Hugverkastofan

Call Directions Website Contact the organization

Hugverkastofan Hugverkastofan heldur utan um skráningar og umsóknir um einkaleyfi, vörumerki, hönnun og byggðarmerki Stofnunin tók til starfa 1. nr. 24/2006.

Hugverkastofan aðstoðar fólk við að breyta hugmyndum sínum í verðmæti. Hugverk er að finna í öllum fyrirtækjum en þau eru ein mikilvægasta auðlindin okkar. Með því að skrá, upplýsa og veita ráðgjöf, þá spilum við stórt hlutverk í að vernda og hámarka verðmæti hugverka á Íslandi. Hugverkastofan er ríkisstofnun undir yfirstjórn atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. júlí 1991 og tók þá við hlutverki einkaleyfa- og vörumerkjadeildar iðnaðarráðuneytisins. Skipulag og starfssvið stofnunarinnar markast af auglýsingu nr. 187/1991 og reglugerð nr. 188/1991. Stofnunin fer með málefni varðandi einkaleyfi, vörumerki, hönnunarvernd, byggðarmerki og önnur hliðstæð réttindi. Frá árinu 2006 hefur faggildingarsvið ISAC starfað innan Hugverkastofunnar. ISAC er skammstöfun á ensku heiti sviðsins, "Icelandic Board for Technical Accrediation". Faggildingarsvið er sjálfstætt starfandi svið innan Hugverkastofunnar og markast starfsemi þess af lögum um faggildingu o.fl.

Vefur Hugverkastofunnar (hugverk.is) hefur fengið nýtt útlit. Vefstofan Vettvangur annaðist hönnun og vefun, en hönnunar...
14/10/2026

Vefur Hugverkastofunnar (hugverk.is) hefur fengið nýtt útlit. Vefstofan Vettvangur annaðist hönnun og vefun, en hönnunarstaðallinn sem nýtt útlit byggir á, var unninn af hönnunarstofunni Kolofon fyrr á þessu ári.

Skipulag vefsins helst að mestu leyti óbreytt, en samhliða útlitsuppfærslunni voru gerðar smávægilegar breytingar á virkni. Þar má meðal annars enn ítarlegri leitarskilyrði í vörumerkjaleit og aðgerðir á spjöldum vörumerkja, einkaleyfa og hönnunar.

Við hvetjum gesti til að kynna sér nýtt útlit vefsins og tökum vel á móti ábendingum.

Forsætisráðherra Ítalíu, Giorgia Meloni, lagði í síðustu viku inn umsókn um vörumerkjaskráningu hjá Hugverkastofu Evrópu...
12/10/2026

Forsætisráðherra Ítalíu, Giorgia Meloni, lagði í síðustu viku inn umsókn um vörumerkjaskráningu hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) fyrir hljóðmerki þar sem hún segir einfaldlega „Ég er Giorgia Meloni“ á ítölsku, tvisvar sinnum. Umsóknin hefur vakið mikla athygli en ljóst er að tilgangurinn er að verjast djúpfölsunum með gervigreind (e. AI deepfakes). Fetar forsætisráðherrann þannig í fótspor þekktra leikara og söngvara sem hafa lagt inn sambærilegar umsóknir hjá bandarísku hugverkastofunni.

Það verður áhugavert að fylgjast með hvort EUIPO samþykki umsóknina til birtingar og telji þar með röddina í hljóðbrotinu hafa sérkenni og aðgreiningarhæfi. Til lengri tíma er ekki síður áhugavert að fylgjast með hvernig hugverkarétturinn muni þróast í takt við tækninýjungar og þær fjölmörgu áskoranir sem gervigreindin hefur í för með sér.

Giorgia Meloni submitted a four-second audio to a EU agency in a bid to protect her voice from deepfakes.

Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 verða veitt á Nýsköpunarþingi  í Grósku 29. október kl. 14:00-16:00.  Á Nýsköpunarþingi ...
06/10/2026

Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 verða veitt á Nýsköpunarþingi í Grósku 29. október kl. 14:00-16:00.

