Frístundamiðstöðin Kringlumýri

Frístundamiðstöðin Kringlumýri

Share

Frístundamiðstöðin Kringlumýri þjónar börnum á aldrinum 6-16 ára. Frístundamiðstöðin er staðsett í Síðumúla 23, 108 Reykjavík á 2. hæð.

UngRÚV - Félagsmiðstöðin Buskin - Lýðræðisdagur | UngRÚV 02/12/2024

Nemendaráð Buskans og Vogaskóla héldu þennan frábæra lýðræðisdag 21.nóvember síðastliðinn með stuðningi frá félagsmiðstöðvarinnar og skólans. Dagurinn samanstóð af pallborðsumræðum með fulltrúum flokkanna í þeirra kjördæmi, kosningum um miðjan dag og svo kosningavöku þar sem niðurstöður voru kynntar um kvöldið. Spurningarnar sem frambjóðendur stóðu fyrir svörum á voru allar úr vinnufundi nemenda í 8-10.bekk og snéru að málefnum sem skiptir ungt fólk máli. Ungt fólk er frábært og það eru forréttindi að fá að starfa með þeim.

UngRÚV - Félagsmiðstöðin Buskin - Lýðræðisdagur | UngRÚV UngRúv fer í heimsóknir í félagsmiðstöðvar landsins.

23/09/2024

Minnum á málþing þriðjudaginn 24.9. kl. 20

22/08/2024

Kæru foreldrar/forráðafólk

Við viljum minna öll á að Samvera er góð forvörn. Góða skemmtun á Menningarnótt og verum samferða heim.

Menningarkveðja, starfsfólk Kringlumýri

SAMAN-hópurinn Grasrótarhópur um forvarnir og stuðning við foreldra í uppeldishlutverkinu

20/08/2024

Ungmenni 13-16 ára af erlendum uppruna - mæli með að þið kynnið ykkur þetta fróðlega verkefni.
Youth 13-16yrs old from a foreign background - strongly recommend that you check this informative project out.

Forsíða 02/07/2024

Forsíða Bréf var sent til allra sveitarfélaga í lok maí þar sem bæjarfélög eru hvött til að minna á skilaboð SAMAN hópsins fyrir sumarið. Einnig fengu allir grunnskólar landsins bréf í byrjun júní þar sem skólastjórnendur eru beðnir um að senda bréf á foreldra barna sem útskrifast...

Verndum börnin í sumar 20/06/2024

Vek athygli á góðum orðum til foreldra og forráðafólks varðandi verndandi þætti.

Verndum börnin í sumar Enn einu skólaárinu er lokið og ævintýri sumarsins taka við. Ýmsar hættur sem geta fylgt ævintýrum sumarsins þegar börn og unglingar fá aukinn frítíma. Mikilvægt er að öll sem önnumst leik- og grunnskólabörn tökum höndum saman og veitum stuðning og hvatningu til félagslegrar...

Loftslagssjóður ungs fólks í Reykjavík 04/06/2024

Loftlagssjóður ungs fólks - umsóknarfrestur 25. júní

Spennandi tækifæri fyrir ungt fólk á aldrinum 15 - 24 ára til að koma fram með tillögur að lausnum í loftslagsvanda. Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem eru hönnuð og unnin af ungu fólki.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins

Loftslagssjóður ungs fólks í Reykjavík Ert þú á aldrinum 15-24 ára og vilt þú leggja þitt af mörkum til að vinna á loftslagsvandanum? Ertu með hugmynd að verkefni sem þig langar að hrinda í framkvæmd? Reykjavíkurborg og Bloomberg Philanthropies hafa stofnað loftslagssjóð ungs fólks í Reykjavík (Youth Climate Action...

Photos from Frístundamiðstöðin Kringlumýri's post 03/06/2024

Regnbogavottun í Kringlumýri

Á alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks föstudaginn 17. maí var hluti starfsstaða Kringlumýrar Regnbogavottaðir. Þetta eru frístundaheimilin og félagsmiðstöðvarnar Álftabær, Buskinn, Bústaðir, Dalheimar, Glaðheimar, Hofið, Krakkakot, Laugarsel, Laugó, Neðstaland, Sólbúar, Tónabær og Þróttheimar.

Markmið með Regnbogavottun er að gera starfsemi hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega.

Á myndunum taka fulltrúar starfsstaða við Regnbogavottun.

Innilegar hamingjuóskir með áfangann

03/06/2024

Hvetjum öll til að kíkja á fund hjá Saman hópnum 5.júní í streymi.

Photos from Frístundamiðstöðin Kringlumýri's post 19/03/2024

Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs 2024 fyrir skapandi frístundastarf voru veitt í gær og gleður það okkur að félagsmiðstöðin Askja hlaut hvatningaverðlaun fyrir verkefnið ➡ Samskiptasáttmáli fatlaðra unglinga.
Til hamingju Askja 💚

Glitrandi skáta­starf í frí­stunda­heimilinu Gulu­hlíð - Vísir 29/02/2024

Í frístundaheimilinu Guluhlíð er frábært samstarf við skátana og mikil gleði hefur ríkt meðal barna og stafsfólks í þessu samstarfi.
Í dag er dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna og mörg börn í Guluhlíð tilheyra þeim hópi.
https://www.visir.is/g/20242534443d/glitrandi-skata-starf-i-fri-stunda-heimilinu-gulu-hlid?fbclid=IwAR0Em-hhTylBp8MqaYAYgFoiBT9B26Cf4BiTh3ULs3m8orEE9JYrp8K5s1g

Glitrandi skáta­starf í frí­stunda­heimilinu Gulu­hlíð - Vísir Skátastarf er fyrir öll börn, það er bæði einstakt og mjög fjölbreytt og því auðvelt að aðlaga að mismunandi hópum. Skátastarf er einstakt æskulýðsstarf vegna þess að það leggur áherslu á fjölbreytileika, sjálfstæði, samvinna, tengsl við náttúruna og skapandi hugsun.

Vetrarfrí 2024 - allir viðburðir 16/02/2024

Vetrarfrí febrúar 2024
Mánudaginn 19.febrúar kl.14:00-16:00 fer fram í Laugardalslaug viðburður á vegum frístundaheimilanna í Kringlumýri. Er það þátttakendum að kostnaðarlausu, auk þess sem frítt er í sund. Í viðhengi má sjá hvað er í boði.
Á vef Reykjavíkurborgar má nálgast alla þá viðburði sem eru í boði í borgarinnar í vetrarfríinu. https://reykjavik.is/vetrarfri
Við mælum með að nýta tækifærið og njóta samverunnar saman sem fjölskylda.

Vetrarfrí 2024 - allir viðburðir Vetrarfrí grunnskóla í Reykjavík er 17. - 20 febrúar 2024. Það er nóg um að vera og hér er að finna upplýsingar um alls konar viðburði sem í boði eru.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Efstaleiti 1
Reykjavík
103

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:00
Tuesday 08:30 - 16:00
Wednesday 08:30 - 16:00
Thursday 08:30 - 16:00
Friday 08:30 - 16:00