05/04/2026
English below
Um leið og við óskum landsmönnum gleðilegra páska viljum við benda á að páskarnir ætla svo sannarlega að enda með almennilegum veðurhvelli.
Það er því full ástæða til að gera ráð fyrir truflunum á samgöngum á morgun og gott að skipuleggja ferðir með það í huga. Förum varlega.
As we wish everyone a happy Easter, we would also like to highlight that the holiday will end with a spell of good weather.
This is expected to increase travel and may cause disruptions on the roads tomorrow. Please plan your journeys accordingly and drive with caution.
https://umferdin.is/en
Appelsínugular og gular viðvaranir vegna vinds, hríðar eða talsverðrar ofankomu hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn, annan í páskum.
Vaxandi austanátt á morgun og fer að snjóa. Austan 20-28 m/s með snjókomu og skafrenningi um hádegi, fyrst og hvassast syðst. Hægari og þurrt norðanlands fram eftir degi, en þá hvessir þar líka með snjókomu. Spáð er talsverðri eða mikilli snjókomu á suðaustan- og austanverðu landinu.
Fólk er hvatt til að fylgjast með veðurspám og viðvörunum á www.vedur.is og við minnum á að hægt er að finna allar upplýsingar um ástand vega og lokana á www.umferdin.is
Hlýnar smám saman seint um daginn og fer að rigna á sunnanverðu landinu undir kvöld.
Dregur smám saman úr vindi aðfaranótt þriðjudags, fyrst sunnanlands.
26/03/2026
Tilkynning frá Aðgerðarstjórn Höfuðborgarsvæðisins:
Samkvæmt nýjustu upplýsingum Veðurstofunnar eru spár að ganga eftir og má gera ráð fyrir að veðrið gangi niður fljótlega eftir hádegið á höfuðborgarsvæðinu.
Röskun verður á leik- og grunnskólastarfi líkt og komið hefur fram. Leik- og grunnskólar eru opnir en með lágmarksopnun og með fáu starfsfólki og einungis gert ráð fyrir þeim sem nauðsynlega þurfa að mæta með börn sín í grunn- og leikskóla.
Hefðbundið leikskóla, grunnskóla og frístundastarf hefst eftir að viðvörun gengur yfir. Minnt er á að lokað er fyrir umferð á Hellisheiði og á Vesturlandsvegi um Kjalarnes. Reykjanesbraut er á óvissustigi til hádegis og gæti lokast með stuttum fyrirvara.
Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir, en appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi til kl. 13.
According to the latest information from the Icelandic Met Office, forecasts are being confirmed and weather conditions are expected to deteriorate shortly after noon in the Capital Region.
Disruptions to preschool and primary school operations will occur as previously announced. Preschools and primary schools are open but operating with minimal staffing, and attendance is only expected from those who absolutely need to bring their children in. Regular preschool, primary school, and after-school activities will resume once the weather warning has passed.
It is noted that the road over Hellisheiði and the road to Vesturland via Kjalarnes are closed to traffic. Reykjanesbraut is on an uncertainty level until noon and may close with short notice.
We want to reiterate that people should stay home while the weather passes. An orange weather warning is in effect until 1:00 PM.
25/03/2026
Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðvörunarstig á veðurviðvörunum á Suðausturlandi og á
Vestfjörðum og er nú appelsínugul hríðarviðvörun í gildi vegna illviðrisins sem mun ganga yfir
landið á morgun.
Fylgst verður náið með þróun veðursins og viðvaranir uppfærðar ef ástæða þykir til á www.vedur.is/vidvaranir einnig er hægt að fylgjast með ástandi vega á www.umferdin.is
25/03/2026
ENGLISH BELOW
FRÉTTATILKYNNING FRÁ AÐGERÐASTJÓRN HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
Vegna vonskuveðurs, sem spáð er á morgun, mælist aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins eindregið til þess að fólk haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi frá kl. 7-13 og um tíma má búast við mikilli ofankomu og afleitu skyggni. Veðrið verður orðið skaplegt strax eftir hádegi og gott er ef fólk frestar ferðum sínum fram að þeim tíma að minnsta kosti. Með þessu móti gefst líka miklu betra tækifæri til að ryðja snjó af vegum, en slíkt er afar erfitt ef margir bílar eru fastir í ófærð. Athygli er vakin á því að vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu verður lokað kl. 4 í nótt og þangað til að veðrið gengur yfir, m.a. Vesturlandsvegi um Kjalarnes og Hellisheiði og þá er óvissustig á Reykjanesbraut frá kl. 6 í fyrramálið. Frekari upplýsingar varðandi færð og veður má nálgast á upplýsingasíðum Vegagerðarinnar og Veðurstofunnar. Röskun verður á leik- og grunnskólastarfi á morgun. Leik- og grunnskólar eru opnir en ekki verður um hefðbundið starf að ræða á meðan á appelsínugulri viðvörun stendur. Hefðbundið leikskóla, grunnskóla og frístundastarf hefst eftir að viðvörun lýkur.https://vefur.shs.is/wp-content/uploads/2023/02/ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-IS-011122.pdf
Viðbúið er að mikið álag verður á viðbragðsaðilum snemma í fyrramálið og fram eftir degi. Þeir mun því ekki hafa tök á að aðstoða fólk við að komast til og frá vinnu, þ.m.t. heilbrigðisstarfsmenn.