Á Nýsköpunarþingi 2026 verður sjónum beint að tækifærum og áskorunum í nýsköpun á landsbyggðinni. Fulltrúar fyrirtækja og frumkvöðlar úr ólíkum atvinnugreinum og landshlutum segja frá sinni reynslu af nýsköpun og hvað þurfi til að góð hugmynd vaxi og dafni á landsbyggðinni? Hvaða tækifæri felast í staðbundinni þekkingu og sérstöðu ólíkra svæða?

Stofnanirnar sem standa að Nýsköpunarþingi: Hugverkastofan, RANNÍS, Nýsköpunarsjóðurinn Kría og Íslandsstofa (Business Iceland) ásamt KLAK - Icelandic Startups og Iceban - Íslenskir englafjárfestar, bjóða í morgunkaffi þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast betur þeirri þjónustu, stuðningi og tækifærum sem þær bjóða frumkvöðlum og fyrirtækjum.

Ísland er í tuttugasta og sjötta sæti landa í heiminum í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar (W...
01/10/2026

Ísland er í tuttugasta og sjötta sæti landa í heiminum í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar (World Intellectual Property Organization, WIPO), Global Innovation Index 2026 og lækkar um tvö sæti frá í fyrra. Ísland var í 17. sæti vísitölunnar árið 2021 og hefur fallið um níu sæti á fimm árum.

Ísland heldur stöðu sinni nokkuð vel á milli ára þegar litið er til aðstæðna til nýsköpunar og er þar í 21. sæti en var í 20. sæti í fyrra. Þegar hins vegar er horft til afraksturs nýsköpunar hefur Ísland fallið niður í 33. sæti, úr 29. sæti í fyrra og úr 16. sæti árið 2021 og hefur aldrei verið neðar á listanum.

„Það er mjög jákvætt að sjá að aðstæður til nýsköpunar eru hér almennt taldar nokkuð góðar en það er hins vegar umhugsunarefni að góðar aðstæður og fjárfesting í nýsköpun virðast ekki skila sér nægilega vel í afurðum, fyrirtækjum og útflutningi,“ segir Borghildur Erlingsdottir, forstjóri Hugverkastofunnar. „Nýsköpunarvísitala WIPO veitir gott tækifæri til að greina hvar skóinn kreppir, hvað við erum að gera vel og hvað við getum gert betur til að færa aðstæður og afrakstur nýsköpunar nær því sem gerist á hinum Norðurlöndunum. Það er t.d. mjög áhugavert að sjá að hlutfallslega færri háskólanemar útskrifast hér úr vísinda- og tæknigreinum en almennt gerist í þeim löndum sem við berum okkur saman við og fer frekar fækkandi. Þar eru bersýnilega tækifæri til úrbóta.“

Sviss, Svíþjóð, Bandaríkin, S-Kórea og Singapore skipa fimm efstu sæti listans í ár. Ísland er nú í 15. sæti listans af 39 Evrópuþjóðum. Hin Norðurlöndin raðast sem fyrr hátt á listanum þar sem Svíþjóð er í næstefsta sæti eins og í fyrra, Finnland er í 7. sæti, Danmörk í 9. sæti og Noregur í því 21.

Ísland skorar í ár hátt fyrir innviði og stofnanir en hins vegar lágt fyrir mannauð og rannsóknir og fyrir afrakstur þekkingar og tækni. Helsta ástæða þess að Ísland fellur á listanum á milli ára er lækkun á einkunn fyrir afrakstur skapandi greina sem skýrist af lækkun einkunnar fyrir nokkra mælikvarða en einnig af því að önnur lönd hafa hækkað í einkunn.

