Jón forseti 2024

Jón forseti 2024

Share

Síða stuðningsfólks Jóns Gnarr vegna forsetakosninga 2024

Photos from Jón forseti 2024's post 04/06/2024

Við drógum fram óseld plaggöt - þau allra skemmtilegustu í seríunni.
"Ég krefst þess að þú kjósir mig" - "Jón Gnarr er einhver skemmtilegasti maður sem ég hef hitt" - og svo fallegar myndir, annarsvegar af Jóni og Klaka við Öxará og hinsvegar af Jóni, Jógu og Klaka við Öxará.
Það eru ekki mörg eintök til. Alltsaman hand-áritað af okkar uppáhalds frambjóðanda

https://jongnarr.is/verslun/

jongnarr.is - Jón Forseti 02/06/2024

Kæru vinir.
Nú er komið í sölu á https://jongnarr.is/verslun/ áritaður varningur í takmörkuðu magni.

Plaggötin og póstkortin eru árituð, þeir bolir sem eru í stærð S eru líka áritaðir og allir eru bolirnir á lækkuðu verði.

Síðasti séns að tryggja sér þennan fallega varning - hann er í takmörkuðu magni og ekki verður meira framleitt af honum.

jongnarr.is - Jón Forseti Jón Gnarr á Bessastaði 2024!

Forsetakosningar | Þjóðskrá 01/06/2024

Elsku Íslendingar nær og fjær! Kjörstaðir hafa verið opnaðir um allt land og verða opnir í stærri sveitarfélögum til kl 22 í kvöld, en skemur annars staðar. Hér er hægt að fletta upp sinni kennitölu og kanna hvar þú átt að kjósa.
Okkur þætti best ef þið mynduð kjósa Jón Gnarr - en það skiptir líka máli að mæta og kjósa með hjartanu.

Forsetakosningar | Þjóðskrá Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá í íbúakosningum í forsetakosningum sem verða 1. júní.

Land míns föður, land minnar móður, landið mitt - Vísir 31/05/2024

“Skortur á virðingu, trausti og vináttu er að verða meinsemd í samfélagi okkar. Mesta ógnin við tungu okkar eru ekki slettur eða íslenskukennsla fyrir innflytjendur. Hún er heldur ekki skiptar skoðanir okkar á því hvað sé rétt málfar. Sú umræða er öll gott mál. Nei, stærsta ógnin er fólk sem hefur hefur gott vald á íslensku en talar hana án nokkurrar sýnilegrar tilfinningalegrar tengingar og næstum því vélrænt, fólk sem getur talað endalaust án þess að segja nokkurn tíman neitt. Og alls ekki neitt sem gæti kallast frumlegt eða einlægt. Ef við ætlum að láta þetta viðgangast möglunarlaust þá bíður okkar ekkert nema andlegur dauði. Og þá fyrst verður almennilega leiðinlegt hér.

Ég hef alltaf kosið að standa utan við svona frasa og frekar reynt að segja eitthvað lítið af einlægni en halda langar og innihaldslausar ræður eða reynt að búa til einhver ný og skemmtileg orðasambönd.

Við getum haldið endalausar uppblásnar ræður um mikilvægi þess að halda ræður og tala saman og hugsa um gildi. Við getum haldið endalausa þjóðfundi. En ef okkur tekst ekki að byggja upp traust, virðingu og trú þá munum við aldrei komast neitt úr sporunum heldur bara sökkva dýpra í þetta þvaður-fen sundrungar sem við erum komin útí.”

Land míns föður, land minnar móður, landið mitt - Vísir Ísland hefur alltaf verið mér gott og haft nóg fyrir mig að gera. Ég er mjög þakklátur fyrir að fá að telja mig til þessarar merkilegu þjóðar.

31/05/2024

Ég er tilbúinn fyrir fyrsta rauðhærða forsetann
-Guðmundur Kristinn Jónsson, tónlistarmaður

Photos from Jón forseti 2024's post 30/05/2024

Að horfa á forsetakappræður er góð skemmtun. Að spila bingó er líka góð skemmtun. En að spila forsetakappræðubingó er ekkert minna en stórkostleg skemmtun! 🎡

