess efnis varð einnig að lögum á Alþingi í dag.

• Ríkið hefur þegar tryggt sér lóð á Hólmsheiðarsvæðinu undir Miðstöð um öryggisráðstafanir þar sem öryggisgæslustaðurinn verður og umsjón með öllum öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn.

„Með breytingunum sem Alþingi samþykkti í dag stöndum við vörð um mannréttindi og réttláta málsmeðferð þeirra einstaklinga sem um ræðir en gætum um leið að öryggi almennra borgara,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Sem fyrr segir samþykkti Alþingi einnig í dag frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á almennum hegningarlögum sem skýrir lagaheimildir til öryggisráðstafana gagnvart einstaklingum sem metnir eru sérstaklega hættulegir umhverfi sínu. Með breytingunum er skýrt hvenær megi grípa til slíkra úrræða, á hverju matið skuli byggjast og hvernig tryggja megi aukið samræmi og réttaröryggi í framkvæmd. Heimilt verður, að ströngum skilyrðum uppfylltum, að vista einstakling áfram eftir lok afplánunar ef hann hefur gerst sekur um alvarlegt afbrot og telst áfram verulega hættulegur samfélaginu.

„Með samþykkt frumvarpsins er stigið mikilvægt skref í máli sem hefur kallað á úrlausn í langan tíma. Við erum að setja skýrari reglur um mjög íþyngjandi úrræði, þannig að ákvarðanir byggist á vönduðu mati, skýrum lagagrundvelli og virðingu fyrir réttindum þeirra sem eiga í hlut. Um leið erum við að tryggja að samfélagið hafi raunhæf úrræði þegar einstaklingar eru metnir verulega hættulegir umhverfi sínu,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Sjá frétt í fyrstu athugasemd hér að neðan.

18/06/2026

Alþingi samþykkti nú rétt í þessu frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, um hækkun á stofnframlögum ríkisins. Lögin eru hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum og markmið breytinganna var að bregðast við mikilli eftirspurn eftir leiguíbúðum á viðráðanlegu verði.

- Um er að ræða breytingu á lögum um almennar íbúðir.
- Leiguíbúðir sem stjórnvöld hafa veitt stofnframlög til byggingar eða kaupa á kallast almennar íbúðir.
- Þær eru ætlaðar leigjendum sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum.

Sjá frétt um nýju lögin í fyrstu athugasemd hér að neðan.

09/06/2026

Sendinefnd Íslands á aðildarríkjaþinginu um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem hófst í New York í dag. Myndin er tekin í sal allsherjarþingsins eftir að Ragnar Þór Ingólfsson flutti ávarp Íslands á þinginu.

Í sendinefndinni eru auk ráðherra Hreiðar Ingi Eðvarðsson, aðstoðarmaður ráðherra, Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Þroskahjálpar, Eiður Welding, formaður UngÖBÍ, Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi, Erla Ylfa Óskarsdóttir, sendiráðsritari, og Jóna Guðný Eyjólfsdóttir, skrifstofustjóri í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.

Photos from Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið's post 09/06/2026

Íslensk stjórnvöld hafa fullgilt valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í bókuninni er kveðið á um heimild fatlaðs fólks til að beina kvörtunum vegna brota á samningnum til eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

„Mikilvægt er að fatlað fólk hafi aðgang að alþjóðlegum kæruleiðum. Með fullgildingu bókunarinnar styrkjum við réttarstöðu fatlaðs fólks og undirstrikum mikilvægi þess að réttindi þess séu virt,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks getur tekið kvörtun til meðferðar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, en meðal annars er kannað hvort mál varði réttindi sem kveðið er á um í samningnum og hvort þegar hafi verið fullreynd þau úrræði sem eru í boði samkvæmt landslögum til að ná fram þeim réttindum, til dæmis með því að bera mál undir dómstóla.

Ef kvartanir uppfylla skilyrðin tekur nefndin þær til umfjöllunar og gefur út ráðgefandi álit. Í kjölfarið þurfa ríki að veita nefndinni upplýsingar um hvernig ætlunin er að bregðast við álitinu.

„Þetta eru tímamót sem við fögnum sérstaklega því sjaldan hefur verið mikilvægara en nú að standa vörð um jaðarsetta hópa í okkar samfélagi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisáðherra. „Mannréttindi tilheyra öllum, alls staðar, á öllum tímum. Að standa vörð um þessi réttindi er ekki einkamál ríkja, heldur sameiginleg ábyrgð alþjóðasamfélagsins.“

Alþingi samþykkti fyrstu landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks árið 2024 en þar var meðal annars kveðið á um að valfrjálsa bókunin yrði fullgild.

Photos from Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið's post 05/06/2026

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhenti í dag Gilbert F. Houngbo, framkvæmdastjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), fullgildingarskjöl Íslands fyrir tvær samþykktir stofnunarinnar: Samþykkt nr. 188 um vinnu við fiskveiðar og samþykkt nr. 191 um að öruggt og heilbrigt starfsumhverfi verði viðurkennt sem grundvallarréttindi.

