Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Share

Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið tekur ekki á móti fyrirspurnum í gegnum samfélagsmiðla. Sé þess óskað, er hægt að senda erindi á [email protected]

Markmið menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytisins er að virkja kraft íslensku þjóðarinnar enn frekar svo hugvitið auðgi bæði andann og hagkerfið til framtíðar.

18/06/2026

14 hillukílómetrar!
Mikilvægum áfanga í húsnæðismálum Þjóðskjalasafns var fagnað með opnun nýs varðveisluhúsnæðis í Sundaborg í Reykjavík. Húsnæðið rúmar 14 hillukílómetra af skjölum sem komið er fyrir í tvílyftu rafdrifnu hillukerfi sem er hið fyrsta sinnar tegundar á landinu.

Photos from Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið's post 17/06/2026

🎉Vel heppnuð ráðstefna um menningu og listir á landsbyggðunum🎉

Ráðstefnan Skapandi Austurland fór fram á Eskifirði 11. júní og var afar vel sótt. Þar var sjónum beint að stöðu, tækifærum og framtíð lista og menningar á landsbyggðunum.

Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í ráðuneytinu, hélt erindið „Íslenskt menningarlíf – stefna, stuðningur og starfsumhverfi“, þar sem hún fjallaði um aðkomu ráðuneytisins að málaflokknum á breiðum grundvelli.

Dagskráin var fjölbreytt og lifandi, með erindum, pallborðsumræðum, vinnustofum og kynningum frá Rannsóknarsetri skapandi greina og listamiðstöðvum. Að ráðstefnu lokinni var farið í heimsókn á myndlistarsýningu á Reyðarfirði og í Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði.

Sérstakur þakklætisvottur var færður Signýju Ormarsdóttur, verkefnastjóra menningarmála hjá Austurbrú, sem lætur af störfum í sumar eftir aldarfjórðung í starfi.

Ráðstefnan var haldin að frumkvæði Austurbrúar, ráðuneytisins og Menningarstofu Fjarðabyggðar — kærar þakkir fyrir samtalið, innblásturinn og frábæra þátttöku.

Barna­menning mótar raddir fram­tíðar - Vísir 05/06/2026

Ráðherra skrifar um barnamenningu:
„Barn sem fær tækifæri til að skapa og tjá sig með fjölbreyttum hætti mótar um leið sína eigin rödd og öðlast kjark til að taka virkan þátt í menningu landsins. Þess vegna er barnamenning ekki munaður heldur grunnforsenda skapandi og lýðræðislegs samfélags. Hún eflir lýðræðisvitund, eykur umburðarlyndi og styrkir sjálfstæði og frumkvæði einstaklinga.“

Barna­menning mótar raddir fram­tíðar - Vísir Athyglishagkerfið sem börn alast upp við í dag veldur því að kyrrð, einbeiting, tjáning – og sjálft ímyndunaraflið – eiga undir högg að sækja.

03/06/2026

49 verkefni hljóta styrk í vorúthlutun Tækniþróunarsjóðs.

Verkefnin endurspegla fjölbreytni íslenskrar nýsköpunar og ná meðal annars til heilbrigðistækni, gervigreindar, sjálfbærrar matvælaframleiðslu, orkuskipta, hugbúnaðarlausna, líftækni og umhverfistækni. Sjà nànar à mnh.is

Photos from Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið's post 01/06/2026

Á degi barnsins 31.maí var styrkjum úr barnamenningarsjóði og bókasafnssjóði úthlutað. Úthlutunin fór fram í Höfuðstöðinni þar sem Hljómsveit 2 úr Tónskóla Sigursveins spilaði fyrir gesti í sumarblíðunni. Gleðilega menningu!

01/06/2026

„Bæði frumvörpin marka tímamót eftir mikla vinnu og samráð. Hér er um að ræða stór skref í átt að öflugra þekkingarsamfélagi á Íslandi og verðmætasköpun til framtíðar á forsendum hugvitsins. Við erum einbeitt í að efla rannsóknir, nýsköpun og háskólastarf á Íslandi enda hefur nauðsyn þess líklega aldrei verið meiri en í dag,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

27/05/2026

15 sjálfstætt starfandi fræðimenn fá styrk úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna fyrir árið 2026. Sjá nánar á mnh.is

Í sund í sumar: 22 menningarviðburðir hljóta styrk 05/05/2026

💦Hittast í sundsalsa eða vaðmálsklæddum sundpretti?

22 menningarviðburðir hljóta styrk. Verkefnin eru fjölbreytt og vítt og breytt um landið en meðal þess sem boðið verður upp á er sundsalsa, sundkeppni í sögulegum vaðmálsklæðnaði, kórasöngur, sundsirkus og fljótandi kokteilkvöld með ætum blómum. 🌻

Í sund í sumar: 22 menningarviðburðir hljóta styrk Í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var í desember staðfest á lista UNESCO yfir óáþreifanlega menningararf heims, auglýsti Þjóðminjasafn Íslands, í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlau...

Photos from Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland's post 05/05/2026

Svo fallegt! Sýningin Brúðarbúningurinn opnar n.k. laugardag í Þjóðminjasafninu.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Reykjastræti 8
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00
Saturday 11:00 - 00:00
Sunday 11:00 - 00:00