18/06/2026
🌸 Samvera kynslóða í Seljahlíð 🌸
Leikskólabörn í leikskólanum Hálsaskógi heimsækja íbúa í Seljahlíð reglulega. Nú í júní gróðursettu þau sumarblóm og nutu samveru með íbúum 💚
Stundirnar einkennast af gleði og léttleika. Þau spjalla og leika saman, kasta boltum og syngja kunnugleg lög 🎶
Fallegar stundir sem skila miklu ✨
👵 Gleði og upplyfting í daglegt líf eldri borgara
🧒 Börnin læra málþroska, fínhreyfingar og samkennd
Frétt á vef Reykjavíkurborgar 👉
Börn og eldri borgarar mynda dýrmæt tengsl
Hópur leikskólabarna úr Hálsaskógi hefur hitt eldri borgara í Seljahlíð einu sinni í viku frá því í ágúst vegna verkefnis sem miðar að því að styrkja tengsl kynslóða. Þegar verkefnið hófst þekktust hóparnir lítið sem ekkert, en á fáum mánuðum hafa myndast sterk og k....
16/06/2026
🎓 Tuttugu og einn nýr leikskólakennari!
21 starfsmaður í leikskólum Reykjavíkur hefur útskrifast sem leikskólakennarar frá því í október í fyrra – mikilvægur áfangi fyrir faglegt starf í borginni.
Skóla- og frístundasvið bauð í móttöku til að fagna áfanganum. Nýju kennararnir starfa í 17 leikskólum víðs vegar um borgina og styrkja þar öflugt leikskólastarf.
Við athöfnina fengu þeir birkigræðling að gjöf – tákn um vöxt, þroska og farsæld í starfi 🌱
👏 Til hamingju og gangi ykkur vel!
Frétt á vef Reykjavíkurborgar 👉
Tuttugu og einn útskrifast sem leikskólakennari
21 starfsmaður í leikskólum Reykjavíkur hefur útskrifast sem leikskólakennarar frá því í október í fyrra sem er afar mikilvægt fyrir fagstarf í leikskólum borgarinnar. Starfsfólk skrifstofu leikskólamála á skóla- og frístundasviði bauð þeim til móttöku nú í júní til að...
05/06/2026
🩷 Góðgerðarhlaup Brúarskóla skilaði frábærum árangri 🩷
Í morgun sameinuðust nemendur og starfsfólk Brúarskóla í kærleiksríku hlaupi undir yfirskriftinni Riddarar kærleikans. Markmiðið var 200 km en niðurstaðan - heilir 226 km! 👏
Þegar hafa safnast 435.000 krónur til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru og uppbyggingu Bryndísarhlíðar 🩷
Enn er hægt að leggja málefninu lið:
Kt. 5602516-1060
Rknr. 515-14-010433
Dagurinn einkenndist af gleði, samstöðu og kærleika – sannarlega liðsheild sem lætur gott af sér leiða ✨
Frétt á vef Reykjavíkurborgar 👉 https://reykjavik.is/frettir/2026/godgerdarhlaup-bruarskola-stydur-vid-uppbyggingu-bryndisarhlidar
04/06/2026
🎉 Leikskólinn Hof 30 ára! 🎉
Mikil gleði og hátíðarstemning ríkir í leikskólanum Hofi þessa dagana þar sem 30 ára afmæli er fagnað ✨ Börn, starfsfólk og velunnarar hafa komið saman í vikunni og notið fjölbreyttrar dagskrár.
Afmælisboð, fallegar skreytingar og heimsókn borgarstjóra settu skemmtilegan svip á hátíðina – og krakkarnir stóðu sig frábærlega í að sýna verkefnin sín 👏🌱🎨
Hátíðarhöldunum lýkur svo með sumarhátíð þar sem gleðin heldur áfram ☀️💛
Til hamingju með tímamótin, Hof! 🥳
Frétt á vef Reykjavíkurborgar 👉 https://reykjavik.is/frettir/2026/leikskolinn-hof-fagnar-30-ara-afmaeli
03/06/2026
🌞 Vel heppnaður loppumarkaður og reiðtúrar á Tjörn! 🐴
Gleðin var í fyrirrúmi við leikskólann Tjörn á þriðjudaginn þegar foreldrar, börn og starfsfólk komu saman á líflegum loppumarkaði í frábæru veðri. Fyrr um daginn fengu börnin að fara á hestbak þegar Krakkahestar komu í heimsókn sem var mikil upplifun!
