18/06/2026
Vaxandi fjárfestingar í varnarmálum, jafnari skipting byrða, ógnin frá Rússlandi og langtímastuðningur við Úkraínu voru efst á baugi á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem fram fór í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.
Var þetta síðasti fundur varnarmálaráðherranna í aðdraganda leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem fram fer í Ankara, Tyrklandi, í byrjun júlí.
Sjá frétt frá utanríkisráðuneytinu í athugasemd.
📸NATO
17/06/2026
Thank you 🙏
STATEMENT BY SECRETARY MARCO RUBIO
June 17, 2026
Iceland National Day
On behalf of the United States of America, I congratulate the people of Iceland as you celebrate your 82nd National Day.
This year marks the 75th anniversary of our bilateral defense agreement. For three-quarters of a century, this partnership has maintained stability across the North Atlantic and Arctic regions. As the United States observes its own 250th year of independence, we remain committed to this shared security alliance.
Beyond defense, our growing economic partnership is a central pillar of our relationship. Icelandic innovation in energy, data centers, biotechnology, the marine economy, and a rising startup sector drives commercial growth and trade opportunities that benefit both our countries.
This commercial success is backed by robust educational ties and the thousands of travelers who cross the Atlantic each year. The United States deeply values this relationship, which is reinforced by the excellent hospitality your people show to visiting Americans.
The United States looks forward to continuing this productive cooperation to support a safe and prosperous region.
I wish all Icelanders a peaceful and pleasant celebration.
https://www.state.gov/releases/office-of-the-spokesperson/2026/06/iceland-national-day-2/
17/06/2026
Thank you 🙏
Join us in celebrating our Ally 🇮🇸 Iceland on their National Day
📸 Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard
17/06/2026
Kæru Íslendingar nær og fjær, gleðilega þjóðhátíð!
Hæ hó, jibbí jei og jibbí jei, það er kominn 17. júní!
16/06/2026
Upplýsingamoli dagsins svarar spurningunni "Krefjast aðildarviðræður ekki aðlögunar að ESB áður en seinni þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram?".
Við vekjum athygli á því að búið er að uppfæra upplýsingasíðu utanríkisráðuneytisins um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem haldin verður 29. ágúst nk. um hvort hefja skuli á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Á síðunni má finna ýmsa nytsamlega upplýsingamola og svör við algengum spurningum sem málið varðar.
Við hvetjum þig til að kíkja á síðuna og kynna þér efnið!
Sjá hlekk í athugasemd.
---
📸Á mynd má sjá fund milli Íslands og ESB í aðildarviðræðunum árið 2010.
Krefjast aðildarviðræðurnar ekki aðlögunar að ESB áður en seinni þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram?
Í aðildarviðræðuferlinu á árunum 2009-2013 varð snemma skilningur milli íslenskra stjórnvalda og Evrópusambandsins um að Ísland myndi ekki ráðast í breytingar á stofnunum og þær lagabreytingar sem af aðild myndi leiða fyrr en fyrir lægi að Ísland yrði aðildarríki.
15/06/2026
Tíu þingmenn úr tveimur lykilnefndum Bandaríkjaþings, þ.e. undirnefnd fjárveitinganefndar fulltrúadeildar um varnarmál (e. House Appropriations Subcommittee on Defence) og fastanefnd fulltrúadeildarinnar um öryggis- og greiningarmál (e. House Permanent Select Committee on Intelligence) heimsóttu Ísland dagana 12. – 15. júní.
S*x þingmannanna voru úr fjárveitinganefndinni og fjórir úr öryggis- og greiningarmálanefndinni og áttu þeir fundi með ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins og embættismönnum á sviði öryggis- og varnarmála. Á fundunum var meðal annars fjallað um nýja varnarstefnu fyrir Ísland, málefni tengd upplýsingaskiptum og greiningargetu, öryggismál á norðurslóðum og mikilvægi Íslands og GIUK-hliðsins, hafsvæðisins milli Grænlands, Íslands og Bretlandseyja, fyrir öryggi Norður-Atlantshafsins og heimavarnir Bandaríkjanna.
„Þessi heimsókn endurspeglar náið öryggis- og varnarsamstarf okkar og Bandaríkjanna og undirstrikar vaxandi mikilvægi Íslands í breyttu öryggisumhverfi á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Við eigum í nánu og virku samráði við Bandaríkin um þessi mál sem og önnur sameiginleg hagsmunamál ríkjanna, sem byggir á nánu samstarfi til áratuga.“
Þá heimsóttu nefndirnar öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli, þar sem þingmennirnir fengu kynningu á aðstæðum, starfsemi og uppbyggingu varnartengdra innviða.
