Umboðsmaður barna

Umboðsmaður barna

Share

Umboðsmaður barna vinnur að því að bæta hag barna og unglinga. Umboðsmanni barna er ekki ætlað að skipta sér af ágreiningi milli einstaklinga.

Umboðsmaður barna vinnur að því að bæta hag barna og unglinga og gætir þess að tekið sé tillit til réttinda barna, þarfa og hagsmuna á öllum sviðum samfélagsins. Hins vegar leiðbeinir umboðsmaður, eða starfsfólk hans, öllum sem til skrifstofunnar leita um hvert hægt er að snúa sér til að fá aðstoð við að leysa sín mál.

Umboðsmaður barna og Mannréttindastofnun Íslands óska eftir upplýsingum um stöðu fullgildingar þriðju valfrjálsu bókunarinnar við Barnasáttmálann 12/06/2026

Umboðsmaður barna og Mannréttindastofnun Íslands sendu í gær erindi til dómsmálaráðherra þar sem óskað er upplýsinga um stöðu fullgildingar þriðju valfrjálsu bókunarinnar við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Hægt er að lesa erindið í fréttinni hér að neðan 👇

Umboðsmaður barna og Mannréttindastofnun Íslands óska eftir upplýsingum um stöðu fullgildingar þriðju valfrjálsu bókunarinnar við Barnasáttmálann Umboðsmaður barna og Mannréttindastofnun Íslands sendu í gær erindi til dómsmálaráðherra þar sem óskað er upplýsinga um stöðu fullgildingar þriðju valfrjálsu bókunarinnar við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Vorfundur ENOC í Osló 11/06/2026

Í vikunni var árlegur vorfundur umboðsmanna barna í Evrópu haldin í Osló, Noregi. Þema fundarins í ár voru réttindi LGBTQIA+ barna og ungmenna og barnvæn réttarvarsla. Þá var einnig rætt um rétt barna til verndar í stafrænu umhverfi.

Salvör Nordal, umboðsmaður barna, Sigurveig Þórhallsdóttir og Sólveig Auður Bergmann lögfræðingar, tóku þátt á fundinum fyrir hönd embættisins.

Hægt er að lesa nánar um vorfundinn í Osló í fréttinni hér að neðan 👇

Vorfundur ENOC í Osló Salvör Nordal, umboðsmaður barna, Sigurveig Þórhallsdóttir og Sólveig Auður Bergmann lögfræðingar, tóku þátt á vorfundi ENOC í Osló, fyrir hönd embættisins.

Bréf vegna gjaldtöku endurtökuprófa og sjúkraprófa í framhaldsskólum 05/06/2026

Umboðsmanni barna barst ábending um gjaldtöku vegna endurtökuprófa og sjúkraprófa í framhaldsskólum. Að mati umboðsmanns barna eru endurtökupróf og sjúkrapróf eðlilegur þáttur námsmats í framhaldsskólum og telur að með því að leggja sérstök gjöld á slíkt námsmat kunni að skapast hætta á ójafnræði milli nemenda, einkum eftir efnahag og félagslegum aðstæðum.

Umboðsmaður barna hefur sent mennta- og barnamálaráðuneytinu bréf í þeim tilgangi að afla afstöðu ráðuneytisins til þess hvort gjaldtaka vegna endurtökuprófa og sjúkraprófa samæmist lögum.

Hægt er að lesa nánar í fréttinni hér að neðan 👇

Bréf vegna gjaldtöku endurtökuprófa og sjúkraprófa í framhaldsskólum Umboðsmaður barna hefur sent bréf til mennta- og barnamálaráðuneytisins varðandi gjaldtöku endurtökuprófa og sjúkraprófa í framhaldsskólum.

Varðandi frumvarp um brottfararstöð 03/06/2026

Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um brottfararstöð þar sem heimilt verður að vista útlendinga, þar á meðal fjölskyldur með börn, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Umboðsmaður barna vill árétta fyrri afstöðu sína að frelsissvipting barns vegna innflytjendastöðu þess eða foreldra þess samræmist ekki réttindum barna og ákvæðum Barnasáttmálans. Þá er það afstaða umboðsmanns barna að hvers konar frelsissvipting barns á grundvelli innflytjendastöðu eigi að vera bönnuð með lögum.

Hægt er að lesa nánar í fréttinni hér að neðan 👇

Varðandi frumvarp um brottfararstöð Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um brottfararstöð þar sem heimilt verður að vista útlendinga þar á meðal fjölskyldur með börn, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

27/05/2026

Nú þegar sumarið er gengið í garð eru mörg börn að hefja störf á fjölbreyttum vinnustöðum. Umboðsmaður barna hvetur vinnuveitendur, foreldra og börn til þess að kynna sér þær reglur sem gilda um vinnu barna og unglinga. Á vefsíðu Vinnueftirlitsins er að finna gagnlegar upplýsingar um vinnutíma barna, hvaða störf þau mega gegna og margt fleira.

