Fjarskiptastofa

Fjarskiptastofa

Share

Hér fyrir þig...
Meginhlutverk FST er að tryggja hagkvæma, örugga og aðgengilega fjarskiptaþjónustu o

Starfs­fólkið er öflugasta varnarlínan - Vísir 28/05/2026

Netöryggi snýst ekki bara um eldveggi, kerfi og hugbúnað. Það snýst um fólk. 🛡️

Mjög áhugaverð grein eftir Margréti V. Helgadóttur, sérfræðing á Netöryggissviði Fjarskiptastofu, um hvernig sterk öryggismenning byrjar hjá stjórnendum og smitast út í allt fyrirtækið. Þegar starfsfólk skilur áhættuna, fær fræðslu og upplifir traust verður það öflugasta varnarlínan gegn netógnum.

Í stafrænum heimi dagsins í dag er upplýsingaöryggi ekki lengur „IT-mál“. Það er rekstrarmál, traustsmál og leiðtogamál.

Mælum með lestri 👇

https://www.visir.is/g/20262889886d/starfsfolkid-er-oflugasta-varnarlinan

Starfs­fólkið er öflugasta varnarlínan - Vísir Flest fyrirtæki og stofnanir á Íslandi hafa fjárfest í alls kyns tæknilausnum til að verjast sívaxandi netógnum.

11/05/2026

Netöryggi er orðið órjúfanlegur hluti af ábyrgri hugbúnaðarþróun og mikilvæg forsenda fyrir framþróun stafræns samfélags.

Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir sviðsstjóri netöryggissviðs hjá Fjarskiptastofu, fjallar í þessari grein um þróun ógnalandslagsins, mikilvægi öruggrar hugbúnaðarþróunar og hvernig markviss áhersla á netöryggi getur stutt við samkeppnishæfni og verðmætasköpun í hugverkaiðnaði.

👉 Grein Unnar má lesa hér:

https://www.visir.is/g/20262881241d/netoryggi-hugbunadar-er-lykilatridi-i-vexti-hugverkaidnadar

2026 Fjarskipti, náttúruvá og almannavarnir 28/04/2026

Fjarskipti, náttúruvá og almannavarnir 📡🌋

Trygg fjarskipti eru lykilforsenda öryggis í samfélaginu. Á þessari ráðstefnu verður fjallað um samspil fjarskipta, náttúruvárvöktunar og almannavarna – og hvers vegna þessi kerfi þurfa að vinna saman til að tryggja viðbragðsgetu þegar á reynir.

Á dagskrá eru erindi frá sérfræðingum úr ólíkum áttum, m.a. um:
• hlutverk fjarskipta í náttúruvá
• áhrif alþjóðlegra breytinga á fjarskiptamarkað

Þá mun fulltrúi Fjarskiptastofu Njörður Tómasson fjalla um viðnámsþol fjarskiptakerfa við álagi auk þess sem Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, sviðsstjóri Netöryggissviðs Fjarskiptastofu verður fundarstjóri.

Við hvetjum öll sem hafa áhuga á öryggismálum, almannavörnum og fjarskiptum til að taka þátt og efla umræðu um mikilvægt málefni.

2026 Fjarskipti, náttúruvá og almannavarnir Fjarskipti, náttúruvárvöktun og almannavarnir eru mjög samfléttaðar. Ekki er hægt að tryggja almannavarnir nema trygg fjarskipti séu til staðar. Í ýmsum tilvikum byggjast almannavarnir á tryggri náttúruvárvöktun. Ýmiskonar náttúruvá getur og hefur ógnað tryggum fjarskiptum og...

3G lokar um land allt 08/04/2026

⚠️ Getur þú náð í 112 eftir lokun 3G?

Í dag hefjast lokanir á 3G farsímakerfum á höfuðborgarsvæðinu. Ef símtækið þitt styður ekki 4G eða 5G gæti það haft áhrif á möguleika þína til að hringja – þar á meðal í neyðarnúmerið 112.

