05/04/2016
Ég heiti Sigursveinn Sigmar. Ég er 21 árs gamall og er alinn upp á Flúðum og gekk ég einnig í grunnskóla á Flúðum. Eftir grunnskóla fór ég í FSU á Selfossi og flutti síðan til Reykjavíkur með fyrrverandi kærustunni minni Rúnu Rán til að fara í nám í HR. Í HR fór ég í viðskiptafræði. Nú bý ég með 19 ára konunni minni Mörthu Maí í Garðabæ og við höfum það ágætt.
05/04/2016
Ég heiti Kristín Rún Alfreðsdóttir og er frambjóðandi í bláum sjóræningjum. Ég er 37 ára og er fædd og uppalin í Mosfellsbænum og bý enn þar. Ég útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands af náttúrufræðibraut árið 1999 og fór svo þaðan í kennaranám við Kennaraháskóla Íslands, útskrifaðist þaðan með BA gráðu árið 2003 og fór svo að kenna. Árið 2006 fór ég svo aftur í nám en þá lærði ég stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Í dag er ég búsett í Mosfellsbænum með eiginmanni mínum, Hannesi Halldórssyni og 2 börnum. Ég starfa við að kenna stærðfræði í Kvennaskólanum.
05/04/2016
Ég heiti Hreinn Bolli. Ég er 35 ára frambjóðandi í Bláum Sjóræningjum. Ég er fæddur og alinn upp á Akureyri. Ég gekk í Menntaskóla Akureyrar (MA) og flutti síðan til Reykjarvíkur og stundaði stjórnmálafræðinám við Háskóla Íslands. í dag bý ég með eiginkonu minni Þórhildi í Vesturbænum. Ég vinn sem bankastjóri í Arion banka
05/04/2016
Ég heiti Axel Steingrímson og er 32 ára frambjóðandi í Bláum Sjóræningjum. Ég er fæddur og alinn upp á Seltjarnarnesi. Ég gekk í Verslunarskóla Íslands og var á viðskiptabraut og fór svo þaðan í stjórnmálafræðinám við Háskóla Íslands. Ég bý núna með eiginkonu minni Guðríði og 2 börnum okkar í vesturbænum.
05/04/2016
Ég heiti Hildur Norðfjörð. Ég er 35 ára frambjóðandi í Bláum Sjóræningjum. Ég er fædd í Fáskrúðsfirði á Austurlandi 5.mars árið 1981. Ég gekk í Menntaskólann í Reykjavík og fór svo þaðan í stjórnmálafræðinám við Háskóla Íslands. Eftir það fór ég út til Bandaríkjanna í eitt ár í Columbia Buissness School. Í dag er ég búsett í miðbæ Reykjavíkur með eiginmanni mínum, Fróða Hanssyni og s*x ára syni mínum. Ég vinn sem gjaldkeri við Arion banka.
03/04/2016
Hópurinn í sunnudagsgöngu á Ægissíðunni