Stjórnlagaráð

Stjórnlagaráð

Share

Ráðið getur endurskoðað hvaða þætti stjórnarskrárinnar sem það kýs, eða lagt til að bætt verði við hana nýjum ákvæðum eða köflum.

Stjórnlagaráði er ætlað að taka við og fjalla um skýrslu stjórnlaganefndar, undirbúa frumvarp að endurbættri stjórnarskrá og hafa til hliðsjónar við þá vinnu niðurstöður Þjóðfundar 2010. Stjórnlagaráð á að standa í þrjá til fjóra og er skipað 25 fulltrúum. Þegar ráðið hefur samþykkt frumvarp að endurbættri stjórnarskrá verður það sent Alþingi til meðferðar. Hin endurskoðaða stjórnarskrá tekur ekk

24/02/2012

Alþingi samþykkti þann 22.2. að Stjórnlagaráð verði kallað saman dagana 8.-11. mars n.k. og fari þá yfir spurningar og efni frá Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis varðandi frumvarpið til nýrrar stjórnarskrár og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 30. júní.

02/12/2011

"Never again can the world be told by the custodians of the old that the people cannot be relied upon to write the contract between citizens and government, and write it well."

Hope from below: composing the commons in Iceland | openDemocracy Iceland's fate epitomizes the tragedy of ‘constitutional democracies’ as they have been variously practiced and imposed in recent times: whereby the writing of a constitution by the people is considered the revolutionary exception, and not the rule. Never before has a ‘peacetime’ state constitution...

31/10/2011

Stjórnlagaráðstíðindi komin á vefsíðu ráðsins. Um er að ræða þrjú hefti og hefur það fyrsta Stjórnlagaráðstíðindi 1 að geyma allar fundargerðir ráðsfunda, funda verkefnanefndanna þriggja og stjórnarfunda, ásamt viðauka þar sem greint er frá aðdraganda og starfi Stjórnlagaráðs. Þá er í Stjórnlagaráðstíðindum 2 (hefti a og b) uppskrifaðar allar umræður á ráðsfundum Stjórnlagaráðs eins og þær fóru fram. Heftin eru í pdf formi á forsíðu vefs Stjórnlagaráðs: www.stjornlagarad.is

10/10/2011

Þá er að fylgjast með umræðu Alþingis um tillögur Stjórnlagaráðs, en þær eru settar á dagskrá Alþingis á morgun, þriðjudag:

Dagskrá þingsins

6. þingfundur 11.10.2011 kl. 13:30
1. Óundirbúinn fyrirspurnatími.
2. Kosning 4. varaforseta skv. 3. mgr. 3. gr. þingskapa, sbr. 5. mgr. 75. gr.
3. Kosning nefndar níu þingmanna til að vinna að frekari endurskoðun þingskapa skv. ákv. til bráðabirgða í l. nr. 84 frá 11. júní 2011 um þingsköp Alþingis.
4. Efnahagsleg áhrif af rekstri og arðsemi Landsvirkjunar til ársins 2035, sérstök umræða kl. 14:00. Málshefjandi: Jón Gunnarsson. Til andsvara: iðnaðarráðherra.
5. Tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá Íslands 3. mál, skýrsla forsætisnefndar. Ein umræða.

05/10/2011

Tillaga Stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga verður tekin til umræðu á Alþingi í næstu viku. Dreift hefur verið þingskjali nr. 3 sem er skýrsla um málið: http://www.althingi.is/altext/140/s/0003.html
Og svo er bara að fylgjast með umræðunni og meðferð málsins...

þskj. 3 # frumskjal nefnd forsn, 140. lþ. 3. mál: #A tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjór 2. KAFLI MEÐFERÐ TILLAGNA STJÓRNLAGARÁÐS. 2.1. Gildandi ákvæði um breytingar á stjórnarskrá. Samkvæmt gildandi stjórnarskrá er það Alþingi eitt sem getur gert breytingar á stjórnarskrá landsins. Þá mælir stjórnarskrá Íslands fyrir um að stjórnarskránni verði aðeins breytt sé breytingin samþykkt ...

25/09/2011

Eru ekki allir að horfa á heimildarmyndina um aðdraganda og störf Stjórnlagaráðs á RÚV?

18/08/2011

Nefndarsvið Stjórnlagaráðs hefur unnið viðstöðulaust að frágangi og skýringum við frumvarpið seinustu daga. Nú er það aðgengilegt til niðurhals af vefnum okkar.

Stjórnlagaráð 2011 - Frumvarp Stjórnlagaráð hefur samþykkt einróma frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Frumvarpið var afhent Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis föstudaginn 29. Júlí kl. 10.30 í Iðnó.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Ofanleiti 2
Reykjavík
103