Þetta á sérstaklega við um eldri símtæki og símtæki sem keypt hafa verið erlendis.

❗ Ef þú hefur þegar fengið skilaboð frá þínu farsímafyrirtæki - Ekki bíða – kannaðu stöðuna núna:

📞 Hægt er að hringja í númerið 1280 til að kanna hvort símtækin virki eftir lokun.

Nánari upplýsingar:
https://www.fjarskiptastofa.is/lokun

Frétt um lokanir 3G:
https://www.fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/tolfraedi-og-gagnasafn/frettasafn/frett/fr%C3%A9ttir/3g-lokar-um-land-allt

Öryggi skiptir máli – vertu viss um að þú náir sambandi þegar mest á reynir.

3G lokar um land allt Fjarskiptastofa, Neyðarlínan og fjarskiptafyrirtæki landsins vekja athygli á að lokun 3G-farsímakerfa stendur yfir hjá öllum fjarskiptafyrirtækjunum. Lokanir hefjast á höfuðborgarsvæðinu 8. apríl næstkomandi. Í kjölfarið verður öllum 3G-kerfum lokað á landsbyggðinni í maí.

3G lokar um land allt 30/03/2026

3G er að loka – athugaðu tækið þitt - 3G farsímakerfi eru nú að lokast hjá öllum fjarskiptafélögum.

ENGLISH AND POLISH BELOW

❗ Sum eldri símtæki gætu EKKI náð sambandi við 112 eftir lokun.

Ef þú hefur fengið skilaboð um að tækið þitt gæti lent í vandræðum:
• Hringdu í 1280 til að prófa hvort síminn virkar
• Íhugaðu að skipta um tæki ef þörf er á

❗ Ekki á að prófa að hringja í 112 nema í neyð.

Nánar: https://www.fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/tolfraedi-og-gagnasafn/frettasafn/frett/fr%C3%A9ttir/3g-lokar-um-land-allt

3G is shutting down – check your phone - 3G networks are now being switched off across Iceland.

❗ Some older phones may NOT be able to call 112 after the shutdown.

If you have received a message that your device may be affected:
• Call 1280 to test if your phone works
• Consider replacing your device if needed

❗ Do NOT call 112 for testing.

Wyłączenie sieci 3G – sprawdź swój telefon - Sieć 3G jest obecnie wyłączana w całej Islandii.

❗ Niektóre starsze telefony mogą NIE być w stanie połączyć się z numerem alarmowym 112 po wyłączeniu.

Jeśli otrzymałeś informację, że Twój telefon może być objęty problemem:
• Zadzwoń pod numer testowy 1280, aby sprawdzić działanie telefonu
• Rozważ wymianę urządzenia, jeśli to konieczne

❗ Nie należy dzwonić pod 112 w celach testowych.

3G lokar um land allt Fjarskiptastofa, Neyðarlínan og fjarskiptafyrirtæki landsins vekja athygli á að lokun 3G-farsímakerfa stendur yfir hjá öllum fjarskiptafyrirtækjunum. Lokanir hefjast á höfuðborgarsvæðinu 8. apríl næstkomandi. Í kjölfarið verður öllum 3G-kerfum lokað á landsbyggðinni í maí.

27/03/2026

Lokun 3G farsímakerfa er nú að ljúka hjá öllum fjarskiptafélögum á Íslandi. Þetta er hluti af eðlilegri þróun fjarskipta þar sem eldri tækni víkur fyrir nýrri og öflugri kerfum.

Mikilvægt er að benda á að ákveðin eldri símtæki geta átt í erfiðleikum með að ná sambandi við neyðarnúmerið 112 eftir þessar breytingar.

❗ Mikilvægt: Ekki hringja í 112 nema í raunverulegu neyðartilviki.