30/05/2024

Ég þekki Jón Gnarr ekki vel, við höfum hist örsjaldan. En í fyrsta sinn sem við tengdumst þá var það í gegnum gjöf sem hann sendi mér, í gegnum dóttur mína. En gjöfin var niðurgangsmeðal. Niðurgangsmeðal fyrir hunda. Fyrst var ég hissa á að hann skyldi hafa sent mér gjöf yfirhöfuð. Svo var ég hissa á að hann skyldi hafa valið þessa gjöf. Ég hló og hló og ætlaði aldrei að geta hætt. En skemmtilegt. Síðar kom í ljós að dóttir mín hafði sagt honum að ég væri að vakna á nóttunni til að fara með magaveikan hvolpinn minn út að gera þarfir sínar. Þetta var því frábær gjöf, falleg hugsun og gefin af einlægni og umhyggju. Svona kemur Jón Gnarr mér fyrir sjónir, góður maður með hjartað á réttum stað. Ekkert yfirlæti og engin leiðindi. Þannig forseta vil ég, forseta með fallega hugsun, einlægni og umhyggju fyrir Íslandi og öllu sem íslenskt er. Þess vegna er hann forsetinn minn.
-Alfreð Bæhrenz Þórðarson,

30/05/2024

Ég styð Jón Gnarr og Jógu á Bessastaði. Okkar allra besta fólk.
- Jón Atli Jónasson, rithöfundur

30/05/2024

Mín reynsla af Jóni er að hann kemur til dyranna eins og hann er klæddur. Einlægur og skemmtilegur. Mikill húmor en þó alvarlegur þegar þess þarf. Hann endurspeglar það að vera mannlegur gegnum kosti og galla. Þannig mann vil ég á Bessastaði.
- Emmsjé Gauti, tónlistarmaður

Öll litbrigði lífsins í boði alla daga með Jóni | Birtíngur útgáfufélag 30/05/2024

Okkar eina sanna Jóga í viðtali við Vikan:

“Ég hef lært í gegnum ævina að hlýða æðri máttarvöldum, meira en manneskjum. Ég hef hlýtt tilganginum mínum og gefið eftir mínar væntingar og mínar hugmyndir fyrir eitthvað sem ég hef leyft að verða, eitthvað sem mér var ætlað sem er svo miklu stærra og meira en mig hefði nokkurn tíma getað órað fyrir.

Mér finnst í raun ekki gaman nema þegar ég er í þessari þjónustu. Það var í þessari þjónustu sem viljinn til að vinna með líkama fólks, í stað þess að klæða það, kom; að vilja sameina fjölskyldur – s*x ólíkar manneskjur – sem er bara heljarinnar verkefni sem þarf að sinna af mikilli alúð eða setja saman Besta flokkinn með öllu því góða fólki og Jóni. Í öllum þessum tilfellum og svo oft í lífinu hef ég einfaldlega verið að fylgja áætlun sem var sett fyrir mig.“

Og nú er Jóga orðin ættmóðir með sjö barnabörn, fimm tengdabörn, börn þeirra Jóns og svo forsetaframboð eiginmannsins sem Jóga tekur virkan þátt í.
„Framboðinu til forsetans fylgir svo mikil orka og há tíðni sem ég hef í gegnum lífið lært að fylgja. Því þetta skrifar sig allt saman sjálft hver svo sem útkoman verður. Það er svo gaman að hitta allt þetta fólk sem er að hjálpa okkur, vera svona mikið í kringum alla fjölskylduna sem er saman í þessu, börnin og barnabörnin og tengdabörnin. Þetta er bara algjör veisla sem er í boði Jóns og þjóðarinnar og þetta er það skemmtilegasta sem ég geri, þetta óvænta – það er algjörlega uppáhalds í mínu lífi. Óvænta og stóra ætlunarverkið sem ég hafði ekki séð fyrir. Og Jón minn. Hann hefur vaxið með öllum verkefnum sem hann hefur tekið sér fyrir hendur – eða öllu heldur hafa verkefnin dafnað í hans höndum. Ég held að það sé engin ástæða til að ætla annað en að foretaembættið myndi gera það líka,“ segir Jóga Gnarr að lokum.

Öll litbrigði lífsins í boði alla daga með Jóni | Birtíngur útgáfufélag Jóga Gnarr Jóhannsdóttir er 63 ára móðir og amma og segist nota bæði fjölskyldumillinafnið Gnarr og Jóhannsdóttir með stolti. Blaðamaður hitti Jógu á heimili hennar og eiginmannsins, Jóns Gnarr, í gamla Vesturbænum í Reykjavík. Við anddyri hússins tók Klaki, hundurinn þeirr...

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Aðalstræti 11
Reykjavík
101