13/03/2026
Ellen Calmon fjallar um aðgerðir gegn einmanaleika í grein á Vísi: "Reykjavík á að vera borg sem býður upp á vettvang fyrir fólk til að hittast og njóta samvista. Einmanaleiki er ekki einkamál einstaklingsins heldur samfélagslegt verkefni. Með markvissri stefnumótun, blöndun kynslóða og fjölskylduvænum rýmum getum við byggt borg sem heldur betur utan um sitt fólk enda á enginn að þurfa að vera einn í Reykjavík."
Enginn á að vera einn í Reykjavík - Vísir
Einmanaleiki er ein stærsta lýðheilsuáskorun samtímans. Hann snertir fólk á öllum aldri, börn, ungmenni, fullorðna og eldra fólk. Í ört vaxandi borg þar sem byggð þéttist og samfélagsform breytast verðum við að spyrja: hvernig tryggjum við að engin manneskja upplifi sig eina?
12/03/2026
Fullt út úr dyrum á fundi um Evrópumál með Kristrúnu
23/02/2026
🌹 Aðalfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík var haldinn föstudaginn 20. febrúar sl.
🌹 Fráfarandi formaður, Sigfús Ómar Höskuldsson (sem setið hefur í 3 ár) flutti skýrslu stjórnar og kom þar víða við í annasömum störfum félagsins á liðnu starfsári.
🌹 Skýrsluna má lesa hér:https://mcusercontent.com/8927d3c613ad89180b6f2c90a/files/47abe7ae-d3cb-afaa-348f-eb4efb2655da/_Aacute_rssk_yacute_rsla_SffR_2026.pdf
🌹 Á aðalfundinum var kjörin ný stjórn:
Hörður Oddfríðarson, formaður
Stefán Petterson, gjaldkeri
Anna María Jónsdóttir
Ásmundur Jóhannsson
Brigir Þórarinsson
Vilborg Oddsdóttir
Magnea Marinósdóttir
Varamenn:
Sigfús Ómar Höskuldsson
Margrét Héðinsdóttir
Gréta Dögg Þórisdóttir
Nichole Leigh Mosty
Arnar Þór Ingólfsson
🌹 Fráfarandi stjórn var þökkuð góð störf og leyst út með rósum
20/02/2026
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri skrifar: „Þegar fáni Grænlands verður dreginn að húni við Ráðhús Reykjavíkur í dag er það ekki dyggðaskreyting. Það er yfirlýsing um samstöðu með sjálfsákvörðunarrétti þjóða. Með þeirri einföldu en dýrmætu hugsjón að hver þjóð eigi rétt á að ráða eigin landi, eigin auðlindum og eigin framtíð. Yfirlýsing um stuðning við grundvallarmannréttindi."
Sjá nánar með að smella á tengilinn 👇
Stöndum með Grænlendingum - Vísir
Undanfarna mánuði hefur staða Grænlands verið með ólíkindum. Bandaríkin, eitt mesta stórveldi heims, hafa með óbilgirni krafist yfirráða og eignarhalds á landi þar sem býr sjálfstæð þjóð, með eigin sögu og eigin framtíð.
19/02/2026
🌹 Minnum á aðalfund Samfylkingarfélagsins í Reykjavík, föstudag 20. febrúar kl. 17.00 að Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík 🥳
Aðalfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík
20. feb. 2026 kl. 17:00– Hallveigarstígur 1 - 101 ReykjavíkAðalfundur Samfylkingarfélagsins í ReykjavíkAðalfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík verður haldinn föstudaginn 20. febrúar kl. 17:00 í sal Samfylkingarinnar við Hallveigarstíg 1.Dagskrá skv. lögum aðalfundar SffRSk....