Meðlimir fjárveitinganefndarinnar sem heimsóttu Ísland voru Ken Calvert, formaður, Betty McCollum, Ronny Jackson, Jefferson Shreve, Ed Case og Steve Womack. Fulltrúar nefndarinnar um öryggis- og greiningarmál voru Rick Crawford, formaður, Ann Wagner, French Hill og Pat Fallon.
Á myndinni sem fylgir færslunni eru fyrir miðju þeir Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Rick Crawford, formaður fastanefndar bandarísku fulltrúadeildarinnar um öryggis- og greiningarmál. Þingmennirnir French Hill (2. f.v.) og Ann Wagner og Pat Fallon (nr. 2 og 1 f.h.) eru einnig á myndinni, auk fulltrum frá utanríkisráðuneytinu.
Frétt utanríkisráðuneytisins er í athugasemd.
12/06/2026
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók í dag þátt í alþjóðlegri ráðstefnu í París um leiðir til að stuðla að friði, öryggi og réttlæti fyrir Ísraela og Palestínumenn. Ráðherrar og fulltrúar frjálsra félagasamtaka tóku þátt í ráðstefnunni sem haldin var að frumkvæði franskra stjórnvalda. Þorgerður Katrín tók einnig þátt í ráðherrafundi sem Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, stóð fyrir. Þar voru rædd málefni Palestínu og Ísraels auk stöðunnar í Líbanon, Íran og á Hormússundi. Á fundinum lagði ráðherra áherslu á að nauðsynlegt væri að ná fram heildstæðri samningsbundinni lausn á átökum á svæðinu og að Ísland myndi áfram kalla eftir friðsamlegri lausn deilna.
Í ávarpi sínu lagði ráðherra áherslu á að tveggja ríkja lausnin væri enn eina raunhæfa leiðin til varanlegs friðar og öryggis í Mið-Austurlöndum. Hún minnti á að Ísland hefði viðurkennt Palestínu árið 2011 og stutt með skýrum hætti rétt Palestínumanna til sjálfsákvörðunar samhliða rétti Ísraela til að búa við öryggi og frið.
„Þótt aðstæður á vettvangi geri framtíðarsýn um tveggja ríkja lausn erfiða um þessar mundir, er hún enn eina raunhæfa leiðin til sjálfbærs friðar og öryggis,“ sagði ráðherra.
„Mér þótti sérlega áhugavert að heyra mál fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem starfa á vettvangi. Þau lögðu áherslu á mikilvægi þess að fólkið í framlínunni, sem dag hvern mætir afleiðingum þeirra áskorana sem við er að eiga, þyrfti að vera með í samtalinu um mögulegar úrlausnir. Staðreyndin væri sú að beggja vegna sé fólk sem er ötullega að berjast fyrir frið,” segir Þorgerður Katrín.
Fréttatilkynning utanríkisráðuneytisins er í athugasemd.
11/06/2026
Athugasemd frá utanríkisráðuneytinu.
Í frétt í Morgunblaðinu í dag er fullyrt í fyrirsögn að auglýsing sem birtist á Facebook síðu sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn sé „ótímabær og ranglega orðuð auglýsing.“ Í umræddri auglýsingu er vakin athygli á komandi utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Utanríkisráðuneytinu var heimilt að greina frá dagsetningu utankjörfundaratkvæðagreiðslunnar. Blaðamaður Morgunblaðsins hefði fengið það staðfest hefði hann leitað skýringa hjá ráðuneytinu fyrir birtingu fréttarinnar, sem hann kaus að gera ekki. Þá hefur formaður landskjörstjórnar einnig staðfest við utanríkisráðuneytið að hún hafi upplýst blaðamanninn um að engar athugasemdir væru gerðar við birtingu dagsetningarinnar.
Í téðri frétt Morgunblaðsins er sömuleiðis fullyrt að spurning atkvæðagreiðslunnar hafi verið „rangt orðuð í auglýsingu sendiráðsins.“ Hið rétta er að hvergi er vikið að orðalagi spurningarinnar í umræddri auglýsingu.
Utanríkisráðuneytið leggur metnað í að veita íslenskum ríkisborgurum erlendis eins góða þjónustu og kostur er og starfrækir sendiráð erlendis í þeim tilgangi. Umrædd auglýsing sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn var liður í því þjónustuhlutverki. Sendiráðin leitast ávallt við að vekja athygli á komandi utankjörfundaratkvæðagreiðslum í tíma, til að gera íslenskum ríkisborgurum kleift að gera tímanlegar ráðstafanir til að nýta atkvæðisrétt sinn.
Umrædd auglýsing var tekin úr birtingu í morgun tímabundið til að samræma upplýsingagjöf með öðrum sendiráðum Íslands eins og til stóð. Hún hefur nú verið sett aftur í loftið og von er á að önnur sendiráð Íslands birti samhljóða auglýsingu innan tíðar.
