Orkuveitan

Call Directions Website

Orkuveitan Orkuveitan styður vaxandi samfélög, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu. Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar.

Fyrirtæki Orkuveitunnar eru Orka náttúrunnar, Veitur, Ljósleiðarinn og Carbfix.

Hvaða hnúta þurfum við að leysa til að fleiri fái tækifæri til að leiða? 🪢Þessari spurningu beinir Jafnvægisvogin til fy...
07/10/2026

Hvaða hnúta þurfum við að leysa til að fleiri fái tækifæri til að leiða? 🪢

Þessari spurningu beinir Jafnvægisvogin til fyrirtækja og leiðtoga í herferðinni *Losum um hnútinn*. Hún hvetur okkur til að skoða hindranir sem kunna að standa í vegi fyrir fjölbreytileika og jöfnum tækifærum.

Öll fyrirtæki Orkuveitunnar hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir árangur í jafnréttismálum. Í ár gerðumst við einnig bakhjarl verkefnisins og tökum þátt í að ýta undir frekari framfarir.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, er eitt af andlitum herferðarinnar. Lesið nánar um samstarfið og herferðina í fréttinni 👇

Orkuveitan

Það var stolt og gleði í loftinu þegar Orkuveitan tók við Svansvottun fyrir endurbætur á Vesturhúsi og Hvolfrými 🦢Við þö...
06/10/2026

Það var stolt og gleði í loftinu þegar Orkuveitan tók við Svansvottun fyrir endurbætur á Vesturhúsi og Hvolfrými 🦢

Við þökkum öllum sem komu að verkefnunum. Hér eru nokkrar myndir frá afhendingunni!

„Jafnrétti er ákvörðun sem þarf að framkvæma.“Mannauðsdagurinn er í dag! Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastýra mann...
02/10/2026

„Jafnrétti er ákvörðun sem þarf að framkvæma.“

Mannauðsdagurinn er í dag!

Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastýra mannauðs og tækni hjá Orkuveitunni, ræðir af því tilefni um jafnréttisstarfið okkar og samstarfið við Jafnvægisvogina í Morgunblaðinu.

Jafnrétti mótast í daglegum ákvörðunum — við ráðningar, starfsþróun og val í stjórnunarstöður. Ellen segir frá því hvernig við vinnum markvisst að því að gera jafnrétti að hluta af rekstrinum.

Lesið viðtalið hér 👇

Hverju vonist þið til að samstarf Orkuveitunnar og Jafnvægisvogarinnar skili íslensku atvinnulífi? „Jafnvægisvogin hefur unnið markvisst að því að fjölga konum í efstu lögum atvinnulífsins. Þótt árangur hafi náðst er enn langt í land og með samstarfinu viljum við leggja okk...

Fyrirtæki Orkuveitunnar; Veitur, Ljósleiðarinn, Orka náttúrunnar og Carbfix, tóku þátt í Vísindavöku Rannís sem fór fram...
29/09/2026

Fyrirtæki Orkuveitunnar; Veitur, Ljósleiðarinn, Orka náttúrunnar og Carbfix, tóku þátt í Vísindavöku Rannís sem fór fram í Laugardalshöll um síðastliðnu helgi.
Það var virkilega ánægjulegt að hitta alla þessa áhugasömu gesti og spjalla við þau um starfsemi fyrirtækjanna okkar og vísindin á bakvið verkefnin okkar.

Takk fyrir frábæran dag, mikinn áhuga og skemmtileg samtöl 👏

Hverjir munu halda Íslandi gangandi í framtíðinni? Kannski einmitt þessi hópur. 👏Nemendur Tækniskólans heimsóttu fyrirtæ...
29/09/2026

Hverjir munu halda Íslandi gangandi í framtíðinni? Kannski einmitt þessi hópur. 👏

Nemendur Tækniskólans heimsóttu fyrirtæki Orkuveitunnar á dögunum og fengu að sjá starfsemina frá ýmsum hliðum – allt frá orkuvinnslu og fjarskiptum til fráveitu.

