Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Share

Facebook-síða fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Velkomin á Facebook síðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.Við fögnum allri umræðu á síðunni okkar en áskiljum okkur rétt til að fjarlægja meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa. Að sjálfsögðu gilda hér líka almennar notendareglur Facebook (sjá á www.facebook.com/terms.php?ref=pf)

Allt efni sem sett er inn af öðrum aðilum en fjármála- og efnahagsráðuneytinu er á ábyrg

19/06/2026

Esther Finnbogadóttir er fyrsta konan til að vera stjórnarformaður í Norræna fjárfestinabankanum (NIB). Þetta myndband var tekið í bankanum í vor en þar má sjá fyrrum stjórnarformenn bankans frá stofnun árið 1975. Esther hefur setið í stjórn bankans frá 2016 og var stjórnarformaður á árunum 2020-2022 og varaformaður 2018-2020. Gleðilegan kvenréttindadag!

Photos from Fjármála- og efnahagsráðuneytið's post 19/06/2026

Lög um stofnun innviðafélags sem ætlað er að annast undirbúning, fjármögnun, uppbyggingu og rekstur mikilvægra samgöngumannvirkja voru samþykkt á Alþingi í gærkvöldi.

01/06/2026

Viltu öðlast nýja reynslu og byggja upp tengslanet á Norðurlöndum?

Opið er fyrir umsóknir fyrir árið 2026 um þátttöku í norrænum starfsmannaskiptum í gegnum NORUT verkefni norrænu ráðherranefndarinnar. Verkefnið gefur starfsfólki ríkisins tækifæri til að kynnast starfsemi systurstofnana á Norðurlöndum, deila þekkingu og fá nýjar hugmyndir sem nýtast í starfi.

📅 Umsóknarfrestur er til 26. júní.

29/05/2026

Fjármála- og efnahagsráðherra efnir til ráðstefnu í Hörpu 2. júní næstkomandi í tilefni af útgáfu skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Skýrslan var unnin af hópi erlendra sérfræðinga og er henni ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi.

Ráðstefnan er öllum opin en skráning er nauðsynleg og stendur yfir hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScGeYPpfdgJjrAT_OICrgPAvDuC8kkb7W7TCjTPB7j9DIQ2TA/viewform

28/05/2026

Mikill áhugi fjárfesta á skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs í síðustu viku — eftirspurn rúmlega tólfföld miðað við útgáfuna. Sterk staða Íslands á alþjóðamörkuðum endurspeglast í hagstæðari kjörum og breiðum hópi fjárfesta.

Photos from Fjármála- og efnahagsráðuneytið's post 18/05/2026

Arnaldur Sölvi Kristjánsson lektor við Hagfræðideild Háskóla Íslands hefur verið skipaður formaður fjármálaráðs. Samið var við HÍ(Háskóli Íslands) um að starf Arnaldar í fjármálaráði teljist hluti af akademísku starfi hans.

„Þessi breyting styrkir stofnanaumgjörð ráðsins og eflir á sama tíma burði hagfræðideildar Háskóla Íslands til rannsókna í opinberum fjármálum“ segir fjármálaráðherra.

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/05/18/Samid-vid-Haskola-Islands-um-faglega-umgjord-fjarmalarads/

Skýrsla um lánamál ríkissjóðs birt opinberlega í fyrsta sinn 08/05/2026

Ársskýrsla lánamála ríkisins fyrir árið 2025 hefur nú verið gefin út og birt opinberlega í fyrsta skipti. Í henni er farið yfir helstu þætti lánamála ríkisins, fjármögnun ríkissjóðs og lántökur aðila með ríkisábyrgð.

„Birting skýrslunnar er mikilvægur liður í því að auka gagnsæi í stýringu ríkisfjármála. Hún sýnir einnig að staða ríkisins í lánamálum er traust og fer batnandi,” segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Skýrsla um lánamál ríkissjóðs birt opinberlega í fyrsta sinn Ársskýrsla lánamála ríkisins fyrir árið 2025​ hefur nú verið gefin út og birt opinberlega í fyrsta skipti. Í henni er farið yfir helstu þætti lánamála ríkisins, fjármögnun ríkissjóðs og lántökur aðila með ríkisábyrgð.

13/04/2026

Fjármálaáætlun 2027-2031 er tímamótaáætlun segir Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagráðherra. Hann fór yfir mikilvægi þess að ná hallalausum fjárlögum við kaffivélina. Hann mælir fyrir þingsályktun um fjármálaáætlun 2027-2031 á Alþingi á morgun.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Arnarhvoll
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:00
Tuesday 08:30 - 16:00
Wednesday 08:30 - 16:00
Thursday 08:30 - 16:00
Friday 08:30 - 16:00