12/06/2026
Við erum stolt af því að styðja við framtíð iðn- og tæknigreina⚙️
Nýverið afhentum við Tækniskólanum HAAS TL-2 tölvustýrðan rennibekk ásamt verkfærabúnaði. Búnaðurinn mun nýtast nemendum vel í verklegu námi og gefa þeim tækifæri til að kynnast þeirri tækni sem notuð er í atvinnulífinu í dag.
Við þökkum Tækniskólanum fyrir gott samstarf!🔧
11/06/2026
Framkvæmdir við borun á Jaðarsbökkum hefjast í haust💧
Á Jaðarsbökkum á Akranesi verður kannað hvort finna megi nýtanlegt heitt vatn fyrir bæinn. Tímaáætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdir við borplanið hefjist undir lok ágúst og byrjað verði að bora í október.
Með áframhaldandi uppbyggingu og fólksfjölgun á Akranesi gæti nýtanlegt heitt vatn reynst verðmæt auðlind sem styrkir innviði bæjarins til framtíðar. Í dag kemur allt heita vatn bæjarins um eina lögn frá Deildartungu, um 70 km leið.
Borunin verður framkvæmd með rafdrifnum bor sem dregur úr loftmengun á svæðinu.
Borað eftir heitu vatni á Jaðarsbökkum í haust
Veitur bora eftir heitu vatni fyrir vaxandi samfélag á Akranesi.
03/06/2026
Fertug hitaveitulögn fær hreinsun með svíni!💧🐷
Veitur hafa hafið hreinsun og ástandsmat á Reykjaæð I, einni af mikilvægustu flutningsæðum hitaveitunnar sem flytur heitt vatn frá Mosfellsbæ að Perlunni.
Með sérstökum hreinsibúnaði, sem gjarnan er kallaður „svín“, eru útfellingar hreinsaðar innan úr lögninni og með því geta Veitur viðhaldið mikilvægum innviðum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt. 🌱
„Svínið burstar burt útfellingar sem eru fastar innan á lögninni og geta haft áhrif á flutningsgetuna. Þegar hreinsun er lokið þá sendum við skanna í gegnum hana til að kanna hvar þarf að bregðast við með fyrirbyggjandi viðhaldi. Þá getum við lagað lögnina þar sem þarf í staðin fyrir að taka hana alla upp og endurnýja“ segir Indriði Hauksson rekstrarstjóri hitaveitu.
Reykjaæð 1 hreinsuð og skoðuð á fertugsafmælinu
Umhverfisvæn nýsköpun nýtt til að ástandsmeta 3,5 kílómetra af mikilvægri stofnlögn hitaveitunnar.
02/06/2026
Að byggja upp innviði með loftslagið að leiðarljósi🌱
Veitur standa frammi fyrir stóru verkefni á næstu árum - að finna aukinn forða heits vatns fyrir höfuðborgarsvæðið og tryggja örugga þjónustu fyrir vaxandi samfélag.
⚡Við jarðhitaleit verður notast við rafmagn þar sem því verður við komið og lífdísil annars staðar, sem getur dregið úr losun um allt að 90% miðað við notkun dísilolíu.
🚗 Orkuskipti eigin bílaflota Veitna er einnig í fullum gangi og stefnt er að því að ljúka því fyrir lok árs 2030.
♻️ Samhliða því er Veitur að þróa og innleiða lausnir sem draga úr losun, meðal annars með skurðlausum lausnum og nýjum leiðum til að nýta lífrænan úrgang úr fráveitu.
„Markmið Veitna er að draga úr áhrifum starfsemi sinnar á loftslagið,“ segir Bryndís Björnsdóttir, sérfræðingur Veitna í umhverfismálum.
Nánar👇
Umfangsmesta jarðhitaleit Veitna á lághitasvæðum í 50 ár
Markmið Veitna er að draga úr áhrifum starfsemi sinnar á loftslagið.
