Bjartur lífsstíll

Bjartur lífsstíll

Share

Markmið með þessari síðu er að leyfa almenningi að fylgjast með framvindu verkefnisins

Bjartur lífsstíll er samstarfsverkefni Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Landssamband eldri borgara. Markmið verkefnisins eru:
Að stuðla að betri lýðheilsu eldra fólks á landsvísu með því að auka heilsulæsi í gegnum hreyfingu og fræðslu. Að veita þjálfurum og öðrum sem sjá um hreyfingu eldra fólks faglegan stuðning. Að varanlegt hreyfiúrræði standi öllum 60 ára og eldri til boða í öllum helstu byggðarkjörnum.

10/06/2026

Ótrúlega flott æfingaráætlun og í þokkabót verður ókeypis þátttaka í sumar. Allir 60+ íbúar velkomnir! 🤩
"Fylgist endilega áfram með uppfærslum og tilkynningum um hugsanlegar breytingar á Facebook." - Virk efri ár, Akureyri.

Fjölnir 09/06/2026

Hvetjum fólk til að kynna sér þetta. Skráning er hafin í Frísk í Fjölni 😀

Fjölnir Finndu námskeið í vefverslun Fjölnir. Keyrt áfram af Abler

04/06/2026

Næsta vika hljómar vel í Boðanum🙌

Vikan í Boðanum.

Photos from Virkni og Vellíðan í Kópavogi's post 02/06/2026

Sumargöngur í boði hjá Virkni og Vellíðan í sumar☀️Göngurnar eru opnar öllum sem hafa áhuga á að taka þátt og verða upplýsingar um hverja göngu birtar Facebook-síðu verkefnisins sem og í gegnum Abler🙌
Lesa má nánar um þær hér að neðan.

02/06/2026

Sniðugt að kíkja á þessa kynningu n.k. fimmtudag. Við hvetjum auðvitað alla til að hreyfa sig í sumar 💪🚶‍♀️‍➡️🚶‍➡️

Langar þig að stunda léttar æfingar heima í sumar?

Kynning á PT Assistance í Íþróttahöllinni (Teríu; 2. hæð) á fimmtudaginn 4. júní kl. 11.00.

Ókeypis kynning, skráning og notkun fyrir alla 60+ á snjallforritinu!

Til uppl.: Virk efri ár og PT Assistance hlutu til þessa styrk úr Lýðheilsusjóði.

02/06/2026

Sumardagskráin hjá Félagsmiðstöðinni Hraunbæ☀️🌺

Sumardagskráin mætt🌼 Aðrir viðburðir auglýstir þegar við á🍀

30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar 28/05/2026

Ísafjarðarbær fagnar 30 ára afmæli mánudaginn 1.júní. Margt að gera sem vert er að skoða 🎂🥳

30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar 30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar

„Íþróttir hafa haldið mér gangandi í 80 ár“ - Ungmennafélag Íslands 27/05/2026

Stutt er í Landsmót UMFÍ 50+ & hefur Þorbergur Þórðarson mætt á hverju ári síðan 2017🥳 UMFÍ tók skemmtilegt viðtal við hann á dögunum😊
"Ég hef notað gullskóna mína í fjörutíu ár og nota þá enn. Þetta eru lukkuskórnir", segir hann.
Við hvetjum alla til að skrá sig á mótið, njóta vel og hreyfa sig í góðum félagsskap🤗

„Íþróttir hafa haldið mér gangandi í 80 ár“ - Ungmennafélag Íslands Þorbergur Þórðarson ætlar ekki að láta sig vanta á Landsmót UMFÍ 50+ í Eyjafjarðarsveit. Hann er 88 ára og ætlar að keppa í boccía í 40 ára gömlum lukkuskóm.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Engjavegi 6
Reykjavík
104