10/06/2026
Þessa dagana er nóg um að vera í utanríkisráðuneytinu. Eitt af því sem var ofarlega á dagskrá í síðustu viku var umræða um framtíðarsýn á sviði varnar- og öryggismála. Varnarmálasérfræðingar frá hinum Norðurlöndunum voru í húsi til þess að vinna með starfsfólki varnarmálaskrifstofu að norrænni greiningu á framtíðarsýn og langtímahorfum á sviði varna- og öryggismála. Þessi samstarfshópur hefur unnið náið saman síðastliðin ár að því að efla framtíðarsýn og langtímagreiningar hvað varðar hættur og ógnir sem geta valdið verulegum áhrifum á norræn samfélög. Árið 2024 gaf þessi hópur út norræna skýrslu um efnið sem nálgast má hér:https://assets.publishing.service.gov.uk/media/66f6926130536cb9274828af/Nordic_Synthesis_web_final.pdf
Nú er unnið að því að uppfæra langtímagreiningar með hliðsjón af breyttu öryggislandslagi í alþjóðasamfélaginu. Stefnt er að því að uppfærð skýrsla komi út í september á þessu ári og var vinnustofan í síðustu viku mikilvægur liður í þeirri vinnu.
Í þessu samhengi er gríðarlega mikilvægt að efla þátttöku ungs fólks í stefnumótandi umræðu um varnar- og öryggismál og stuðla að því að sjónarmið komandi kynslóða fái aukið vægi í stefnumótun og framtíðarsýn. Þann 4. júní var því eflt til málþings í Norræna húsinu þar sem ungu fólki var gefið færi á að láta raddir sínar heyrast.
Á málþinginu voru flutt áhugaverð erindi, fram fóru pallborðsumræður og samtöl um breytt öryggisumhverfi, alþjóðlegt samstarf og hlutverk komandi kynslóða við mótun framtíðarinnar. Málþingið bjó til vettvang fyrir fjölbreytt sjónarmið og uppbyggilega umræðu um málefni sem hafa sífellt meiri áhrif á samfélagið okkar.
09/06/2026
Utanríkisráðuneytið og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands stóðu fyrir málþingi í Björtuloftum Hörpu í tilefni af heimsdegi hafsins (e. World Oceans Day) í gær.
Sameinuðu þjóðirnar samþykktu árið 2008 að tilnefna 8. júní ár hvert sem Heimsdag hafsins til að minna á mikilvægi hafsins fyrir þjóðir heims og hvetja til aukinnar vitundar um nauðsyn verndunar þess. Var þetta í fyrsta sinn sem haldið er upp á heimsdag hafsins hér á landi. Dagsetningin hafði sérstaka skírskotun að þessu sinni þar sem hún féll nærri íslenska sjómannadeginum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra opnaði málþingið og flutti Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lokaorð.
Málþinginu var skipt upp í tvö meginþemu sem voru málefni hafsins á alþjóðavettvangi annars vegar og mikilvægi verndunar hafsins og sjálfbærrar nýtingar þess fyrir Ísland sem hafríki hins vegar. Meðal þeirra sem fluttu erindi á málþinginu voru fulltrúar frá Hafrannsóknarstofnun, Sjávarklasanum, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Sjávarútvegsskóla GRÓ, Náttúruminjasafni Íslands og Biodice, og utanríkisráðuneytinu, atvinnuvegaráðuneytinu og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Stefán Jón Hafstein var fundarstjóri.
Meðal viðfangsefna voru ábyrg nýting og alþjóðlegt samstarf í sjávarútvegi, veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) og viðbrögð við loftslagstengdum vendipunktum í stjórnkerfinu og alþjóðamál hafsins.
Fulltrúar yngri kynslóðarinnar gegndu einnig veigamiklu hlutverki á málþinginu en nemendur í 10. bekk Árbæjarskóla kynntu lokaverkefni sem þau höfðu unnið um hafið og tvö þeirra kynntu sýn sína á málaflokkinn og það sem betur mætti fara. Þá gafst gestum á málþinginu færi á að ganga á milli og skoða verkefnin. Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, verndunarlíffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands og Biodice, hélt jafnframt erindi um ungt fólk og fræðslu um hafið en ungir umhverfissinnar gáfu nýlega út handbók um hafið, fræðslubók ætlaða ungu fólki á aldrinum 13-30 ára. Þá gafst einnig tækifæri á að skoða Súlu, nýtt ómannað hátæknihafrannsóknafar frá sjávarrrannsóknasetrinu Röst.
Frétt utanríkisráðuneytisins er í athugasemd.