Þegar litið er til einstakra mælikvarða skorar Ísland hæst allra landa fyrir rafmagnsframleiðslu á íbúa, notkun á umhverfisvænni orku og fjölda höfuðléna. Ísland skorar hins vegar lágt fyrir stærð innanlandsmarkaðar (133. sæti), landsframleiðslu miðað við orkunotkun (130. sæti), fjölda hönnunarskráninga miðað við landsframleiðslu (107. sæti) og hlutfall háskólanema sem útskrifast úr STEM-greinum (100. sæti).

30/09/2026

„Það er ákveðinn þröskuldur fyrir fólk sem ekki lifir og hrærist í listum að stíga inn í listagallerí,“ segir Jóhann Ágúst Hansen, framkvæmdastjóri og annar eigenda Gallerís Foldar. „En myndlist er fyrir alla og netið hefur lækkað þennan þröskuld og mun fleiri taka nú þátt í uppboðum gallerísins á netinu en mættu áður á uppboð í raunheimum.“

Gallerí Fold er umboðsaðili fyrir um 40 íslenska myndlistarmenn og hægt er að kaupa verk eftir þá í galleríinu sem auk þess setur reglulega upp sýningar með verkum þeirra. Hinn hluti starfseminnar felst í listaverkauppboðum sem Jóhann segir að hafi færst alveg á netið eftir COVID. Hann játar því að það geti verið mjög taugatrekkjandi að fylgjast með uppboðunum, sérstaklega þegar verðmæt verk eru boðin upp.

Orð- og myndmerki Gallerís Foldar er skráð vörumerki septembermánaðar hjá Hugverkastofunni. Af því tilefni litum við inn á Rauðarárstíginn og spjölluðum við Jóhann um listina, galleríið, uppboðin og fleira.

Gallerí Fold

Hlekkur á viðtal við Jóhann í fyrstu athugasemd.

Fjölmörg fyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi og tengdum iðnaði og þjónustu nota skráningu á vörumerkjum til að tryggja sé...
21/09/2026

Fjölmörg fyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi og tengdum iðnaði og þjónustu nota skráningu á vörumerkjum til að tryggja sér einkarétt á notkun þeirra. Í tilefni ICEFISH sýningarinnar 22. - 24. september tókum við saman nokkur skráð vörumerki úr bláa hagkerfinu.

IceFish

Vörumerki eru tákn sem fólk og fyrirtæki í atvinnustarfsemi nota til að auðkenna sínar vörur og þjónustu. Skráð vörumerki tryggir eiganda þess einkarétt á notkun merkisins fyrir ákveðnar vörur og þjónustu og eigandi vörumerkis getur bannað notkun á eins eða líku merki fyri...

Borghildur Erlingsdottir, forstjóri Hugverkastofunnar og Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóri menningar-, nýsköp...
16/09/2026

Borghildur Erlingsdottir, forstjóri Hugverkastofunnar og Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóri menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, heimsóttu höfuðstöðvar Evrópsku einkaleyfastofunnar (European Patent Office, EPO) í München í vikunni.

Þær funduðu með António Campinos, forstjóra EPO, um framlag Íslands til nýsköpunar í Evrópu, hvernig einkaleyfi og önnur hugverkaréttindi geta stutt við vöxt á komandi árum og hvar tækifæri liggja til frekara samstarfs.

Heimsóknin var hluti af samráði Evrópsku einkaleyfastofunnar við aðildarríki og hagaðila vegna stefnumótunarverkefnisins „Scenarios for the Future 2025–2045“ þar sem rýnt er í þróun nýsköpunar og hugverkaréttinda á komandi áratugum.

Samstarf Hugverkastofunnar og Evrópsku einkaleyfastofunnar stendur á gömlum grunni en Ísland hefur átt aðild að Evrópska einkaleyfasamningnum frá 1. nóvember 2004. Árlegur samráðsfundur aðildarríkja EPO og verðlaunahátíð Hugvitsverðlauna EPO fyrir unga frumkvöðla (Young Inventors Prize) fóru fram í Reykjavík í fyrravor.

