Samstaða flokkur lýðræðis og velferðar er ný hugsun í íslenskum stjórnmálum. Sjá kynningarglærur með grundvallarstefnuskránni: http://www.xc.is/kynningarglaerur
I. Rætur
Samstaða – flokkur lýðræðis- og velferðar sprettur úr íslensku umhverfi og leggur áherslu á þann lærdóm sem draga má af stjórnmálasögu landsins og sérkennum íslensks efnahagslífs og samfélags. Sú stefna sem verið hefur við lýði síðastliðna rúma tvo áratugi hefur leitt til óásættanlegs ójafnaðar í samfélaginu, spillingar og loks félags- og efnahagslegs hruns árið 2008. Lausnir sem reyndar
hafa verið frá hruni hafa ekki bætt hag íslenskra heimila og fyrirtækja og því er knýjandi þörf fyrir nýjar leiðir og lausnir. Samstaða – flokkur lýðræðis- og velferðar vill byggja á hugmyndafræði samstöðu meðal landsmanna. II. Grunngildi
Samstaða – flokkur lýðræðis- og velferðar er lýðræðissinnuð stjórnmálahreyfing sem vinnur að því að íslenskt samfélag byggi á grunngildum jafnaðar, samvinnu og sjálfbærni. Samstaða byggir stefnu sína á siðferðilegum forsendum réttlætis, mannúðar og heiðarleika. Samstaða – flokkur lýðræðis- og velferðar telur sérstöðu íslensks samfélags felast í smæð þess. Sérstaðan skapar tækifæri til valddreifingar og lýðræðis sem einkennist af beinni þátttöku almennings í mikilvægum ákvarðanatökum samfélagsins, hvort heldur er á landsvísu eða í nærsamfélaginu. Samstaða telur að vegna smæðar samfélagsins sé tilhneiging til fákeppni í efnahagslífinu sem skapar skilyrði fyrir samþjöppun valds á hendur fámennra forréttindahópa. Samstaða telur því brýnt að sporna gegn fákeppni og samþjöppun með eflingu lýðræðis, skilvirkari löggjöf og auknu gagnsæi. Samstaða – flokkur lýðræðis- og velferðar er fjöldahreyfing almennings sem tekur þátt í þróun samfélagsins með virkum lýðræðislegum hætti og upplýstri rökræðu. Frumkvæði, áhugi og þekking einstaklinganna er virkjuð til að skapa betri lausnir. Því leggur Samstaða áherslu á hlutverk frjálsra félagasamtaka og félagshagkerfisins á sviðum velferðarþjónustu og atvinnulífs.