30/04/2025
Von bráðar bætast við 4 flottir tannsmiðir við fagið okkar en þau kynntu lokaverkefni sín í dag fyrir nemendum og kennurum🥳
Til hamingju öll!
Artem Tselichtchev💐
Emilía Dögg Arnardóttir💐
Jóna Kolbrún Helgadóttir💐
Kristófer Jónsson💐
03/05/2024
Í gær var verkefnakynning útskriftanema Námsbrautar í tannsmíði en þess má geta að það eru fimmtán ár síðan námsleiðin var sett á fót!
Enn og aftur óskum við þessum flottu tannsmiðum til hamingju með áfangann en niðurstöður verkefna þeirra voru mjög áhugaverðar og við hvetjum ykkur eindregið til að kynna ykkur þær inn á skemman.is, þau verða birt í júní.
Til hamingju🎉
🎗Agnes Stefánsdóttir
🎗Arndís Hjörleifsdóttir
🎗Monika Birta Baldvinsdóttir
🎗Sonja Rut Davíðsdóttir
🎗Tinna Rúnarsdóttir
03/03/2024
Þessir flottu nemendur stóðu vaktina (ásamt fleirum) á Háskóladeginum í gær og fræddu gesti og gangandi um nám og störf tannsmiða 🙌🏼
Ekki náðist að taka mynd af öllum nemendum sökum anna en slíkur var áhuginn á básnum okkar😎
02/03/2024
Komdu á Háskóladaginn og spáðu í framtíðina! 🔮✨
Spennandi kynning í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands, Laugarnesi kl. 12-15.
07/02/2024
Ivoclar bauð nemendum og kennurum Námsbrautar í tannsmíði upp á tveggja daga námskeið í húsnæði skólans, þar sem nemendur voru fræddir um mismunandi aðferðir við fræsta heilgóma en þá sérstaklega Ivotion Monolithic aðferðina. Þeir fengu svo að spreyta sig á sínu eigin setti. Nemendur stóðu sig sérstaklega vel og fengu að lokum þetta fína skírteini fyrir þáttökuna. Við þökkum Rasmus Ekeholm fyrir heimsóknina og fræðsluna, algjörlega frábær viðbót við CAD-CAM kennsluna í tannsmíðanáminu!👏
05/05/2023
6 glænýjir tannsmiðir kynntu lokaverkefni sín fyrir nemendum og kennurum Námsbrautar í tannsmíði í gær. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn! 🥳🥂
👏Signý Eir Guðmundsdóttir
👏Jana Dröfn Sævarsdóttir
👏Ólöf Ylfa Loftsdóttir
👏Fanndís Hjálmarsdóttir
👏Bryndís Hong Dao Ingvadóttir
👏Helena Rós Sigurðardóttir
06/10/2022
Námsskráin náði nýjum hæðum þetta misseri þar sem þrívíddaprentun rataði inn í námsefnið í fyrsta sinn. Nemendur stóðu sig einstaklega vel að skilja og vinna með digital workflow-ið! 💪🏻
05/05/2022
Innilegar hamingjuóskir til splúnkunýrra tannsmiða vorið 2022!
💐Ásta Lind Hannesdóttir Granz
💐Benjamín Viktor Baldursson
💐Elsa Hlíðberg Hauksdóttir
💐Indiana Nicole Taroni
💐Sunna Birgisdóttir
Við kennarar við Námsbrautina óskum útskriftanemum okkar velfarnaðar í störfum sínum 🥳
Við notuðum tækifærið og kvöddum hann Jörgen almennilega sem hefur því miður ákveðið að yfirgefa okkur og þökkum við honum fyrir frábært starf 💛
05/05/2022
Og hér kemur slóðin á streymið!
Join our Cloud HD Video Meeting
Zoom is the leader in modern enterprise video communications, with an easy, reliable cloud platform for video and audio conferencing, chat, and webinars across mobile, desktop, and room systems. Zoom Rooms is the original software-based conference room solution used around the world in board, confer...
05/05/2022
Í dag kl. 10 munu útskriftanemar Námsbrautar í tannsmíði kynna sín lokaverkefni sem hluti af brautskráningu þeirra en 5 nýjir tannsmiðir útskrifast frá Háskóla Íslands þann 25.júní n.k.
Fyrir áhugasama verður viðburðnum streymt á facebook síðu námsleiðarinnar.