ESB - Evrópusambandið á Íslandi / European Union in Iceland

ESB - Evrópusambandið á Íslandi / European Union in Iceland

Share

Þetta er síða Sendinefndar ESB á Íslandi
This is the page of the EU Delegation to Iceland

Ekki gleyma að fylgja okkur á öðrum samfélagsmiðlum!

Hér má sjá hina miðlana okkar: https://lnk.bio/EUinIceland

Photos from ESB - Evrópusambandið á Íslandi / European Union in Iceland's post 15/06/2026

🌊 Dagur hafsins var haldinn hátíðlegur í síðustu viku. Að því tilefni stóð sendinefnd ESB fyrir strandhreinsun ásamt nokkrum erlendum sendiráðum á Íslandi, sjálfboðaliðum frá SEEDS og Bláa hernum.

Hreinsunin fór fram við Brimketil á Reykjanesi undir verkstjórn Tómasar J. Knútssonar, stofnanda Bláa hersins. Hann miðlaði af reynslu sinni og sýndi okkur hið mikilvæga starf sem herinn vinnur í þágu íslenskrar náttúru. Hreinsunin endurspeglar ríka áherslu umhverfisstefnu ESB á baráttuna gegn plastúrgangi og verndun lífríkis hafsins.

☀️ Veðrið lék við þátttakendur og hreinsunin tókst afar vel. Saman tókst okkur að fjarlægja 680 kg af rusli og stuðla að hreinna hafi og fallegri strandlengju á Reykjanesskaga.

🌍 Hafið er oft kallað lungu plánetunnar og því er lífsnauðsynlegt að vera meðvituð um áhrif gjörða okkar á lífríki þess. Með sameiginlegu átaki getum við öll lagt okkar af mörkum til að vernda hafið.

Sérstakar þakkir fá Tommi Knúts og Blái herinn, SEEDS sjálfboðaliðarnir og öll þau sendiráð sem lögðu hönd á plóg.

🌊 World Oceans Day was celebrated last week. To mark the occasion, the EU Delegation organised a beach clean-up together with foreign embassies in Iceland, volunteers from SEEDS, and the Blue Army.

The clean-up took place at Brimketill on the Reykjanes Peninsula under the guidance of Tómas J. Knútsson, founder of the Blue Army. He shared his experience and highlighted the organisation’s valuable work in protecting Icelandic nature. The event reflected the strong emphasis of EU environmental policy on tackling plastic pollution and protecting marine ecosystems.

☀️ The weather was on our side, and the clean-up was a great success. Together, we removed 680 kg of waste, contributing to cleaner oceans and a more beautiful coastline on the Reykjanes Peninsula.

🌍 The ocean is often referred to as the lungs of our planet, making it vital that we remain aware of the impact our actions have on marine life. By working together, we can all help protect our oceans.

Special thanks go to Tommi Knúts and the Blue Army, the SEEDS volunteers, and all participating embassies.

Skilvirkari og einfaldari Evrópa 11/06/2026

Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi, skrifar um einföldun regluverks í nýjasta hefti Viðskiptablaðsins. Mikilvægt innlegg í umræðuna um hvernig við getum gert rekstrarumhverfið skilvirkara.

,,Í grunninn snýst samkeppnishæfni um meira en hagvöxt. Hún snýst um störf, laun og lífsviðurværi fólks um alla Evrópu. Einföldun regluverks er ekki markmið í sjálfu sér heldur leið til að skapa öflugra og sveigjanlegra hagkerfi þar sem fyrirtæki geta einbeitt sér að nýsköpun og stækkun í stað þess að glíma við skrifræði. Næsta skref er að tryggja að þessar umbætur séu framkvæmdar á skilvirkan hátt svo að fyrirtæki jafnt sem borgarar geti uppskorið ávinninginn að fullu. Það er mikilvægt að við höldum áfram að einfalda regluverk og vinna að því í sameiningu að skapa einfaldari og samkeppnishæfari Evrópu.“

Skilvirkari og einfaldari Evrópa „Einföldun regluverks er ekki markmið í sjálfu sér heldur leið til að skapa öflugra og sveigjanlegra hagkerfi.”