02/06/2026
Silja verður á WGC 2026⚡
Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna verður meðal fulltrúa Veitna á WGC 2026 í Calgary í júní, þar sem alþjóða samfélag jarðhitageirans kemur saman.
Silja flytur erindið: ,,Communicating Complexity: Innovative Public Outreach During a Major Hot Water Downtime in Iceland“.
//
Meet Silja at WGC 2026⚡
Silja Ingólfsdóttir, Communication Officer, will be among Veitur’s representatives at WGC 2026 in Calgary this June, where the global geothermal community will come together.
Silja will present “Communicating Complexity: Innovative Public Outreach During a Major Hot Water Downtime in Iceland”.
29/05/2026
Hittu okkur á íslenska básnum á WGC2026 🌿
Fulltrúar frá Veitum verða á íslenska básnum á World Geothermal Congress 2026 í Calgary í Kanada
- Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla
- Rún Ingvarsdóttir, samskiptastýra
- Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi
Hægt verður að hitta fulltrúa Veitna:
🕒 Þriðjudag, 9. júní, kl. 14:00
//
Meet us at the Icelandic Pavilion at WGC2026 🌿
Representatives from Veitur will be available at the Icelandic Pavilion during the World Geothermal Congress 2026 in Calgary, Canada:
- Brynja Ragnarsdóttir, Managing Director Water Utilities
- Rún Ingvarsdóttir, Head of Communications
- Silja Ingólfsdóttir, Communications Officer
Meet the Veitur team:
🕒 Tuesday, June 9, 2 PM
29/05/2026
Heimildarmynd tekin upp í Klettagörðum💧🎥
Í vikunni fengum við skemmtilega heimsókn frá RÚV en verið er að vinna að heimildar- og fræðslumynd fyrir 12 ára börn í tengslum við LIFE Icewater verkefnið. En verkefninu er ætlað að auka þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns á Íslandi. Kristín Sverrisdóttir, rekstrarstjóri fráveitu hjá Veitum var fengin í viðtal.
28/05/2026
Óskaðu eftir samtali með fulltrúum Veitna⚡
World Geothermal Congress fer fram í Calgary í Kanada dagana 8.-11. júní 2026. Þar munu leiðtogar, rannsakendur og frumkvöðlar sem vinna að mótun framtíðar sjálfbærrar orku koma saman.
Fulltrúar Veitna verða á svæðinu til að ræða innviði samfélagsins, upplýsingagjöf og sjálfbæra framtíð veitukerfa.
Hlekkur í fyrstu athugasemd til að bóka samtal👇
//
Request a meeting with Veitur⚡
World Geothermal Congress 2026 will take place in Calgary, Canada, from June 8–11, bringing together leaders, researchers, and innovators shaping the future of sustainable energy.
Representatives from Veitur will be there to discuss critical infrastructure, public communication, and the sustainable future of utility services.
Find the link in the first comment to book a meeting👇
21/05/2026
Brynja verður á WGC 2026⚡
Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla, verður meðal fulltrúa Veitna á WGC 2026 í Calgary í júní, þar sem alþjóða samfélag jarðhitageirans kemur saman. Brynja leiðir uppbyggingu og rekstur þeirra innviða sem tryggja heimilum og samfélaginu aðgang að heitu vatni, köldu vatni og fráveitu.
Öflugir og áreiðanlegir innviðir eru grunnur að lífsgæðum, öryggi og sjálfbærni samfélagsins og mikilvægi þeirra verður sífellt meira með vaxandi samfélagi og breyttum áskorunum framtíðarinnar.
//
Meet Brynja at WGC 2026⚡
Brynja Ragnarsdóttir, Managing Director of Water Utilities, will be among Veitur’s representatives at WGC 2026 in Calgary this June, where the global geothermal community comes together.
Brynja leads the development and operation of the infrastructure that ensures homes and communities have reliable access to hot water, cold water, and wastewater services.
Strong and reliable infrastructure is the foundation of quality of life, safety, and sustainability and its importance continues to grow alongside expanding communities and the evolving challenges of the future.