Umboðsmaður barna átti á dögunum fund með Hönnu S. Gunnsteinsdóttur forstjóra Vinnueftirlitsins þar sem rætt var um stöðu barna á vinnumarkaði og þær kröfur sem gerðar eru með það að markmiði að tryggja öryggi barna og unglinga.

26/05/2026

Umboðsmenn barna á Norðurlöndunum héldu sinn árlega fund í Stokkhólmi 20.-21. maí sl. Á fundinum var meðal annars rætt um ofbeldi og kúgun tengda heiðri, réttindi barna í tengslum við viðbúnað vegna almannavarnaástands og þátttöku barna.

Einnig var farið í heimsókn til samtakanna Maskrosbarn þar sem börn og unglingar sem alast upp við erfiðar heimilisaðstæður geta fengið stuðning. Maskrosbarn þýðir á íslensku „fífilbarn“ en í Svíþjóð er hugtakið notað yfir börn sem spjara sig vel í lífinu þrátt fyrir erfiðar uppeldisaðstæður. Heitið dregur nafn sitt af fíflinum sem er þekktur fyrir að geta vaxið og dafnað við krefjandi aðstæður.

Fundur umboðsmanna barna á Norðurlöndunum er ávallt afar gagnlegur og það er mikilvægt að get skipst á upplýsingum og reynslu.

Kofinn fær að standa - RÚV.is 15/05/2026

Umboðsmaður barna fagnar því að borgin hafi fallið frá því að fjarlægja kofa sem börn hafa byggt við Lynghaga í Reykjavík. Kofinn er á vinsælu leiksvæði barna í hverfinu og höfðu börnin útbúið undirskriftalista barna til þess að mótmæla fyrirhuguðum niðurrifum. Barátta barnanna vakti verðskuldaða athygli og sem betur fer var á þau hlustað.

Kofinn fær að standa - RÚV.is Íbúi á Lynghaga segir misskilning hafa ráðið því að Reykjavíkurborg vildi fjarlægja kofa vegna öryggisástæðna. „Þau fullvissuðu okkur um að þetta hefði bara verið einhver allsherjar misskilningur.“

Sveitarstjórnarkosningar á morgun 15/05/2026

Á morgun, þann 16. maí, fara fram sveitarstjórnarkosningar um land allt. Umboðsmaður barna hefur fengið jákvæð viðbrögð við hvatningu sem send var til sveitarfélaga, ungmennaráða sveitarfélaga og grunnskóla landsins um að standa fyrir viðburðum sem efla lýðræðislega þátttöku barna í aðdraganda kosninganna.

Hægt er að lesa nánar í fréttinni hér að neðan 👇

Sveitarstjórnarkosningar á morgun Á morgun, þann 16. maí, fara fram sveitarstjórnarkosningar um land allt. Umboðsmaður barna hefur fengið jákvæð viðbrögð við hvatningu sem send var til sveitarfélaga, ungmennaráða sveitarfélaga og grunnskóla landsins um að standa fyrir viðburðum sem efla lýðræðislega þáttt...

12/05/2026

Salvör Nordal, umboðsmaður barna, og Sigurveig Þórhallsdóttir, yfirlögfræðingur embættisins, sóttu opnun meðferðarheimilis Lækjarbakka í Gunnarsholti síðastliðinn föstudag. Meðferðarheimilið Lækjarbakki, sem áður var stafrækt að Rangárvöllum, var lokað í apríl 2024 vegna myglu í húsnæðinu.

Umboðsmaður barna fagnar því að Lækjarbakki sé tekinn til starfa á ný eftir tveggja ára bið og bindur vonir við að úrræðið gagnist þeim drengjum sem þurfa á auknum stuðningi að halda. Embættið hefur á undanförnum árum ítrekað bent stjórnvöldum á að lokun sérhæfðra úrræða fyrir börn og ungmenni með fjölþættan vanda geti haft alvarleg áhrif á stöðu þeirra, en skortur á viðeigandi meðferðarúrræðum hefur verið viðvarandi áskorun í málaflokknum á undanförnum árum.

Bréf til byggingarfulltrúa Reykjavíkur vegna útgáfu vottorðs um öryggisúttekt 07/05/2026

Umboðsmanni barna hefur borist svarbréf frá byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar við erindi embættisins þar sem óskað var eftir upplýsingum um vottorð um öryggisúttekt viðbyggingar á meðferðarheimilinu Stuðlum.

Hægt er að lesa nánar um erindi umboðsmanns barna og svarbréfið frá byggingarfulltrúa Reykjavíkur í fréttinni hér að neðan 👇

Bréf til byggingarfulltrúa Reykjavíkur vegna útgáfu vottorðs um öryggisúttekt Umboðsmaður barna sendi bréf á byggingarfulltrúa Reykjavíkur í síðustu viku og óskaði eftir upplýsingum um hvort og þá hvenær gefið hafi verið út vottorð um öryggisúttekt viðbyggingar á Stuðlum.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Hverfisgata 4
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 12:00