10/06/2026

Í gær heimsótti sendiherra ESB á Íslandi Clara Ganslandt Neytendasamtökin og ECC-Iceland / Evrópska neytendaaðstoðin. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakana, kynnti starfsemi félagsins og ræddi neytendavernd á Íslandi með sendiherranum. Una Magnea Stefánsdóttir, forstöðumaður ECC á Íslandi, fór yfir starfsemi evrópska neytendaraðstoðina á Íslandi sem er hluti af ECC-netinu með starfsemi í 30 löndum eða öllum aðildarríkjum ESB auk Íslands og Noregs, fjármagnað að hluta af Evrópusambandinu og býður íslenskum neytendum aðstoðar að kostnaðarlausu fyrir aðstoð á sviði neytendamála þvert á landamæri.

Við þökkum Breka og Unu fyrir fróðlegt spjall.

//

Yesterday, the Ambassador of the European to Iceland, Clara Ganslandt, visited the Consumers Association of Iceland and the European Consumer Centre in Iceland. Breki Karlsson, chairman of the Consumers Association, presented the organisation's work and discussed consumer protection in Iceland. Una Magnea Stefánsdóttir, director of the ECC in Iceland, gave an overview of the European Consumer Centre in Iceland, which is part of the ECC network operating in 30 countries, all EU member states as well as Iceland and Norway, partially funded by the European Union, offering Icelandic consumers free assistance with cross-border consumer issues.

We thank Breki and Una for an informative and engaging conversation.

Photos from ESB - Evrópusambandið á Íslandi / European Union in Iceland's post 03/06/2026

(English below)

Í gær fór fram málþing Matís, miðstöðvar mælinga, rannsókna og þróunar fyrir matvælaframleiðslu á Íslandi, undir yfirskriftinni ávinningur matvælarannsókna.

Atvinnuvegamálaráðherra Hanna Katrín Friðriksson opnaði þingið. Aðalfyrirlesari var James Morrison, Director of Healthy Planet hjá DG Research European Commission, sem ávarpaði gesti í myndbandsupptöku. Hann ræddi framtíð matvæla og stefnu ESB til að takast á við áskoranir matvælaiðnaðarins, þar á meðal áhrif loftslagsbreytinga, í því samhengi nefndi hann sérstaklega áætlanirnar Food 2030 og Food 2040 sem miðar að því að gera matvælaframleiðslu Evrópusambandsins sanngjarnari, heilbrigðari og sjálfbærari.



Sigurður Óli Sigurðsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs hjá RANNÍS, fór yfir árangur Íslands í evrópsku rannsóknarsamstarfi. Hann benti á hvað Ísland hefur notið mikið góðs af evrópsku samstarfi á borð við Horizon áætlun ESB, að Ísland fær meira fjármagn en það leggur í nýsköpunar- og rannsóknaráætlanir ESB og að sóknarfæri séu til staðar fyrir íslenskan matvælaiðnað í gegnum aukna samhæfni þegar íslensk verkefni sækja í evrópska rannsóknarsjóði.

Erindin voru fjölmörg og fróðleg, það sést að framtíð íslenskrar matvælaframleiðslu er í blóma.

//

Yesterday, the annual conference of the Icelandic Food and Biotech R&D company Matís was held under the theme The Benefits of Food Research.

Minister of Industries Hanna Katrín Friðriksson opened the conference. The keynote speaker was James Morrison, Director, Healthy Planet, at DG Research of the European Commission, who addressed guests via video recording. He discussed the future of food and the EU's strategy for tackling the challenges facing the food industry, including the impacts of climate change. In that context, he specifically mentioned the Food 2030 and Food 2040 initiatives, which aim to make food production in the European Union fairer, healthier and more sustainable.

Sigurður Óli Sigurðsson, Head of the Research and Innovation Division at RANNÍS, reviewed Iceland's achievements in European research collaboration. He highlighted how greatly Iceland has benefited from European partnerships such as the EU's Horizon programme, noting that Iceland receives more funding than it contributes to EU innovation and research programmes, and that opportunities exist for the Icelandic food industry through increased synergies when Icelandic projects apply for European research funds.

The presentations were numerous and enlightening, and it is clear that the future of Icelandic food production is flourishing.