Börnin tóku virkan þátt í markaðnum, versluðu, prúttuðu og skiptu á varningi og fengu þannig skemmtilega innsýn í „alvöru“ viðskipti. Samfélagsandinn skein í gegn og þátttakan var frábær 💛
Frétt á vef Reykjavíkurborgar 👉 https://reykjavik.is/frettir/2026/vel-heppnadur-loppumarkadur-og-reidturar-tjorn
01/06/2026
🚤✨ Bátaleikar við Ráðhúsið!
Í dag sigldu bátar hannaðir og smíðaðir af 6. bekkingum Vesturbæjarskóla á tjörninni við Ráðhús Reykjavíkur og stóðu sig frábærlega! 👏
Nemendur fengu frjálsar hendur til að hanna báta sem áttu að geta siglt yfir litlu tjörnina við Ráðhúsið án rafmagns og eingöngu úr endurnýtanlegum efnivið. Verkefnið er hluti af STEAM-áskorun þar sem lögð er áhersla á sköpun, rökhugsun og lausnaleit.
Undirbúningurinn var metnaðarfullur með heimsóknum, prófunum og fræðslu frá skipaverkfræðingi og það skilaði sér: enginn bátur sökk og gleðin var allsráðandi! 🌞
Samstarfsverkefni Vesturbæjarskóla, Ingunnarskóla og Selásskóla sem heldur áfram að efla framtíðarhönnuði 🚢💡
Frétt á vef Reykjavíkurborgar 👉 https://reykjavik.is/frettir/2026/baturinn-duddi-slo-oll-met
29/05/2026
Regína lýkur farsælum kennsluferli 💙
Hlý og hátíðleg kveðjuathöfn var haldin í Sólborg þar sem Regína Rögnvaldsdóttir er að láta af störfum sem fastur starfsmaður eftir áratuga ómetanlegt framlag. Regína hefur frá stofnun skólans árið 1994 verið lykilstólpi í starfinu og frumkvöðull í málefnum döff barna.
Áhrif hennar ná langt út fyrir veggi Sólborgar – hún hefur miðlað þekkingu, barist fyrir bættum aðstæðum og haft varanleg áhrif á leikskólastarf um land allt.
Við þökkum Regínu af hjarta fyrir allt sem hún hefur gefið og hlökkum til að njóta áfram þekkingar hennar í nýju hlutverki 💐
Frétt á vef Reykjavíkurborgar 👉 https://reykjavik.is/frettir/2026/regina-lykur-farsaelum-kennsluferli
27/05/2026
🌈 Spor í Norðri – börn marka skrefin
Gömlum skóm var breytt í listaverk þegar börn tóku yfir Safnahúsið við Hverfisgötu og deildu draumum sínum og sýn á framtíðina. 👟✨
Verkefnið sameinaði börn frá Íslandi, Færeyjum og Danmörku í skapandi samtali um inngildingu, fjöltyngi og skilning.
Skórnir á sýningunni táknuðu þau spor sem börnin vilja taka og þau áhrif sem þau vilja hafa á heiminn.💫
Norræna samstarfsverkefnið SPIN – Sprogvenner í Norden stóð í tvö ár en lauk nú í maí.
Frétt á vef Reykjavíkurborgar 👉 https://reykjavik.is/frettir/2026/taknraen-spor-um-drauma-barna-og-framtidarsyn
27/05/2026
Líkamaspil frá Frístundalæsi 🎲🧍♂️
Skemmtilegt borðspil þar sem leikmenn ferðast um mannslíkamann✨
Eflir skilning barna á heilsu og líkamsvitund á leikrænan og gagnvirkan hátt 🧠
Skapar tækifæri til samtals um hreyfingu, hreinlæti og góðar venjur
Gott er að hafa einnig veggspjöldin með líffærakerfunum við höndina meðan spilað er.
👉 Sjá nánar: https://fristundalaesi.reykjavik.is/heilsulaesi-likaminn-okkar/