Forsætisráðuneytið

Forsætisráðuneytið

Share

@forsaetisradun Velkomin á Facebook síðu forsætisráðuneytisins. Fylgist með okkur annars staðar á vefnum:
www.forsaetisraduneyti.is
@forsaetisradun

Við fögnum allri umræðu á síðunni okkar en áskiljum okkur rétt til að fjarlægja meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa. Að sjálfsögðu gilda hér líka almennar notendareglur Facebook (sjá á www.facebook.com/terms.php?ref=pf)

Allt efni sem sett er inn af öðrum aðilum en forsætisráðuneytinu er á ábyrgð viðkomandi einstaklings.

08/01/2026

Forsætisráðuneytið býður til morgunfundar um alþjóðlegt samhengi atvinnustefnu í Grósku þriðjudaginn 13. janúar kl. 8.30. Á fundinum mun Mariana Mazzucato, prófessor við University College London (UCL) og stofnandi og forstöðumaður UCL Institute for Innovation and Public Purpose, heldur lykilerindi.
Hlekkur á skráningu í fyrstu athugasemd 👇

02/09/2025

Forsætisráðuneytið býður til morgunfundar um mótun nýrrar atvinnustefnu fimmtudaginn 4. september á Hilton Nordica.
Hlekkur á skráningu í fyrstu athugasemd 👇

Photos from Forsætisráðuneytið's post 24/02/2025

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur í dag þátt í leiðtogafundi í Kænugarði í Úkraínu í tilefni þess að þrjú ár eru liðin frá ólögmætri allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu.

„Við Íslendingar erum stolt af framlagi Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna sem fara fremst á alþjóðavísu í stuðningi við Úkraínu. Á meðal okkar er full samstaða um að standa þétt með Úkraínu á þessum viðkvæma tímapunkti þegar úkraínska þjóðin heyr varnarbaráttu sem snýr raunverulega að öryggi Evrópu allrar,“ sagði Kristrún í ávarpi sínu.

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að auka varnartengdan stuðning Íslands við Úkraínu.

Sjá frétt í fyrstu athugasemd 👇

Photos from Forsætisráðuneytið's post 21/12/2024

Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins undir forystu Kristrúnar Frostadóttur var skipuð á fundi ríkisráðs á Bessastöðum í dag.

Sjá frétt í fyrstu athugasemd👇

15/05/2024

Ísland er komið upp í 2. sæti á Regnbogakorti Evrópusamtaka hinsegin fólks þar sem staða og réttindi hinsegin fólks í álfunni eru metin. Frá árinu 2018 hefur Ísland hækkað um 16 sæti á Regnbogakortinu. 🏳️‍🌈

Ísland er áfram í efsta sæti á réttindakorti transfólks í Evrópu. 🏳️‍⚧️

Sjá nánar í frétt í athugasemd.

15/02/2024

Forsætisráðuneytið vekur athygli á því að frestur fyrir tilnefningar til jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur hefur verið framlengdur til 15. mars.

https://pace.coe.int/en/pages/vigdisprize

Opið fyrir umsóknir í barna- og ungmennaráð heimsmarkmiðanna 07/11/2023

Þekkir þú ungmenni sem vill koma sjónarmiðum barna á framfæri?👊
Barna- og Ungmennaráð Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna ráðleggur ráðuneytum og stofnunum og fundar árlega með ríkisstjórn um málefni sjálfbærrar þróunar🌎
Við hvetjum öll börn fædd á árunum 2011-2008 til þess að gefa kost á sér í ráðið fram að mánudeginum 13. nóvember kl 23:59, en kosning fer fram á barnaþingi í Hörpu þann 17.nóvember.
ig:

Opið fyrir umsóknir í barna- og ungmennaráð heimsmarkmiðanna Opnað hefur verið fyrir umsóknir í barna- og ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra fer með skipun ráðsins en óskað er eftir börnum sem eru tilbúin að sitja í ráðinu í tvö ár, frá og með janúar 2024.

Málþing um mannréttindakafla stjórnarskrárinnar 02/11/2023

Er þörf á breytingum á mannréttindakafla stjórnarskrárinnar?

Forsætisráðuneytið býður til málþings í Háskólanum í Reykjavík, mánudaginn 6. nóvember kl. 15, þar sem fjallað verður um greinargerð Róberts Spanó og Valgerðar Sólnes um mannréttindakafla stjórnarskrárinnar.

Málþing um mannréttindakafla stjórnarskrárinnar Forsætisráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Akureyri býður til málþings undir yfirskriftinni Er þörf á breytingum á mannréttindakafla stjórnarskrárinnar? Málþingið fer fram mánudaginn 6. nóvember nk. kl. 15.00-16.30 í stofu...

Styrkveitingar til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála 05/10/2023

Forsætisráðuneytið auglýsir styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála. Umsóknarfrestur er til miðnættis 16. október nk.

Styrkveitingar til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála Forsætisráðuneytið auglýsir styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála til eins árs í senn. Umsóknarfrestur er til miðnættis 16. október 2023.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Stjórnarráðshúsinu Við Lækjartorg
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:00
Tuesday 08:30 - 16:00
Wednesday 08:30 - 16:00
Thursday 08:30 - 16:00
Friday 08:30 - 16:00