„Með fullgildingu þessara samþykkta staðfestir Ísland skuldbindingu sína til að tryggja örugg og heilbrigð vinnuskilyrði og standa vörð um grundvallarréttindi fólks á vinnumarkaði,“ segir ráðherra.

03/06/2026

Góður fundur félags- og húsnæðismálaráðherra með Átak félag fólks með þroskahömlun nú í morgun.

Photos from Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið's post 12/05/2026

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað nýja reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna leiðsöguhunda við ferðalög notenda erlendis. Reglugerðin gildir um endurgreiðslu úr ríkissjóði á kostnaði sem fellur til þegar notendur leiðsöguhunda, með lögheimili á Íslandi, ferðast með hunda sína til útlanda. Ákvæðin ná til leiðsöguhunda sem Sjónstöðin hefur úthlutað sem hjálpartæki á grundvelli laga um Sjónstöðina.

Markmið reglugerðarinnar er að tryggja að sá viðbótarkostnaður sem hlýst af ferðalögum með leiðsöguhund, og stafar af skilyrðum sem sett eru í reglum um innflutning hunda og katta og einangrun þeirra, falli ekki á notendurna sjálfa.

Í stað þess verður kostnaðurinn endurgreiddur úr ríkissjóði, samkvæmt nánari útfærslu í reglugerðinni. Heilbrigðisskoðun dýralæknis fyrir brottför frá Íslandi er endurgreiddur, útflutningsáritun, heilbrigðisskoðun dýralæknis erlendis fyrir komu til Íslands, gjöld tengd innflutningsleyfi og kostnaður vegna sóttvarnarráðstafana og einangrunar við komu til Íslands.

„Breytingunni er ætlað að gera notendum leiðsöguhunda auðveldara að ferðast og tryggja jafnræði þeirra til þátttöku í samfélaginu,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson.

Reglugerðin var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda fyrr á árinu. Blindrafélagið fagnaði þar áformunum og undirstrikaði að með þeim væri stigið mikilvægt skref í átt að auknu jafnrétti í samgöngum fyrir þá sem þurfa að ferðast með leiðsöguhunda. Áformin væru í samræmi við markmið um jafnrétti, virka samfélagsþátttöku og skuldbindingar stjórnvalda á sviði réttinda fatlaðs fólks.

14/04/2026

Bætt staða leigjenda og betri leigumarkaður // Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, kynnti í dag umfangsmiklar aðgerðir til að styrkja stöðu leigjenda og bæta leigumarkaðinn. Aðgerðirnar miða að því að auka húsnæðisöryggi og bæta réttarstöðu á leigumarkaði.

„Leigumarkaðurinn þarf að vera sanngjarn og virka fyrir fólk. Leigjendur verða að geta staðið á rétti sínum og búið við öryggi. Með þessum aðgerðum erum við að styrkja réttarstöðu þeirra, tryggja að þeir standi ekki einir þegar á reynir, bæta aðgengi að ráðgjöf og gera leigumarkaðinn sanngjarnari og fyrirsjáanlegri,“ segir félags- og húsnæðismálaráðherra.

Þú finnur allar aðgerðirnar í frétt í fyrstu athugasemd.

10/04/2026

Stuðningur við Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna hefur verið stórefldur, með styrksamkomulagi sem Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, hafa undirritað. Stuðningur félags- og húsnæðismálaráðuneytisins nemur 25 milljónum króna og er um meira en þreföldun styrkupphæðar að ræða miðað við árið í fyrra.

▶️Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna tekur samkvæmt samkomulaginu að sér að veita leigjendum og leigusölum íbúðarhúsnæðis upplýsingar um rétt þeirra og skyldur samkvæmt húsaleigulögum.

▶️Leigjendaaðstoðin veitir leigjendum einnig lögfræðiráðgjöf þegar upp kemur ágreiningur vegna leigusamninga um íbúðarhúsnæði.

„Það er lykilatriði að leigjendur standi ekki einir þegar á reynir. Með þessum aukna stuðningi erum við að styrkja þjónustu sem nýtist heimilum um land allt. Jafnframt skiptir máli að leigusalar þekki skyldur sínar og hafi aðgang að ráðgjöf og stuðningi,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

„Leigumarkaðurinn hefur reynst mörgum krefjandi og þörfin fyrir góða og áreiðanlega ráðgjöf er mikil. Með þessum stóraukna stuðningi getum við styrkt þjónustuna verulega og tryggt að fleiri fái þá þjónustu sem þeir þurfa,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.

Þjónusta Leigjendaaðstoðarinnar er fólki að kostnaðarlausu. Reglulegir símatímar eru á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 12:30-15:00.

Margvíslegar upplýsingar um réttindi og skyldur leigjenda og leigusala eru á vef Leigjendaaðstoðarinnar - sjá hlekk á vefinn í fyrstu athugasemd hér fyrir neðan. Finna má upplýsingar á vefnum á íslensku, ensku, pólsku og úkraínsku. Þar er einnig hægt að finna algengar spurningar og svör og senda fyrirspurnir rafrænt.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Skúlagata 4
Reykjavík
101