18/02/2026
Ellen Calmon varaborgarfulltrúi og formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar og Sabine Leskopf borgarfulltrúi Samfylkingarinnar skrifa:
„Rannsóknir sýna að þegar börn og ungmenni eru útsett fyrir áfengisneyslu og -markaðssetningu í samhengi við íþróttir hefur það áhrif á aukna drykkju síðar meir. Beinar tekjur af sölu áfengis geta verið umtalsverðar fyrir íþróttafélagið en á móti fellur verulegur kostnaður á samfélagið svo sem á þolendur ofbeldis og vegna löggæslu, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu."
Lesið með að smella á tengilinn 👇
Bjór og bolti - uppsögn á íslenska forvarnarmódelinu - Vísir
Í gær fór fram atkvæðagreiðsla í borgarstjórn um að staðfesta ákvörðun borgarráðs sem veitti íþróttafélögum víðtækt leyfi til áfengissölu á íþróttaviðburðum. Umrædd ákvörðun markar tímamót í stefnu borgarinnar gagnvart tengslum áfengis og íþrótta.
13/02/2026
Dagskrá aðalfundar SffR föstudag 20. febrúar 2026 kl. 17.00:
1) Skýrsla stjórnar flutt og rædd.
2) Ársreikningur lagður fram til samþykktar eða synjunar.
3) Skýrsla skoðunarnefndar flutt.
4) Lagabreytingar (ósk hefur borist um að ræða lögin undir þessum lið).
5) Ákvörðun um árgjald.
6) Kjör formanns.
7) Kjör gjaldkera.
8 ) Kjör annarra stjórnarmanna.
9) Kjör varamanna.
10) Kjör þriggja manna í skoðunarnefnd.
11) Kjör í nefndir
a) í uppstillingarnefnd, b) í aðrar nefndir sem aðalfundur ákveður.
12) Önnur mál, sem félagsmenn vilja ræða.
Uppstillingarnefnd gerir tillögur um stjórnarmenn og skoðunarnefnd. Aðrar tillögur skulu berast skrifstofu flokksins eða formanni félagsins (SffR) 2 dögum fyrir fund, í síðasta lagi á miðvikudag kl. 17.
Tillaga uppstillingarnefndar um formann: Hörður Oddfríðarson; um gjaldkera: Stefán Pettersson; um aðra stjórnarmenn: Anna María Jónsdóttir, Birgir Þórarinsson, Magnea Marinósdóttir, Valný Óttarsdóttir og Vilborg Oddsdóttir; um varamenn (í þessari röð): Sigfús Ómar Höskuldsson, Margrét Héðinsdóttir, Gréta Dögg Þórisdóttir, Nichole Leigh Mosty, Arnar Þór Ingólfsson; um skoðunarnefnd: Herbert Baldursson, Kristinn Karlsson og Konráð Gylfason.
Aðalfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík
20. feb. 2026 kl. 17:00– Hallveigarstígur 1 - 101 ReykjavíkAðalfundur Samfylkingarfélagsins í ReykjavíkAðalfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík verður haldinn föstudaginn 20. febrúar kl. 17:00 í sal Samfylkingarinnar við Hallveigarstíg 1.Dagskrá skv. lögum aðalfundar SffRSk....
05/02/2026
Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar skrifar um bílastæði og framtíð Reykjavíkur.
🚗 Bílafjöldi á höfuðborgarsvæðinu eykst um um 70 bíla í viku.
🏙️ Borgin glímir við plássleysi, kostnað og áskoranir í loftgæðum og loftslagsmálum.
🔁 Markmiðið er að draga úr nauðsyn bílanotkunar með raunhæfum valkostum.
📊 Þótt um 70% aki í dag segjast aðeins 41% vilja helst ferðast á bíl – ef aðrir kostir eru til staðar.
🅿️ Bílanotkun er þó ekki það sama og bílaeign.
🛠️ Bílastæðareglur borgarinnar eru því í endurskoðun til að rýmka þær.
🤝 Sú vinna byggir á auðmýkt og vilja til að hlusta á gagnrýni og laga reglurnar að raunverulegum aðstæðum.