Evrópska einkaleyfastofan tekur við umsóknum um evrópsk einkaleyfi, rannsakar þær og veitir einkaleyfi sem geta tekið gildi í öllum 40 aðildarríkjunum. Stofnunin er ein stærsta alþjóðastofnun í Evrópu með um 6.300 starfsmenn. Flest þeirra rúmlega 9000 einkaleyfa sem eru í gildi á Íslandi eru evrópsk einkaleyfi sem staðfest hafa verið hér á landi.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

08/09/2026

„Hverjum dettur í hug að re-branda krossinn!?“

Nýtt hreyfimerki Þjóðkirkjunnar er skráð vörumerki mánaðarins hjá Hugverkastofunni.

Hlekkur á viðtal við Heimi Hannesson, samskiptastjóra Þjóðkirkjunnar í fyrstu athugasemd.

Kirkjan

„Þjóðkirkjan og kristin trú standa fyrir gildi sem við erum í raun öll sammála um og við ákváðum að setja fókus á þessi ...
07/09/2026

„Þjóðkirkjan og kristin trú standa fyrir gildi sem við erum í raun öll sammála um og við ákváðum að setja fókus á þessi sameiginlegu gildi í nýrri ásýnd Þjóðkirkjunnar,“ segir Heimir Hannesson, samskiptastjóri Þjóðkirkjunnar. Nýtt hreyfimerki í eigu Þjóðkirkjunnar er skráð vörumerki ágústmánaðar hjá Hugverkastofunni.

Kirkjan

„Þjóðkirkjan og kristin trú standa fyrir gildi sem við erum í raun öll sammála um og við ákváðum að setja fókus á þessi sameiginlegu gildi í nýrri ásýnd Þjóðkirkjunnar,“ segir Heimir Hannesson, samskiptastjóri Þjóðkirkjunnar. Nýtt hreyfimerki í eigu Þjóðkirkjunnar...

Það hafa aldrei fleiri umsóknir um skráningu íslenskra vörumerkja borist Hugverkastofunni í júlímánuði en í ár, en alls ...
13/08/2026

Það hafa aldrei fleiri umsóknir um skráningu íslenskra vörumerkja borist Hugverkastofunni í júlímánuði en í ár, en alls bárust 90 umsóknir í nýliðnum mánuði. Nú eru nærri átta þúsund íslensk vörumerki skráð hér á landi og hafa þau aldrei verið fleiri.

Einnig hefur náðst að stytta málsmeðferðartíma umsókna verulega og nú er algengt að niðurstaða liggi fyrir á örfáum dögum, í stað nokkurra vikna áður. Styttri afgreiðslutími skýrist meðal annars af því að Hugverkatíðindi, þar sem skráð vörumerki og önnur hugverkaréttindi eru gerð aðgengileg almenningi, eru nú gefin út vikulega í stað mánaðarlega áður. Þá hefur nýtt rannsóknakerfi til að ákvarða skráningarhæfi vörumerkja einnig stuðlað að styttri málsmeðferðartíma. Styttri málsmeðferð þýðir að umsækjendur fá fyrr úr því skorið hvort umsókn uppfylli skilyrði fyrir skráningu og geta þar með skipulagt markaðssetningu og annan rekstur með meiri fyrirvara og öryggi.

„Þetta er mjög ánægjuleg þróun sem endurspeglar vaxandi vitund íslenskra fyrirtækja um mikilvægi þess að verja þau verðmæti sem felast í vörumerkjum, hvort sem um ræðir fyrirtækjaheiti, vöruheiti, lógó eða slagorð," segir Borghildur Erlingsdottir, forstjóri Hugverkastofunnar. „Við viljum tryggja að afgreiðslan hjá okkur haldi í við þennan aukna áhuga og það hefur tekist og gott betur."

Address

Katrínartún 4
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00
Friday 10:00 - 15:00

Telephone

+3545809400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hugverkastofan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Hugverkastofan:

Shortcuts

Share