Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Share

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Sími: 444-1000 - Neyðartilfelli: 112
Sendið okkur fyrirspurn/ábendingu
[email protected] HVAÐ Á EKKI HEIMA Á ÞESSARI SÍÐU?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur það sem meginmarkmið að auka öryggi og öryggistilfinningu þeirra sem búa, starfa og dvelja á höfuðborgarsvæðinu. Til þess að vinna að þessum markmiðum er lögð áhersla á nokkur lykilatriði, þar á meðal sýnilega löggæslu, hverfa- og grenndarlöggæslu, forvarnastarf í samvinnu við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga, gæði og skilvirkni

Lokanir vegna tónleika á Þingvöllum 20/06/2026

Aðgangstakmarkanir verða á Þingvallavegi frá klukkan 15:00 til miðnættis þann 20. júní vegna tónleika á Þingvöllum. Þessar takmarkanir munu án efa hafa áhrif á umferð, sér í lagi um Mosfellsheiði.

Lokanir vegna tónleika á Þingvöllum Aðgangstakmarkanir verða á Þingvallavegi frá klukkan 15:00 til miðnættis þann 20. júní vegna tónleika á Þingvöllum.

19/06/2026

Þrátt fyrir að verkefni lögreglu séu oft erfið og krefjandi er líka stundum mjög gaman í vinnunni hjá okkur eins og hér má sjá. Þessi dansspor voru stigin á Óðinstorgi á þjóðhátíðardaginn og þar var sannarlega verið að dansa salsa af mikilli list!

Njótum dagsins, komandi helgar og já, bara þessa frábæra sumars.

18/06/2026

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist tvær tilkynningar um erlendan karlmann sem var á ferðinni í Árbænum í dag og falaðist eftir styrkjum fyrir góðgerðarsamtök. Í báðum tilvikum gaf maðurinn sig á tal við eldri borgara og leitaðist eftir styrk að upphæð kr. 2.000, en ekki hefur komið fram fyrir hvaða samtök. Maðurinn vildi ekki peningaseðla, bara greiðslukort og PIN númer og notaði símann sinn sem posa. Fólkið féllst á að styrkja málefnið, en svo kom í ljós að teknar voru út tvö þúsund evrur af kortum viðkomandi, en ekki 2.000 krónur íslenskar!

Lögreglan varar við manninum og hvetur fólk til að vera á varðbergi. Um hann er lítið vitað að svo stöddu, annað en það að maðurinn var svartklæddur og í hvítum strigaskóm og talaði ensku.

18/06/2026

Vegaframkvæmdir í Reykjavík í kvöld og nótt:

19 – 04 verður malbikað í vesturátt á Vesturlandsvegi, við Laxalón, á 900 m. kafla. Þrengt verður að umferð í eina akrein og má búast við töfum á umferð.

23 – 07 verður malbikað í vesturátt í Ártúnsbrekku, við N1. Þrengt verður að umferð í eina akrein og má búast við töfum á umferð.

VEGFARENDUR ERU BEÐNIR UM AÐ SÝNA AÐGÁT OG TILLITSSEMI OG VIRÐA MERKINGAR OG HRAÐATAKMARKANIR.

18/06/2026

Um þessar mundir eru fjarskiptafyrirtæki landsins að loka 3G farsímakerfum sínu. Í tengslum við lokunina hefur verið útbúinn sjálfvirkur símsvari með símanúmerinu 1280 þar sem notendur geta athugað hvort símtækin þeirra geti áfram hringt neyðarsímtöl eftir að slökkt hefur verið á 3G-sendum.

Athugið: Mjög brýnt er að fólk hringi alls ekki í 112 til að prófa samband, það getur skapað álag og hindrað að neyðarsímtöl nái í gegn.

(Af heimasíðu 112)

17/06/2026

Til hamingju með daginn, kæru landsmenn!

Það er ýmislegt um að vera á höfuðborgarsvæðinu á 17. júní og fjölbreytt dagskrá er í boði víða. Í dag er líka spáð fínasta veðri, a.m.k. á íslenskan mælikvarða, og það verður þurrt að mestu.

Á þjóðhátíðardaginn sinnir lögreglan ýmsum verkefnum og þá er t.d. fastur liður að fylgja forsetanum frá Bessastöðum og til hátíðarathafnar á Austurvelli, en myndin var tekin við það tækifæri í morgun. Á henni eru forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason og lögreglumennirnir Ásgeir Þór Ásgeirsson og Árni Friðleifsson.

16/06/2026

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, ásamt Skattinum, hélt úti eftirliti um helgina þar sem tuttugu veitinga- og/eða skemmtistaðir í umdæminu voru heimsóttir. Gengið var úr skugga um að allt í starfseminni væri lögum samkvæmt, m.a. að öll tilskilin leyfi væru fyrir hendi. Í tæplega helmingi tilvika var allt til fyrirmyndar og engar athugasemdir voru gerðar. Á meirihluta staðanna, eða ellefu, voru hinsvegar gerðar athugasemdir af einhverju tagi og einum þeirra var lokað. Mál sem upp komu við eftirlitið var eftir atvikum vísað til annarra stofnana til frekari meðferðar.

16/06/2026

Reiðhjólauppboð Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefst mánudaginn 22. júní kl. 14 og stendur til sunnudagsins 28. júní kl. 18. Það fer fram á vefsvæði Vöku, en boðin verða upp um 90 reiðhjól. Greitt verður fyrir hjólin á vefsvæði Vöku í gegnum greiðslugátt. Skoðunardagar verða 22., 23. og 24. júní frá kl. 15– 17 á Héðinsgötu 2 í Reykjavík. Myndir af reiðhjólunum munu verða birtar á vefsíðu uppboðsins.

16/06/2026

Eldvarnir eru mikilvægar allsstaðar!

Nokkrir punktar sem er nauðsynlegt að hafa í huga - sérstaklega ef við erum að fara í sumarhús eða aðra gistingu sem við þekkjum ekki.

Eldvarnir er mikilvægar allsstaðar! 👇👇👇

15/06/2026

Vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu í kvöld og nótt:

19 – 07 verður unnið að fræsingu og malbikun í austurátt á Miklubraut í Reykjavík, á 400 m. kafla við Sogamýri. Þrengt verður að umferð í eina akrein og má búast við töfum á umferð.

19.30 – 04 verður unnið að fræsingu og malbikun í suðurátt á Hafnarfjarðarvegi i Kópavogi, á 540 m. kafla. Lokað verður fyrir beygjuakrein niður á Nýbýlaveg og upp í Hamraborg, þrengt verður að umferð í eina akrein og má búast við töfum á umferð.

20 – 05 verður vinna við Urriðaholtsstræti sem þverar Reykjanesbraut við Kauptún. Hraðinn er tekin niður, þrengt verður að umferð í eina akrein og má búast við töfum á umferð.

21 – 06 verður unnið að fræsingu og malbikun í austurátt á miðjuakrein í Ártúnsbrekku í Reykjavík. Þrengt verður að umferð í eina akrein og má búast við töfum á umferð.

VEGFARENDUR ERU BEÐNIR UM AÐ SÝNA AÐGÁT OG TILLITSSEMI OG VIRÐA MERKINGAR OG HRAÐATAKMARKANIR.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Hverfisgata 113/115
Reykjavík
105