17/10/2026
Siste uke hadde vi gleden av å ta imot kommunal- og distriktsminister Bjørnar Skjæran i Reykjavík i forbindelse med Arctic Circle.
Under besøket delte ministeren sine perspektiver på fremtidens arktiske samfunn, betydningen av innovasjon og verdiskaping i nord, og hvordan bosetting og levende lokalsamfunn også er en viktig del av Norge i Arktis. Arktis er en stor del av både land- og havområde i Norge og et viktig satsningsområde. Det gjelder både forsvar og beredskap, men også trygge og robuste lokalsamfunn.
Programmet omfattet også et besøk hos Benchmark Genetics, som har hovedkontor i Norge og driver med produksjon av lakserogn på Island. Der fikk ministeren innblikk i utviklingen innen havbruksnæringen og teknologi som bidrar til bærekraftig matproduksjon. Besøket ble avsluttet med en tur til Þingvellir nasjonalpark, hvor ministeren fikk høre om hvordan myndighetene balanserer bevaring av et unikt naturområde med et stadig økende antall besøkende.
Vi takker Bjørnar Skjæran for besøket og gode samtaler med islandske kolleger om utviklingen av sterke og bærekraftige samfunn i nord.
__________________________________________
Það var okkur sönn ánægja og mikill heiður að taka á móti Bjørnar Skjæran, sveitarstjórnar- og byggðamálaráðherra Noregs, í Reykjavík í síðustu viku í tengslum við Arctic Circle.
Í heimsókninni deildi ráðherrann sýn sinni á samfélög norðurslóða til framtíðar, mikilvægi nýsköpunar og verðmætasköpunar á norðurslóðum og hvernig búseta og öflug nærsamfélög eru einnig mikilvægur partur á Noregi á norðurslóðum. Norðurslóðir ná yfir stóran hluta af land- og hafsvæði Noregs og eru mikilvægt áherslusvæði. Þar skipta varnar- og viðbúnaðarmál miklu máli, en einnig örugg og öflug nærsamfélög.
Á dagskránni var einnig heimsókn til Benchmark Genetics, sem er með höfuðstöðvar í Noregi og framleiðir laxahrogn á Íslandi. Þar fékk ráðherrann innsýn í þróun fiskeldis og þá tækni sem stuðlar að sjálfbærri matvælaframleiðslu.
Heimsókninni lauk með ferð til Þingvalla, þar sem ráðherrann fékk að kynna sér hvernig stjórnvöld takast á við það verkefni að varðveita einstakt náttúrusvæði samhliða sívaxandi fjölda gesta.
Við þökkum Bjørnar Skjæran kærlega fyrir heimsóknina og góð samtöl við íslenska samstarfsaðila um uppbyggingu öflugra og sjálfbærra samfélaga á norðurslóðum.