18/06/2026
Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson kom til heimahafnar á Vopnafirði um síðustu helgi.
Skipið er það sjöunda í röð nýrra björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar og var því tekið fagnandi þegar það þegar lagðist við bryggju á sunnudag.
Við móttökuathöfnina blessaði séra María Guðrún Ljungberg, sóknarprestur, skipið og Borghildur Sverrisdóttir afhenti skipstjóra og formanni Björgunarbátasjóðs Vopnafjarðar sjóferðabænina á skildi til varðveislu um borð.
Sveinbjörn Sveinsson mun gegna mikilvægu hlutverki í öryggis og björgunarstarfi á svæðinu um ókomin ár.
Að athöfn lokinni bauð Slysavarnadeildin Sjöfn gestum upp á veitingar í björgunarsveitarhúsinu.
👏 Við óskum félagsfólki Landsbjargar fyrir austan og heimamönnum öllum innilega til hamingju með nýja björgunarskipið.
20/05/2026
Slysavarnafélagið Landsbjörg og finnska skipasmíðafyrirtækið KewaTec hafa gengið frá samningi um smíði níunda björgunarskips félagsins.
Undanfarin ár hefur verið unnið markvisst að endurnýjun björgunarskipa Landsbjargar um land allt. Markmiðið er að smíða 13 ný skip og því eru það sannarlega gleðileg tíðindi að smíði níunda skipsins hafi nú verið samþykkt.
Níunda skipið fer til Neskaupstaðar á vormánuðum 2027 og mun þar leysa af hólmi eldra björgunarskip.
⚓ Nú þegar eru s*x ný björgunarskip komin í notkun, í Vestmannaeyjum, á Siglufirði, í Reykjavík, á Rifi, í Hornafirði og á Ísafirði.
12/05/2026
Slysavarnafélagið Landsbjörg tók þátt í flugslysaæfingu Almannavarna og Isavia sem haldin var á Akureyrarflugvelli síðasta laugardag. Æfingar sem þessar eru haldnar reglulega víða um land en æfingin á Akureyri var sú fyrsta á þessu ári.
Á æfingunni var líkt eftir því að farþegaþota hefði farist. Björgunar- og slökkviaðgerðir voru æfðar, sem og greining og aðhlynning slasaðra á vettvangi og á söfnunarsvæði slasaðra á flugvellinum. Áhersla var meðal annars lögð á flutning slasaðra, boðunarkerfi, vettvangsstjórnun, samhæfingu og fjarskipti.
Um 250 manns tóku þátt í æfingunni. Auk björgunarsveita komu að henni fulltrúar Almannavarna, Landhelgisgæslunnar, Landspítalans, lögreglu, slökkviliðs, Rauða krossins og Sjúkrahússins á Akureyri. Þá tók fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa einnig þátt.
Æfingar sem þessar eru mikilvægar fyrir alla viðbragðsaðila og stuðla að samhæfðum vinnubrögðum ef alvarlegir atburðir verða.
✈️ Næsta æfing verður á Ísafjarðarflugvelli 30. maí næstkomandi. Þriðja og síðasta æfing ársins verður síðan haldin á Vopnafjarðarflugvelli 4. júní.
05/05/2026
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sent félögum okkar í Marine Rescue NSW hugheilar samúðarkveðjur vegna hörmulegs slyss þegar tveir félagar þeirra fórust við björgunarstörf. Kveðjan er svohljóðandi:
Today, our hearts are heavy beyond words.
All around the world, the volunteer rescue community mourns the tragic loss of Marine Rescue NSW’s volunteers, people who gave their time, their courage, and their hearts in service of others.
We also remember, with deep sorrow, the person in distress who lost their life in this tragedy, and we extend our heartfelt condolences to their family and loved ones.
Every volunteer who answers the call of the sea knows, deep down, the dangers that may lie beyond the harbour. They know how quickly calm waters can turn treacherous, how unforgiving the sea can be, and how much courage it takes to go out when others are trying to get back in.
And still, they go.
They go because someone is in need. They go because lives may depend on them. They go because that is who they are; selfless, brave, and committed to something greater than themselves.
We bid farewell to two courageous volunteers and lest their loss will be felt deeply across the rescue community, by their families, their friends, their fellow crew members, and by all of us who understand the quiet strength it takes to serve at sea.
To their loved ones and to all members of Marine Rescue NSW, every member of ICE-SAR stand with you in grief, respect, and solidarity.
May their courage never be forgotten, and may the light they carried continue to guide all who go to sea in the service of others.
27/04/2026
Slysavarnafélagið Landsbjörg og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum rituðu undir samstarfsyfirlýsingu á dögunum.
Viljayfirlýsingin snýr að Björgunarskóla Landsbjargar og hefur það að markmiði að tryggja gagnkvæman aðgang að þekkingu og eflingu verklegrar þjálfunar. Hún felur meðal annars í sér aukið námskeiðahald í þjóðgarðinum, nýtingu umhverfis Þingvalla til verklegrar þjálfunar og samstarf um fræðslu- og öryggismál.
📷🤝 Á myndunum má sjá Örnu Björg Arnarsdóttur, skólastjóra Björgunarskólans, og Einar Á. E. Sæmundsen, þjóðgarðsvörð, við undirritun samstarfs yfirlýsingarinnar í fallegu vorveðri.
Á sama tíma stóð yfir námskeiðið Vettvangshjálp í óbyggðum þar sem meðal annars landverðir þjóðgarðsins og björgunarsveitarfólk tóku þátt. Slíkt nám nýtist sérstaklega vel þeim sem starfa fjarri hefðbundinni bráðaþjónustu.
14/04/2026
Björgunarsveitir æfðu snjóflóðarústabjörgun á Ísafirði á dögunum. Mikill undirbúningur lá að baki æfingunni, þar sem markmiðið var að skapa sem raunverulegastar aðstæður.
Færð og snjóflóðahætta á Vestfjörðum settu strik í reikninginn við undirbúninginn, en að lokum fór æfingin fram við góðar aðstæður og tókst vel til.
Hátt í 60 manns tóku þátt, auk tveggja snjóflóðaleitarhunda, og æfðu meðal annars viðbrögð við snjóflóði og rústabjörgun.