Due to severe weather forecast for tomorrow, the Capital Area Emergency Management strongly advises people to stay home while the weather passes. An orange weather warning is in effect from 7:00–13:00, during which heavy snowfall and poor visibility are expected. The weather is expected to improve shortly after noon, and it is advisable for people to delay travel until at least that time. This will also provide a much better opportunity to clear snow from roads, as this is extremely difficult when many cars are stuck in adverse conditions.
Attention is drawn to the fact that roads to and from the capital area will be closed at 4:00 AM tonight until the weather passes, including the Vesturlandsvegur road via Kjalarnes and Hellisheiði. There will also be an uncertainty level on Reykjanesbraut from 6:00 AM. Further information regarding road conditions and weather can be found on the websites of the Icelandic Road and Coastal Administration and the Icelandic Meteorological Office.
Preschool and elementary school activities will be disrupted tomorrow. Preschools and elementary schools will be open, but normal operations will not take place while the orange alert is in effect. Normal preschool, elementary school, and after-school activities will resume after the alert ends.
Information can be found here: https://vefur.shs.is/wp-content/uploads/2023/02/ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-IS-011122.pdf?fbclid=IwY2xjawQxJDZleHRuA2FlbQIxMABicmlkETF5OXpibUExem9DY041dDdIc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHolivI_wGN9MeRdPU6TUppzl3hIk6CSw7fdpJAGnACQyE-hkOorRZEczHuni_aem_6vu6ZuFJ5kzW6quFI6PHrA
We kindly ask you to closely monitor messages tomorrow morning in case there are any changes to the situation.
Emergency responders are expected to be under significant pressure early tomorrow morning and throughout the day. They will therefore not be in a position to assist people in getting to and from work, including healthcare workers.
25/03/2026
Vekjum athygli á skilaboðum frá Veðurstofu Íslands.
Eins og margir borgarbúar þekkja getur verið mikill munur á veðuraðstæðum á milli hverfa. Útlit er fyrir að mesti vindurinn verði undir Esjunni og mesta úrkoman austantil á svæðinu og þá sér í lagi í efri byggðum. Ljóst er þó að á öllu svæðinu verður vindur hviðóttur með talsverðri snjókomu og síðar slyddu og lélegu skyggni.
Viðbúið er að færð versni og einnig er hætta á foktjóni. Fólk er hvatt til að tryggja lausamuni og fylgjast með veðurspám og viðvörunum á www.vedur.is
25/03/2026
Á morgun, fimmtudaginn 26. mars, má búast við talsverðri snjókomu á höfuðborgarsvæðinu sem veldur slæmu skyggni og versnandi færð. Ferðaveður verður varasamt og hætta á foktjóni.
Fólk er hvatt til að tryggja lausamuni og huga vel að öryggi.
Ef möguleiki er á, er best að vera sem minnst á ferðinni.
Frá Veðurstofa Íslands
Höfuðborgarsvæðið
Suðaustan stormur og stórhríð
Suðaustan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu með slæmu skyggni og versnandi færð. Varasamt ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
25/03/2026
Á morgun, fimmtudaginn 26. mars er mikilvægt að meta hvort ferðir á þeim svæðum sem veðrið verður verst séu nauðsynlegar. Ef hægt er, verið sem minnst á ferðinni þar sem varasamt ferðaverður verður á stórum hluta landsins og veruleg hætta á foktjóni.
✔️ Fylgist með veðri á vedur.is
✔️ Frestið ferðum ef hægt er
✔️ Festið lausamuni
Gott skipulag dregur úr áhættu og auðveldar störf viðbragðsaðila.