🏘️ Höfum samt í huga að í Reykjavík eru tugþúsundir fleiri bílastæða en íbúar, sem hefur áhrif á íbúðaverð og borgarumhverfi.
🏗️ Í umræðum í borgarstjórn kom fram sjónarmið um að allt að fimm bílastæði gætu fylgt hverri íbúð, sem getur hækkað íbúðaverð um tugi milljóna.
❓ Við stöndum á krossgötum.
🌍 Viljum við líkjast evrópskum mannlífsborgum eða bandarískum bílaborgum? Viljum við byggja borg fyrir fólk – eða bíla?
Grein Dóru Bjartar á Vísi í heild hér 👇🔗
Sjálfstæðisflokkurinn vill 5 bílastæði á íbúð - sem getur kostað allt að 70 milljónir - Vísir
Reykjavík stendur frammi fyrir fjölþættum áskorunum: Plássleysi vegna sívaxandi bílafjölda, hagkvæmni við uppbyggingu og rekstur innviða í stækkandi samfélagi, auknum kostnaði fólks við rekstur heimila og áskorunum þegar koma að loftgæðum og loftslagsmálum.
04/02/2026
Góður gestur var á fundi okkar um Evrópumál í dag, miðvikudaginn, 4. febrúar, Finnbjörn Á. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Á fundinum var rætt um viðhorf til aðildar í verkalýðshreyfingunni og reynslu ASÍ af samvinnu alþýðusamtaka á evrópskum grundvelli.
Fundurinn var vel sóttur af áhugasömum flokksmönnum. Góðar og upplýsandi umræður urðu á fundinum sem Mörður Árnason stjórnaði af sinni kunnu snilld.
Samfylkingarfélagið í Reykjavík gengst í vetur fyrir spjallfundum um Ísland og Evrópusambandið. Haldnir eru stuttir fundir mánaðarlega með einum gesti eða tveimur.
Á þessum reglulegu fundum spjöllum við um fyrirheit ríkisstjórnarinnar í Evrópumálunum m.a.
Eftir mánuð, miðvikudaginn 4. mars, verður gestur okkar Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, en einnig er væntanleg í spjall til okkar seinna í febrúar Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra. Dagsetning er enn óákveðin.
Áður hafa spjallað við okkur Magnús Árni Skjöld, formaður Evrópuhreyfingarinnar, Þorgerður Katrín Gunnlaugsdóttir utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður.
04/02/2026
Ellen Calmon, formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar skrifar:
„Hvernig byggjum við borg sem raunverulega setur fólk í forgrunn? Fyrir mér liggur svarið í því hvernig við mætum börnum og fjölskyldum þeirra. Ekki aðeins með þjónustu, heldur með rými sem styrkir tengsl, samveru og öryggi – grunnstoðir vellíðanar og geðheilbrigðis. Þess vegna vil ég að komið verði á fót barnamenningarhúsi í Reykjavík, sem verði lifandi miðstöð menningar, sköpunar, samfélagslegrar þátttöku og geðheilbrigðisforvarna."
Sjá nánar 👇
Barnamenningarhús – menning, sköpun, tengsl og geðheilbrigðisforvarnir frá upphafi - Vísir
Hvernig byggjum við borg sem raunverulega setur fólk í forgrunn? Fyrir mér liggur svarið í því hvernig við mætum börnum og fjölskyldum þeirra. Ekki aðeins með þjónustu, heldur með rými sem styrkir tengsl, samveru og öryggi – grunnstoðir vellíðanar og geðheilbrigðis.
03/02/2026
Nú er fjör að færast í leikinn! Samfylkingin komin í 29,4%, bætir við sig 9% og þremur borgarfulltrúum, úr 5 í 8 samkvæmt þessari könnun! 🌹
Hefur sjaldan eða aldrei staðið betur svo skömmu fyrir kosningar.
Tveggja turna tal í Reykjavík - Vísir
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út.