Photos from ESB - Evrópusambandið á Íslandi / European Union in Iceland's post 01/06/2026

(English below)

Við viljum þakka öllum þeim góðu gestum sem fögnuðu með okkur í Norræna Húsið á laugardaginn var — þið gerðuð Evrópudaginn 2026 ógleymanlegan! 💛

Það var okkur sönn ánægja að kynna fyrir gestum fjölbreytta menningu, bæði í list og mat sem og tungumálum álfunnar. 🇪🇺

Veðrið lék við okkur, gleðin var alltumlykjandi og bragðgott smakk frá hinum fjölmörgum aðildarríkjum Evrópusambandsins var á boðstólum — það er nákvæmlega þetta sem gerir Evrópudaginn svo einstakann. ☀️🎉

Við viljum sérstaklega þakka fulltrúum allra þeirra 14 aðildarríkja sem tóku þátt og Rannís fyrir að hafa gert þennan Evrópudagsfögnuð að svo einstakri upplifun fyrir alla fjölskylduna og gesti og gangandi. 🙏

Við hlökkum nú þegar til næsta árs! 💛

//

We want to thank all the wonderful guests who celebrated with us at the Nordic House last Saturday — you made Europe Day 2026 truly unforgettable! 💛

It was a genuine pleasure to introduce our guests to the diverse culture of our continent — through art, food, and the many languages of Europe. 🇪🇺

The weather was on our side, the joy was all around us, and delicious tastes from the many EU Member States were on offer — this is exactly what makes Europe Day so special. ☀️🎉

A special thank you to the representatives of all 14 participating Member States and Rannís for making this Europe Day celebration such a memorable experience for families and visitors alike. 🙏

We are already looking forward to next year! 💛

22/05/2026

(English below)

Langar þig að upplifa Evrópu á einum degi með fjölskyldunni? ✨

Komdu og fagnaðu Evrópudeginum með okkur í Norræna Húsinu laugardaginn milli 11:00 og 14:00.

Þemað í ár er: Okkar Evrópa, okkar framtíð 🌱
Á þessum degi fögnum við menningarlegri fjölbreytni og unga fólkinu.

Þetta verður dagur þar sem fjölskyldur, vinir og nágrannar koma saman til þess að njóta þess besta sem Evrópa hefur upp á að bjóða.

Í boði verður fjölbreytt afþreying fyrir alla aldurshópa. Þar má nefna andlitsmálningu, leiki og föndur fyrir börnin. 🎨

Að auki verður tækifæri til þess að heimsækja bása fjölda aðildarríkja Evrópusambandsins þar sem hægt verður að kynnast einstökum hefðum þeirra, bragðheimi og sögum. Þá munu gestir fá að njóta lifandi tónlistar allan daginn 🎵

Komdu við og gerum Evrópudaginn eftirminnilegan saman! 💙🇪🇺
————————
Would you like to travel across Europe in just one day with your family? ✨

Join us for Europe Day at the Nordic House in Reykjavik on Saturday, 30 May 2026, from 11:00 AM to 2:00 PM

This year’s theme, “Our Europe, Our Future: United in Diversity, Powered by Youth”, celebrates Europe’s cultural diversity and the energy of young people 🌱

It will be a fun and welcoming day for the whole family, filled with the very best of Europe — culture, music, creativity, and togetherness.

Children can enjoy face painting, games, and creative arts and crafts, while visitors of all ages can explore stands from different European Union Member States, discover unique traditions, taste new flavours, and hear stories from across Europe. 🎨

Live performances throughout the afternoon will add to the festive atmosphere 🎵

Come celebrate Europe Day with us! 💙🇪🇺

Photos from European Labour Authority's post 21/05/2026
Photos from ESB - Evrópusambandið á Íslandi / European Union in Iceland's post 19/05/2026

Í síðustu viku hélt sendiherra ESB á Íslandi, Clara Ganslandt, erindi á alþjóðlegri ráðstefnu sem bar heitið „Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu“. Þar ræddi hún öryggisstefnu Evrópusambandsins og Norðurslóðir en einnig samstarf Íslands og ESB í síbreytilegu öryggislandslagi.

Háskólinn á Bifröst stóð fyrir ráðstefnunni sem haldin var undir merkjum Jean Monnet Chair verkefnisins „Iceland ’s Strategic Role in Arctic and European Security (ISARCEUR)“ í samstarfi við sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi og sendiráð Póllands, Frakklands og Bandaríkjanna.

//

Last week, the EU Ambassador to Iceland, Clara Ganslandt, spoke at an international symposium titled "New Frontiers of European Security: The Arctic and the European Periphery", addressing the topic of EU security policy and the Arctic, and EU-Iceland cooperation in a changing security landscape.

The event was organised by Bifröst University under the EU funded new Jean Monnet Chair project “Iceland’s Strategic Role in Arctic and European Security (ISARCEUR)”, in cooperation with the EU Delegation to Iceland and the Embassies of Poland, France, and the United States.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Reykjastræti 2
Reykjavík
101