18/05/2026
Ragna Bjarnadóttir hefur tekið við sem forstjóri Fangelsismálastofnunar.
Ragna tók formlega við embættinu í vikunni og er fyrsta konan til að gegna starfi forstjóra stofnunarinnar.
Hlökkum til samstarfsins á komandi árum
Ragna tekur við Fangelsismálastofnun: Fyrsta konan
Ragna Bjarnadóttur hefur tekið við embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar.
24/04/2026
Fangelsismálastofnun hefur flutt starfstöð sína á Laugaveg 166📍
02/03/2026
Fangelsismálastofnun óskar eftir samstarfsaðilum vegna samfélagsþjónustu.
Frekari upplýsingar veitir Brynja Rós, sérfræðingur hjá Fangelsismálastofnun á netfanginu: [email protected]
31/10/2025
Tveir fulltrúar frá Fangelsismálastofnun taka þátt í þessu spennandi verkefni
14/04/2025
Hjalti fangaprestur með skemmtilega nálgun.
Á dögunum bauð hann upp á kyrrðarstund á Litla Hrauni þar sem rætt var um guðfræði Kendrick Lamar sem birtist víðsvegar i textum hans. Þetta vakti mikla lukku hjá þeim sem hana sóttu.
"The cat is out the bag, I am not your savior
I find it just as difficult to love thy neighbors"
Í gær var kyrrðarstund á Litla Hrauni þar sem rætt var um guðfræði Kendrick Lamar, sem birtist víðsvegar í textum hans, tónleikaframkomu og viðtölum.
Þessi setning úr laginu Savior varð okkur íhugunarefni.
Höfum við einhvern tímann viljað setja okkur sjálf eða aðra í sæti Guðs?
Höfum við sett stöðu, völd, neyslu, hvernig sem neysla birtist, peninga, sambönd, efnislega hluti, í sæti Guðs?
Höfum við upplifað og fundið hve erfitt er að fylgja gullnu reglunni, að elska náungann eins og sjálf okkur?
Þessi stef eru íhugunarefni fyrir okkur öll nú þegar við erum að stíga saman inn í kyrruviku.
,,Hvað er sannleikur?" spyr Pontíus Pílatus í 18.kafla Jóhannesarguðspjalls.
Það er áskorun að íhuga þessi stef, þau kalla okkur til heiðarlegrar sjálfskoðunar.
“Truth, it resides in the fire
The need of it’s dire
Deceiving the lies, I know” rappar Kendrick í fyrrnefndu lagi, Savior.
10/02/2025
Fangelsismálastofnun leitar að áhugasömu fólki til að starfa við fangavörslu í sumar. Í boði eru sumarstörf í fjórum fangelsum víðsvegar um landið.
https://island.is/starfatorg/x-40450
23/11/2024
Fangaverk verður í jólaþorpinu í Hafnarfirði helgina 22-24 nóvember
Opnunartími 13-18
Hlökkum til að sjá ykkur🎄
10/11/2024
20% afsláttur af öllum vörum til miðnættis 11.11
Fangaverk.is
💥11.11💥
20% afsláttur af öllum vörum með kóðanum SINGLES✨
Nú er tækifærið til þess að klára jólagjafirnar - kóðinn er virkur núna
08/10/2024
Alþjóðlegt skákmót fanga á vegum Fide (International Chess Federation) hófst í morgun♟️
Fangar frá 51 landi í samtals 116 liðum taka þátt að þessu sinni en þetta er í fjórða sinn sem mótið er haldið. Það er gaman að segja frá því að fjögurra manna lið frá Litla Hrauni tekur þátt fyrir hönd Íslands
Meðfylgjandi er frétt frà skáksambandinu sem tóku þátt í þessu með okkur https://skak.is/2024/10/08/islendingar-toku-thatt-i-althjodlegu-fangamoti-i-dag/
25/09/2024
Fangaverk hefur opnað fyrir jólapantanir til fyrirtækja