Við þurfum öflugt fagfólk til að takast á við verkefni framtíðarinnar. Þess vegna er alltaf sérstaklega gaman að fá unga og áhugasama nemendur í heimsókn, sýna þeim fjölbreytt störf og vonandi kveikja einhverjar nýjar hugmyndir í leiðinni. ⚡️💧💜

Takk fyrir komuna!

Í tilefni evrópsku Samgönguvikunnar buðu Orkuveitan, Elliðaárstöð og Veitur upp á hinn sívinsæla Rafveituhring sem starf...
29/09/2026

Í tilefni evrópsku Samgönguvikunnar buðu Orkuveitan, Elliðaárstöð og Veitur upp á hinn sívinsæla Rafveituhring sem starfsfólk úr röðum Veitna leiddu í samstarfi við 🚴

Þátttakendur fengu fræðslu um dreifikerfið, kynntust leið rafmagnsins frá virkjun í hús og skoðuð voru tengivirki og dreifistöð. Við þökkum fyrir frábæra þátttöku og starfsfólki okkar fyrir skemmtilegan og fræðandi hjólahring! 🌱

Við elskum Vísindavöku! 🧪⚡Vísindavaka fer fram í Laugardalshöll laugardaginn 26. september, kl. 12–17. Þar verða öll fyr...
25/09/2026

Við elskum Vísindavöku! 🧪⚡

Vísindavaka fer fram í Laugardalshöll laugardaginn 26. september, kl. 12–17. Þar verða öll fyrirtæki Orkuveitunnar með skemmtilega og fræðandi bása.

Okkur finnst fátt skemmtilegra en að vekja áhuga nýrra kynslóða á orku, veitukerfum, nýsköpun og vísindum – eins og sést vel á þessum myndum frá því í fyrra. 💡

Komið við, spyrjið spurninga og gerið tilraunir með okkur!

24/09/2026

Á dögunum hélt Orkuveitan, ásamt dótturfyrirtækjunum Veitur, Ljósleiðarinn, Carbfix & Orka náttúrunnar, sinn árlega Orku- og vísindadag í Elliðaárstöð. Á þessum degi tökum við á móti um 700 háskólanemum sem fá tækifæri til að kynnast vinnustöðunum, starfsemi fyrirtækjanna og starfsfólkinu okkar.

Þessi viðburður er orðinn mjög skemmtileg, árleg hefð hjá okkur og við hlökkum alltaf jafn mikið til að hitta alla þessa hressu háskólanema - og, mögulega, framtíðar starfsfólkið okkar.

Takk fyrir áhugann, fyrir frábæran dag og öll skemmtilegu samtölin! ✨

Utanríkisráðherrar Benelúx-ríkjanna heimsóttu Hellisheiði í gær til að kynna sér nýsköpunarverkefni Orkuveitunnar, ON og...
18/09/2026

Utanríkisráðherrar Benelúx-ríkjanna heimsóttu Hellisheiði í gær til að kynna sér nýsköpunarverkefni Orkuveitunnar, ON og Carbfix og fræðast um þau fjölmörgu tækifæri sem felast í jarðhita. 🌍🌋

Þótt umræðuefnin væru stór og mikilvæg var létt yfir hópnum – eins og myndirnar bera með sér.

Á síðustu myndunum má sjá Xavier Bettel, utanríkisráðherra Lúxemborgar, í símtali við forsætisráðherra landsins. Hann var þó lokkaður með í hópmynd á meðan símtalinu stóð, við mikla kátínu viðstaddra. 😄

15/09/2026

Fallegt umhverfi, hreyfing og saga borgarinnar á tveimur hjólum – gerist það betra? 🚲⚡

Komið með í hjólaleiðsögn um rafmagnsinnviðina okkar og takið þátt í Auðlindahring Orkuveitunnar frá Elliðaárstöð fimmtudaginn 17. september. 🤩

Sjáumst á hjólinu!

https://fb.me/e/4e6aNUJCa

Address

Bæjarháls 1
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

5166100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Orkuveitan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share