Að gefnu tilefni minnum við á að AC/DC er ömurleg hljómsveit og hlustun eða streymi á hverskyns miðlum varðar sekt og/eða afturköllun kvltréttinda.
Blackmetallögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Satan.
01/04/2022
Lögreglan þarf í sífellu að vera á tánum gagnvart nýjungum á tónlistarmarkaðinum á Íslandi, til að geta brugðist við og komið í veg fyrir afbrot því tengdu, líkamstjóni af völdum Slamm Syndrome eða í versta falli dauðsföllum sem má rekja til neyslu á lélegu þungarokki.
Undanfarna mánuði höfum við verið að fá til okkar einstaklinga sem eiga enga sögu um untrvemennsku og falla ekki inn í þann hóp neytenda sem við annars þurfum að hafa afskipti af. Þetta hefur vakið undrun okkar, umrætt fólk hefur verið illviðránalegt, haldið miklum ranghugmyndum um sig og eða umhverfi sitt, með gríðarlega hátt sársaukaþol í slammpyttinum og verulega hættulegt umhverfi sínu en þó fyrst og fremst sjálfu sér.
Eins untrve og það kann að hljóma, þá virðist það vera í tísku núna hjá einhverjum hópi ungs fólks að prófa að hlusta á pabbarokk. Þessi hópur sem vanalega tengir sig ekki við eiturlyf, stundar skóla eða vinnu og eru að mestu leyti glataðir einstaklingar, en þó ekki óbjarganlegir. Engan hefði áður grunað að þessir einstaklingar myndi láta sér detta í hug að gerast untrve.
Mun tilgangurinn vera sá að upplifa heiminn, og skynja Charon í nýju ljósi. Svo virðist sem þessir einstaklingar séu haldnir þeim misskilningi að tónlistin sé svo til hættulaust og að það skaði ekki að hlusta jafnvel einu sinni.
Lögregla vill ítreka fyrir þeim sem hafa hugleitt að hlusta á pabbarokk, að það er stórhættulegt tónlistarefni og áhrifum þess ber að taka alvarlega. Þetta eina skipti getur valdið miklum skaða og ljóst að fólk undir áhrifum þess er ekki meðvitað um eigin hegðun og gjörðir meðan áhrifin vara.
Um Pabbarokk:
Pabbarokkið hefur untrve og andkvlt áhrif við inntöku. Áhrifin eru mikið einstaklingsbundin og umhverfið hefur einnig talsverð áhrif. Áhrifin geta leitt til mikils ofsóknaræðis, untrve Facebookpósta og annarra andlegra einkenna sem setja hlustendur í talsverða hættu.
Í verstu tilfellunum getur slíkt ástand varað í nokkra daga. Í kjölfarið getur neytandinn glímt við minnisleysi og þunglyndi. Oft er pabbarokk kynnt fyrir neytendum sem hættulaust ferðalag. Líkamleg einkenni pabbarokks eru víkkuð sjáöldur, notkun eyrnatappa á tónleikum, ljót tattú og í flestum tilfellum andleg og veraldleg hnignun alls sem telst trve og kvlt.
Verum meðvituð um og pössum hvort annað, skiptum okkur af ef okkur líst ekki á ástandið, látið vita ef einhver í kringum ykkur hyggst prófa og foreldrar, ræðið við börnin ykkar !!
Eigið ömurlegan fimmtudag & vondar stundir.
Reykjavík, 28.apríl, 2016.
Blackmetallögreglan á Höfuðborgarsvæðinu.
01/02/2016
The Vintage Charon. Minnum landsmenn einnig nær og fjær á nagladekkin í umferðinni.
Vondar stundir.
Finngálkn - Charon Song: Charon Artist: Finngálkn Album: Tyranny from Beyond the Styx Track Number: 3 Country of Origin: Iceland © 2006 Finngálkn
16/01/2016
Óeinkennisklæddir eftirlitsmenn voru að störfum í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Nóttin fór að mestu leyti vel fram en fjöldi kvartana bárust þó vegna tiltekinna tribvt tónleika á skemmtistað við Hafnarstræti.
Taka ber fram að undirbúningur skemmtanahalds undir fölsku flaggi telst refsiverður með öllu og gera þarf eigendum og rekstrarstjórum staðarins skýrt og greint fyrir því um hvers kyns viðburð er að ræða með 48 klst. fyrirvara.
Þess má einnig geta að óeinkennisklæddur eftirlitsmaður náði tali af starfsmanni skemmtistaðarins Húrra við Hafnarstræti þar sem reglubundið eftirlit á skemmtanaleyfum átti að eiga sér stað.
Eftir nánari skoðun eftirlitsmanns kom í ljós að vínveitingaleyfi staðarins var í gildi en gleymst hafði að endurnýja trvevottunarskírteini staðarins sem og aðra formlega leyfispappíra er varða live ritvals og aðra viðburði sem þar fara fram.
Starfsmenn sýndu óeinkennisklæddum aðstoð og skilning við rýmingu staðarins sem er í gildi þar til trvevottunarskírteini tónleikahalds hefur verið uppfært.
Vondar stundir.
Óeinkennisklæddir blackmetallögreglumenn verða á svæðinu á öllum kvlt tónleikum í vetur. Full ástæða er til að hafa varann á og ekki vera póser tvssa, vilji maður halda sinni trvevottun. Öll sala á geisladiskum verður gerð upptæk á staðnum og getur varðað allt að 2.000 kvltstigum í sekt.
Vondar stundir.
Blackmetallögreglan vekur athygli á því að nú hefur verið gefið út opinbert kvlt-próf fyrir Ísland sem verður hér með skylda fyrir trvevottun. Falli einstaklingur á prófinu eða neiti að taka það veldur það tafarlausri vntrve póser færslu í sakaskrá og afturköllun á trvevottun (ef við á). Vondar stundir.
Black metal á Íslandi Spurningakönnun þessi er hluti af rannsókn fyrir MA-ritgerð mína í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Efni ritgerðarinnar er black metal menning á Íslandi. Spurningakönnunin er sambland af opnum spurningum og valmöguleikaspurningum. Könnunin er nafnlaus og órekjanleg. Spurningakönnunin ætti að taka X mí…
Mjér er svo kvlt á tánum
Að gefnu tilefni viljum við minna á að það er með öllu óleyfilegt að eiga útgáfur á geisladisk eða öðrum miðlum. Einungis segulband eða vínylplötur standa til boða. Bootleg útgáfur eru leyfilegar, svo lengi sem gert er grein fyrir að um falsvarning er að ræða. Brot a þessum reglum varða kvltsektum og alvarleg brot geta valdið afturköllun á trvevottun.
Á að opna einn kaldan, blasta Slayer og vera nettur á því áður en það er kíkt á Dillon og Gjemle Gaukinn? Hehe.
Hengdu þig.
Elskarðu að slamma og skella þér í pytt á tónleikum? Kominn með miða á Wacken? Nett. Þú vilt kannski skella þér á Þjóðhátíð líka, skítaplebbinn þinn?
Svo þú hlustar á Deathspell Omega? Og átt allar plöturnar þeirra á vínyl líka? Vá, þú ert trve nekro kvlt og alls ekki póser tvssa.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Plötustígur 22
Reykjavík
101