Þeir sem hafa fengið skilaboð frá sínu fjarskiptafyrirtæki um að tæki þeirra kunni að verða fyrir áhrifum eru hvattir til að:
• Prófa að hringja í 1280 til að kanna hvort síminn virki sem skyldi
• Hafa samband við sinn þjónustuaðila og endurnýja tæki ef þörf krefur

Nánari upplýsingar má finna hér:
https://www.fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/tolfraedi-og-gagnasafn/frettasafn/frett/fr%C3%A9ttir/3g-lokar-um-land-all

25/03/2026

Með tilkomu nýrrar netöryggistilskipunar Evrópusambandsins (NIS2) fjölgar þeim fyrirtækjum og stofnunum sem teljast sem mikilvægir innviðir og falla undir tilskipunina. Fjarskiptastofa styður fyrirtæki og stofnanir í undirbúningi fyrir innleiðingu NIS2 og því hefur netöryggissvið sett í loftið nýja könnun sem ætlað er að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að meta hvort líklegt sé að þau falli undir gildissvið NIS2.

Smelltu hér til að taka könnunina: https://fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/netoryggi/nis2-konnun-fjarskiptastofu/

Kaup á farsímum – mun tækið virka að fullu á Íslandi? | Vöruvaktin 19/02/2026

Fjarskiptastofa og Vöruvaktin vekja athygli almennings á því að á Evrópumarkaði og jafnvel víðar eru í umferð farsímar með stuðning við 4G sem geta sinnt hefðbundnum símtölum, en virka ekki að fullu í öllum farsímanetum, þar á meðal hvað varðar aðgang að neyðarnúmerinu 112.

Kaup á farsímum – mun tækið virka að fullu á Íslandi? | Vöruvaktin Fjarskiptastofa vill vekja athygli almennings á því að á Evrópumarkaði og jafnvel víðar eru í umferð farsímar með stuðning við 4G sem geta sinnt hefðbundnum símtölum, en virka ekki að fullu í öllum farsímanetum, þar á meðal hvað varðar aðgang að neyðarnúmerinu 112. Eft...

Traust fjar­skipti eru þjóðaröryggismál - Vísir 26/01/2026

Traust fjarskipti eru þjóðaröryggismál

Í nýlegri grein Unnar Kristínar Sveinbjarnardóttur, sviðsstjóra netöryggis hjá Fjarskiptastofu, á Vísi er vakin athygli á mikilvægi traustra fjarskipta fyrir öryggi samfélagsins. Fjarskipti eru undirstaða neyðarþjónustu, opinberrar þjónustu, atvinnulífs og daglegs lífs fólks – og skipta sköpum þegar á reynir.

Fjarskiptastofa vinnur að því að efla öryggi, seiglu og áreiðanleika fjarskiptainnviða með skýru regluverki, eftirliti og samvinnu við hagaðila, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi.

👉 Grein Unnar má lesa hér:

Traust fjar­skipti eru þjóðaröryggismál - Vísir Ísland er í fremstu röð í heiminum þegar kemur að fjarskiptum og stafrænni þjónustu. Öflug fjarskiptanet eru lífæðar samfélagsins og skapa grunn fyrir rafræn samskipti, opinbera þjónustu, viðskipti og daglegt lífi fólks um allt land.

16/01/2026

📢 Laust starf hjá Fjarskiptastofu - Sérfræðingur í farnetum, tíðnisviðum og radíómælingum

Vilt þú móta framtíð fjarskiptainnviða Íslands?

Fjarskiptastofa leitar að öflugum og áhugasömum einstaklingi til starfa. Hjá stofnuninni vinnum við að því að stuðla að öruggum, skilvirkum og framsæknum fjarskiptum í þágu samfélagsins.

Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, faglegt starfsumhverfi og tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun fjarskiptamála á Íslandi.

👉 Nánari upplýsingar má finna hér:
https://www.fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/um-fjarskiptastofu/laus-storf/

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Suðurlandsbraut 4
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 10:00 - 14:00
Tuesday 10:00 - 14:00
Wednesday 10:00 - 14:00
Thursday 10:00 - 14:00
Friday 10:00 - 14:00