Hér er hægt að fylgjast með hvar og hvenær veðrið verður á morgun: https://www.vedur.is/vidvaranir
24/03/2026
Í morgun gaf Veðurstofa Íslands Íslands út gula veðurviðvörun fyrir landið allt á fimmtudaginn vegna suðaustan hríðarbyls. Viðvörunin tekur gildi klukkan fimm að morgni fimmtudags og gildir til klukkan 18 sama dag.
Viðvörunin hefur nú verið uppfærð og í fyrramálið verða gerðar viðvaranir fyrir hvert spásvæði út frá því hvernig veðurspá er þar og fyrir hvaða tíma viðvörunin gildir.
Núverandi texti er svohljóðandi:
Viðvörun fyrir allt Ísland – Suðaustan hríðarbylur (Gult ástand)
26 mar. kl. 05:00 – 18:00
Suðaustan stormur eða rok, 18-28 m/s með talsverðri snjókomu eða slyddu gengur norðaustur yfir landið á fimmtudag. Einnig má búast við mjög hvössum viðhviðum við fjöll, 35 – 45 m/s.
Veðrið fer að ganga niður suðvestantil á landinu um hádegi, en norðaustantil á landinu um kvöldið. Samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á vegum og tafir í flugsamgöngum. Fólki er bent á
að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Forsíða Veðurstofu Íslands | Veðurstofa Íslands
Suðlæg átt, víða 13-20 m/s og rigning eða slydda með köflum, sums staðar snjókoma á Vestfjörðum, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 1 til 8 stig. Él vestantil í kvöld og kólnar.Suðvestan 15-25 á morgun, hvassast vestantil, og él eða slydduél, en þurrt að kalla norðaust...
23/03/2026
Á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að óvissustigi hefur verið lýst vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu tók gildi síðdegis í dag á Austfjörðum. Spáð er mikillu ofankomu sem byrjar eftir í hádegi í dag.
Mesta úrkomuákefðin verður seinnipartinn og fram á kvöld en það styttir ekki upp fyrr en eftir hádegi á morgun. Vindur verður fyrst austanstæður en verður búinn að snúast í norðanátt um miðnætti.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum
Óvissustig vegna snjóflóðahættu mun taka gildi síðdegis í dag á Austfjörðum. Spáð er mikillu ofankomu sem byrjar eftir í hádegi í dag. Mesta úrkomuákefðin verður seinnipartinn og fram á kvöld en það styttir ekki upp fyrr en eftir hádegi á morgun. Vindur verður fyrst austan...
23/03/2026
Á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að búið er að lýsa yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði
Spáð er mikillu ofankomu sem byrjar eftir í hádegi í dag. Mesta úrkomuákefðin verður seinnipartinn og fram á kvöld en það styttir ekki upp fyrr en eftir hádegi á morgun. Vindur verður fyrst austanstæður en verður búinn að snúast í norðanátt um miðnætti.
Vegna snjóflóðahættu hefur verið ákveðið að rýma 5 rýmingareiti fyrir utan þéttbýlið á Seyðisfirði.
Hættustig vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði
Spáð er mikillu ofankomu sem byrjar eftir í hádegi í dag. Mesta úrkomuákefðin verður seinnipartinn og fram á kvöld en það styttir ekki upp fyrr en eftir hádegi á morgun. Vindur verður fyrst austanstæður en verður búinn að snúast í norðanátt um miðnætti. Vegna snjóflóðah...
23/03/2026
Lögreglan á Austurlandi vekur athygli á:
Vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði hefur Veðurstofa Íslands ákveðið rýmingu húsa á reitum SE01, SE02, SE04, SE24 og SE26 frá og með klukkan 20:00 í kvöld. Þeir rýmingarreitir er um ræðir má finna á kortasjá Múlaþings, https://www.map.is/mulathing, undir valmöguleikanum „Skipulag-rýmingarsvæði“.
Íbúar húsa á þessum reitum, rétt um tíu talsins, hafa verið upplýstir. Gert er ráð fyrir að rýming standi eigi skemur en til hádegis á morgun þegar veðrið á að ganga niður.
Í Neskaupstað hafa og verið gerðar ráðstafanir vegna varúðar á reit NE01 sem sjá má hér á https://www.map.is/fjardabyggd/ Einnig undir valmöguleikanum „Skipulag-rýmingarsvæði“.
Atvinnuhúsnæði er á því svæði og hefur verið takmörkuð dvöl þar til morguns.
Ekkert ferðaveður er á meðan veður þetta gengur yfir. Fjallvegir eru lokaðir eða að lokast en vegir í byggð eru opnir.
Kort af Íslandi | Map of Iceland
www.map.is er í eigu og rekið af Loftmyndum ehf.