Ungir sjálfstæðismenn

Ungir sjálfstæðismenn

Share

Ungir sjálfstæðismenn styðja frelsi fólks til að leita hamingjunnar á eigin forsendum www.sus.is ef þú vilt vita meira.

Ungir sjálfstæðismenn styðja frelsi fólks til að leita hamingjunnar á eigin forsendum og taka sjálft ákvarðanir um eigið líf. Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) er samband allra svæðisbundnu sjálfstæðisfélaga ungs fólks á aldrinum 15 til 35 ára. Allir sem styðja frelsishugsjónina eða vilja vita meira um hana eru velkomnir.

11/06/2026

„Kjósendur verða nefnilega að fara átta sig á því að í nær öllum tilfellum þar sem skattar á „X“ eru hækkaðir þá er hægt að leysa fyrir „X“ með því að setja „þig“ í staðinn. Enda borgum „við“ alltaf brúsann.“

Franklín Ernir Kristjánsson, gjaldkeri SUS, birti greinina „Hverjir borga brúsann?“ á Vísi um beinar afleiðingar skattahækkana.

Hægt er að lesa greinina á hlekk í fyrstu athugasemd 🗞️

09/06/2026

Ingveldur Anna Sigurðardóttir tók í dag við þingmennsku af Vilhjálmi Árnasyni, sem sagði skilið við þingstörf til að gerast bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Ingveldur Anna er 29 ára ungur sjálfstæðismaður sem hefur áður setið í stjórn og sinnt embætti annars varaformanns Sambands ungra sjálfstæðismanna. Ingveldur er nú jafnframt eini þingmaður Sjálfstæðisflokksins á SUS-aldri. SUS óskar Ingveldi til hamingju með þingmennskuna og hlakkar til komandi samstarfs 🦅

Photos from Ungir sjálfstæðismenn's post 08/06/2026

Spes…

03/06/2026

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti á Alþingi í dag um ákvörðun sína að hætta á þingi. Áslaug var fyrst kjörin á þing árið 2016, þá 25 ára, og lýkur nú þingstörfum 35 ára gömul. Áslaug hefur því starfað í áratug á Alþingi sem ungur sjálfstæðismaður. SUS þakkar Áslaugu fyrir þjónustu sína á Alþingi sem fyrirmynd og fulltrúi ungra sjálfstæðismanna um allt land 💙🦅

02/06/2026

Selfie, skotspónn og sáttmáli — í Leiðaranum 🦅

20/05/2026

Vonbrigði, en planið er að virka.

Ég viðurkenni það að eftir að verðbólga og stýrivextir hófu að lækka í tíð síðustu ríkisstjórnar og héldu því áfram um stund, þá freistuðumst við til þess að fagna of snemma á þeim tímapunkti, og eigna okkur sigurinn.

En munum að árangur vinnst ekki alltaf í einu skrefi. Þróunin hefur ekki verið í rétta átt. Það er staðreynd – og tímabundna bakslagið er einhvernveginn að verða varanlegt. Við tökum ábyrgð á þeirri stöðu og herðum okkur enn frekar. Það er ekki í boði að missa sjónar á verkefninu.

Svo er þetta líka bara fyrirtækjunum að kenna, ekki okkur. Við þurfum að taka ábyrgð á stöðunni í sameiningu.

Ég trúi því að ef við eyðum bara aðeins meiri pening og sækjum aðeins meiri tekjur þá mun þetta allt lagast á endanum.

Það sagði enginn að þetta yrði auðvelt. En við getum gert þetta. Með því að taka ábyrgð á stöðunni í sameiningu. Við munum vinda ofan af þessu bakslagi og leggja grunn að betra jafnvægi til lengri tíma í íslensku efnahagslífi… kannski.

09/05/2026

Nýtt g*t, kjötbollur og regnbogafánar — í Leiðaranum 🦅

10/04/2026

„Ég vona innilega að löggjafinn sjái sóma sinn í því að leiðrétta þessi 111 ára gömlu mistök, binda enda á þetta óvissuástand og leyfa borgurunum einfaldlega að kaupa sitt áfengi þar sem þeim sýnist án þess að venjulegur verslunarmaður eins og ég eigi hættu á því að fara í fangelsi. Ég nenni ekki neitt að fara í fangelsi! Og svo líka nenni ég ekki að þurfa að kaupa vínið mitt af ÁTVR af því þeir selja aðallega vond vín.“

Daníel Hjörvar Guðmundsson, stjórnarmaður SUS, birti greinina „Ég, glæpamaður“ á Vísi um dóm í máli ríkisins gegn Smáríkinu.

Lesa má greinina með hlekk í fyrstu athugasemd 🔗🗞️

09/04/2026

Ungt fólk vill aðgerðir í útlendingamálum. Júlíus Viggó, formaður SUS, mætti í Dagmál hjá Morgunblaðinu 🗞️

02/04/2026

Tvískinnungur, verðbólga og vatn — í Leiðaranum 🦅

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Valhöll, Háaleitisbraut 1
Reykjavík
105