16/04/2026
Nú er vorið á næsta leiti og undanfarar nýttu sér góða veðrið sem var í gær í æfingu 🌿☀️
Þau klifu upp á Ingólfsfjall og nutu útiverunnar til hins ýtrasta. Skemmtileg ganga með frábæru fólki ⛰️ 😄
27/03/2026
Í gær skall á stórhríð á höfuðborgarsvæðinu. Dagurinn gekk vel þar sem mjög fáir voru á ferðinni, sem gerði okkur kleift að hreinsa götur og aðstoða ökutæki sem lentu í vandræðum á skilvirkan og öruggan hátt.
Frá HSSR voru þrír bílar og 14 einstaklingar tilbúnir í húsi snemma morguns að beiðni almannavarna. Við sinntum fjölbreyttum verkefnum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið og tryggðum aðstoð þar sem hennar var þörf.
23/03/2026
Tveir félagar úr HSSR eru þessa dagana staddir á Mýrdalsjökli þar sem þeir taka þátt í fimm daga snjóflóðaúttekt hjá BHSÍ.
Lægðirnar hafa gengið yfir í röðum og því hefur veðrið verið krefjandi, þátttakendur eru því orðnir nokkuð veðurbarnir! Þrátt fyrir það hafa æfingar gengið vel og þegar hefur verið lokið nokkrum prófum á fyrstu tveimur dögunum.
Í lok námskeiðsins ætlar Anna og hundurinn Asi að reyna við B-próf (útkallspróf) í alvöru íslensku vetrarveðri❄️💪🐕
Kynntu þér hundahóp HSSR á https://hssr.is/pages/hundahopur
Myndir frá Björgunarhundasveit Íslands
24/02/2026
Í gær hittust björgunarsveitir á suðurhorninu í húsnæði Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og héldu skemmtilegt og fróðlegt tækjakvöld 🔧🚑
Mikið var um flott og öflug tæki og virkilega gaman að sjá hversu gríðarlega mikil þróun hefur átt sér stað í búnaði sveitanna í gegnum tíðina. Það er greinilegt að tæknin heldur áfram að styrkja starf björgunarsveitanna og auka öryggi bæði björgunarfólks og þeirra sem þurfa á aðstoð að halda.
Takk fyrir frábæra samveru!
12/01/2026
✨ 2025 – ár fullt af verkefnum og framförum ✨
Árið 2025 var sannarlega mjög viðburðaríkt hjá Hjálparsveit Skáta í Reykjavík.
Á árinu var stofnaður nýr Hamfarahópur, með það skýra markmið að geta brugðist hratt, skipulega og faglega við þegar stórslys eða hamfarir eiga sér stað, hvar sem er á landinu.
Við fengum einnig nýjan Reyk 1, ásamt fjölda annarra mikilvægra búnaðar- og skipulagsbóta sem styrkja viðbragðsgetu sveitarinnar enn frekar. 💪
Við lítum til 2026 með mikilli bjartsýni, stolt af því sem við höfum byggt upp og tilbúin í þau verkefni sem framundan eru.
📊 Í myndunum í þessum pósti eru nokkrir skemmtilegir tölfræðipunktar frá árinu 2025
10/01/2026
Takk fyrir stuðninginn! ❤️
Í síðustu viku var gengið frá öllu eftir jólatrjáa og flugeldasöluna. Húsið er komið í eðlilegt horf og hópastarf hafið af fullum krafti á ný.
Við viljum þakka ykkur kærlega fyrir ómetanlegan stuðning þessi áramót og vonumst til að sjá ykkur aftur þegar næstu áramót renna upp.
Við óskum landsmönnum öllum þess að árið 2026 verði slysalaust ár. 💙✨
06/01/2026
🔔 Flugeldasalan opin hjá okkur í dag!
Í dag er opið hjá okkur frá 16:00 til 20:00 á Malarhöfða 6.
🔥 Í kvöld verður svo brenna í Gufunesi, sem endar á flottri flugeldasýningu kl. 19:00 🎆
Sjáumst þar! 👋
01/01/2026
Gleðilegt nýtt ár!
Við viljum minna á að í dag nýársdag verða 22 staðir á stórhöfuðborgarsvæðinu með gáma fyrir notaða flugelda. Notuð stjörnuljós má setja í gáma fyrir málm á grenndargámastöðum.
Nánari upplýsingar á : https://www.flugeldar.is/ruslid-burt
Nánari upplýsingar um staðsetningar gámanna má sjá á meðfylgjandi mynd.
31/12/2025
Núna hafa allir okkar sölustaðir lokað 🎇
Við viljum þakka ykkur öllum innilega fyrir frábæran stuðning 🎆💛
Flugeldasalan er lífæðin í okkar starfi og án ykkar væri það ekki mögulegt.
Við óskum öllum landsmönnum gleðilegs nýs árs og farsældar á komandi ári 🎉✨
31/12/2025
🎆 Gamlársdagur er runninn upp – okkar uppáhaldsdagur! 🎆
Í dag opnum við alla sölustaðina okkar kl. 10:00 og verðum með opið til kl. 16:00.
Endilega kíkið við, fáið góð ráð hjá sjálfboðaliðunum okkar og græjið ykkur upp fyrir kvöldið 🎇
📍 Sölustaðir HSSR:
• Egilshöll
• Fylkisstúkan
• Hraunbær 123
• Húsasmiðjan Grafarholti
• Malarhöfði 6
• Sólheimar 21A (Skjöldungar)
• Spöngin
✨ Gleðilegt nýtt ár! ✨