Þjónustu- og þekkingarmiðstöð

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð

Share

Virðing - Þekking - Jafnrétti - Þjónusta - Framsækni

12/05/2026

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað nýja reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna leiðsöguhunda við ferðalög notenda erlendis.

Reglugerðin gildir um endurgreiðslu úr ríkissjóði á kostnaði sem fellur til þegar notendur leiðsöguhunda, með lögheimili á Íslandi, ferðast með hunda sína til útlanda. Ákvæðin ná til leiðsöguhunda sem Sjónstöðin hefur úthlutað sem hjálpartæki á grundvelli laga um Sjónstöðina.

Markmið reglugerðarinnar er að tryggja að sá viðbótarkostnaður sem hlýst af ferðalögum með leiðsöguhund, og stafar af skilyrðum sem sett eru í reglum um innflutning hunda og katta og einangrun þeirra, falli ekki á notendurna sjálfa.

Í stað þess verður kostnaðurinn endurgreiddur úr ríkissjóði, samkvæmt nánari útfærslu í reglugerðinni. Heilbrigðisskoðun dýralæknis fyrir brottför frá Íslandi er endurgreiddur, útflutningsáritun, heilbrigðisskoðun dýralæknis erlendis fyrir komu til Íslands, gjöld tengd innflutningsleyfi og kostnaður vegna sóttvarnarráðstafana og einangrunar við komu til Íslands.

„Breytingunni er ætlað að gera notendum leiðsöguhunda auðveldara að ferðast og tryggja jafnræði þeirra til þátttöku í samfélaginu,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson.

Reglugerðin var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda fyrr á árinu. Blindrafélagið fagnaði þar áformunum og undirstrikaði að með þeim væri stigið mikilvægt skref í átt að auknu jafnrétti í samgöngum fyrir þá sem þurfa að ferðast með leiðsöguhunda. Áformin væru í samræmi við markmið um jafnrétti, virka samfélagsþátttöku og skuldbindingar stjórnvalda á sviði réttinda fatlaðs fólks.

Öndunar- og líkamsvitundarnámskeið – Grunnnámskeið | Sjónstöðin 19/03/2026

Í apríl býður Sjónstöðin upp á námskeið sem fjallar um hvernig öndun, líkamsstaða og taugakerfi vinna saman og hvernig við getum með einföldum æfingum aukið slökun, líkamsvitund og betra jafnvægi í daglegu lífi.

Öndunar- og líkamsvitundarnámskeið – Grunnnámskeið | Sjónstöðin Í apríl býður Sjónstöðin upp á námskeið sem fjallar um hvernig öndun, líkamsstaða og taugakerfi vinna saman og hvernig við getum með einföldum æfingum aukið slökun, líkamsvitund og betra jafnvægi í daglegu lífi.

Könnun um atvinnuþátttöku blindra og sjónskertra | Sjónstöðin 19/03/2026

Í júní 2025 lét Sjónstöðin framkvæma könnun meðal notenda á atvinnualdri (18-67 ára) um atvinnuþátttöku blindra og sjónskertra.

Könnun um atvinnuþátttöku blindra og sjónskertra | Sjónstöðin Í júní 2025 lét Sjónstöðin framkvæma könnun meðal notenda á atvinnualdri (18-67 ára). Breytingar á örorkulífeyriskerfinu tóku gildi 1. september sama ár og var markmið könnunarinnar að afla gagna um stöðu blindra og sjónskertra á vinnumarkaði áður en breytingarnar áttu s....

Sjónstöðin tekur þátt í þróun nýrrar tækni | Sjónstöðin 27/02/2026

Sjónstöðin mun taka þátt í þróun nýrrar tækni og matstækja á sjón sem miðar að því að bæta mat og eftirfylgni hjá fólki með mismunandi sjónskerðingar.

Sjónstöðin tekur þátt í þróun nýrrar tækni | Sjónstöðin Sjónstöðin mun taka þátt í þróun nýrrar tækni og matstækja á sjón sem miðar að því að bæta mat og eftirfylgni hjá fólki með mismunandi sjónskerðingar. Verkefnið er á fyrstu stigum þróunar og er ekki aðgengilegt almenningi enn sem komið er.

Námskeiðið, "Get ég elskað lífið mitt eins og ég ætlaði ekki að hafa það?", fyrir blinda og sjónskerta | Sjónstöðin 03/02/2026

Sjónstöðin heldur námskeiðið; Get ég elskað lífið mitt eins og ég ætlaði ekki að hafa það?

Námskeiðið, "Get ég elskað lífið mitt eins og ég ætlaði ekki að hafa það?", fyrir blinda og sjónskerta | Sjónstöðin Hugarfar hefur áhrif á hvernig fólk tekst á við áföll og tilfinningar sem fólk upplifir þegar það missir sjón eða sjón minnkar. T.d. þegar hvíti stafurinn er orðinn nauðsynlegt hjálpartæki og einkabíllinn hættir að vera valkostur.

Námskeið í ACT | Sjónstöðin 22/01/2026

Sjónstöðin auglýsir námskeið í ACT fyrir notendur Sjónstöðvarinnar. ACT (Acceptance and Commitment Therapy) miðar að því að auka sálrænan sveigjanleika.

Námskeið í ACT | Sjónstöðin Sjónstöðin auglýsir námskeið í ACT fyrir notendur Sjónstöðvarinnar. ACT (Acceptance and Commitment Therapy) miðar að því að auka sálrænan sveigjanleika.

Uplýsingar um rafræn skilríki fyrir notendur Sjónstöðvarinnar | Sjónstöðin 13/01/2026

Uplýsingar um rafræn skilríki fyrir notendur Sjónstöðvarinnar

Uplýsingar um rafræn skilríki fyrir notendur Sjónstöðvarinnar | Sjónstöðin Flestir þjónustuveitendur á borð við banka og stofnanir ríkis og sveitarfélaga bjóða eingöngu upp á að viðskiptavinir auðkenni sig með rafrænum skilríkjum í farsíma. Einnig er nauðsynlegt að geta skrifað fjögurra stafa pin-númer á tilteknum tíma svo auðkennið renni ekki ....

Opinn hjálpartækjatími | Sjónstöðin 08/01/2026

Sjónstöðin býður notendum sínum að koma í opinn hjálpartækjatíma, þar sem hægt er að koma með úthlutuð tæki frá Sjónstöðinni og fá fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við notkun.

Opinn hjálpartækjatími | Sjónstöðin Sjónstöðin býður notendum sínum að koma í opinn hjálpartækjatíma, þar sem hægt er að koma með úthlutuð tæki frá Sjónstöðinni og fá fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við notkun.

Áramótakveðja frá Sjónstöðinni | Sjónstöðin 30/12/2025

Starfsfólk Sjónstöðvarinnar óskar notendum, aðstandendum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs, með þökk fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem senn er á enda.

Áramótakveðja frá Sjónstöðinni | Sjónstöðin Starfsfólk Sjónstöðvarinnar óskar notendum, aðstandendum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs, með þökk fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem senn er á enda.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Hamrahlíð 17
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00
Friday 10:00 - 13:00